Vísir - 29.05.1962, Blaðsíða 2

Vísir - 29.05.1962, Blaðsíða 2
VISIR ^^///// £ v///s/mm///'W*?////A n i r 5 Y//////////L J V7///VÆ ! 'áZVÆ CD Heppnin færði Þrótti mörkin gegn Breiiabliki Þróttur vann í gærkvöldi sigur yfir Breiðabliki úr Kópavogi, en crfiður reyndist Þrótti róðurinn í þetta skiptið. Þróttur átti mestall- an leikinn en skotmenn reyndust ekki margir i sókn Þróttar og því var fátt um mörk. Mýmörg tæki- færi voru líka eyðilögð fyrir hrein- an klaufaskap framlínumanna, t. d. er Helgi Ámason, h. útherji stóð fyrir opnu marki á markteig en brenndi af, er Axel gaf honum góð an bolta fyrir markið. Óheppnin var líka í spilinu, t .d. þegar Hauk- ur Þorvaldsson, skaut á síðustu mínútu hörkuskoti af löngu færi í markstöngina. MÖRKIN. Fyrsta mark leiksins kom ekki fyrr en á 40. minútu lciksins. Það var Haukur, sem skoraði markið með fallegu skoti innan vítateigs. Aðeins 2 mínútum síðar jafna Breiðabliksmenn upp úr auka- spymu og var þar að verki mið- herji Iiðsins, hlaupagikkur hinn mesti, Reynir Jónsson, sem átti góð tilþrif og var að mestu einn ábyrgur í þau f áu skipti, sem Þróttarvörnin þurfti að taka á. í síðari hálfleik hélt Þróttur ÍA bætist liðsstyrkur Akurnesingar virðast ekki á því að detta niður í 2. deild eins og Rikharður Jónsson og fleiri Akur- nesingar hafa margoft sagt okkur. Jafntefli við Val staðfesti þetta, og nú á næstunni bætast liðinu við góðir kraftar sem eru þeir varn- arleikmennimir Kristinn Gunn- laugsson, rr.argfaldur landsliðsmað ur, bæði sem miðvörður og bak- vörður og Gunnar Gunnarsson, sem er einn hinna yngri leikmanna og hefur náð góðum árangri í stöðu miðvarðar. Og svo er Sveinn Teitsson væntanlegur aftur aðsögn og þarf ekki að geta hans stóra framlags í fjölda ára bæði til ÍA og landsliðsins í frnmvarðarstöðunni. uppi einstefnu að marki Breiða- bliks en ekki kom mark fyrr en á 20 mín. að dómarinn Þorlákur Þórðarson dæmdi vítaspyrnu á Breiðablik, en heldur var sá dóm- ur vafasamur. Haukur Þorvaldsson skoraði örugglega. Táarskot Jens Karlssonar á 39. mínútu færði Þrótti svo 3—1, en það skot lenti á öðrum bakverði Breiðabliks og í annað hornið, en markvörður var kominn úr jafnvægi. Þannig lék lán í óláni við Þrótt, þ. e. þeir skoruðu þegar þeir hefðu ekki átt það skilið, en skoruðu ekki úr upplögðum tækifærum. Annars var leikurinn lítils virði þeim áhorfendum sem lögðu Ieið sína á Völlinn í góðu veðri og heldur betur mega Þróttarar Iaga leik sinn ef þeir eiga að vinna hina harðsnúnu Suðurnesjamenn. Breiðabliksmenn hefðu átt að reyna meira að leika saman, en það gerðu þeir ekki, heldur spörk- uðu út í Ioftið eins og þcir ættu lífið að Ieysa. Þorlákur Þórðarson var heldur slakur dómari í þcssum leki. Nýtt Evrópu- met í stungar- stökki: 4,75 Finninn Penttii Nikula setti nýtt Evrópumet í stangarstökki I Miinchen á laugardaginn er hann stökk 4,75 m, eða 3 sm hærra en nýlegt met hans í greininni. Nikula notaði hina umdeildu glerfíber- stöng sína og lét hann hækka í methæðina úr 4,61. Suiumesjamenn unnu í II. deild Á laugardag fóru fram tveir leik- ir í 2. deildarkeppninni, þeir fyrstu f keppninni, á Suðurnesjum. í Njarðvík kepptu Keflavík og Hafnarfjörður og Iauk leiknum með yfirburðarsigri Keflavíkur 5:0. í Sandgerði fór fram leikur Knattspyrnufélagsins Reynis og Markvörðurinn Tilkowsky fékk ekki frið fyrir rithandarsöfnurum frekar en aðrir Ieikmenn, er þeir komu til flugstöðvarinnar í Santi- ago de Chile. Víkings og unnu Reynismenn með 6-3, en í hálfleik var staðan 5-0 fyrir Reyni. Allþungur vindur var meðan leikirnir fóru fram og hafði mikil áhrif, eins og sjá má af því, að Víkingar fengu 5 mörk á sig í fyrri hálfleik en skoruðu 3 í hin- um síðari. Þrjú af mörkunum, sem Víkingar fengu á sig voru hálfgerð sjálfsmörk, þ. e. skotið var í varn- armenn Víkings og fór knötturinn af þeim f markið. Þriðjudagur 29. maí 1962. Hljóp 20226 metra á 1 klukkustund Eþíópiumaðurinn Bikile Abebe hljóp í gærkvöldi 20226 metra á einni klukkustund, en það er betra en heimsmet í þessari íþróttagrein. Heimsmetið á Tékkinn Emil Zat- opek, sem fyrrum var kallaður „eimreiðin“ og var lang beztur allra þolhlaupara í heimi, hann hljóp lengst 20052 metra á klukku- tíma og var metið sett 1951. Afrek Abebe, OL-meistarans sem hljóp berfættur í Mararþonhlaupinu í Róm verður ekki staðfestur þar eð hann hljóp elcki á hlaupabraut heldur á víðavangi. Landi Bikile varð annar með 20056 metra, en þriðji varð Daninn Tyge Tögersen, sem margir munu kannast við frá keppnum hér á landi. Hann hljóp 19.383 metra. HM hefst á morgun Á morgun hefst í Chile Heims- meistarakeppni í knattspyrnu þar sem 16 Iið leiða saman hesta sína í 4 borgum samtímis. Leikimir á morgun eru þessir: Uruguay — Columbia, Chile — Sviss, Argentína — Búlgaía, Brazilía — Mexíkó. Riðlana fjóra skipa þessi lönd: í Arica: Columbía, Uruguay, Sovétríkin, Júgóslavía. í Vina del Mar: Brazilia, Spánn, Mexíkó, Tékkóslóvakía. í Rancagua: Argentína, England, Ungverjaland, Búlgaría. í Catiago de Chile: Chile, ítalía, Sviss, V.-Þýzkaland. Alitof í fremstu línu Belgía virðist nú vera að eignast nýjan stórhlaupara fyrir Roger Moens, fyrrverandi heimsmethafa í 800 metra hlaupi og bezta hlaup- ara á þeirri vegalengd i mörg ár. Heitir sá Jalques Pesnevert og er 25 ára að aldri. Hann náði á dög- unum 46.8 í 400 metra hlaupi og vann þá m.a. Þjóðverjann Man- fred Kinder, sem varð 5. á OL í Róm. Belgíumaðurinn hafði áður átt bezt 47.5, en hér sló hann landsmet Roger Moens, sem var 47.3. Nýtt tónverkJóns Nardals frumfíutt Síðustu tónleikar Sinfóníuhljóm-' hið nýja verk Jón tónskálds Nor- sveitar Islands verða haldnir í dals og nefnir hann það Brotaspil. samkomuhúsi Háskólans föstudag- Þá verður fluttur píanókonsert í e- inn 1. júní og þar frumflutt nýtt, moll eftir Chopin, einleikari verð- hljómsveitarverk eftir Jón Nordal. ur Jórunn Viðar. Loks verður svo Stjórnandi verður Jindrich Ro- han, og hefjast tónleikarnir kl. 21. Vérkin sem flutt verða, eru, fyrst flutt sinfónía nr. 6 í h-moll, „Pat- Myndin er frá Chile og sýnir þegar forráðamenn liðanna eru að skoða mannvirkin og spjalla þá hétique", eftir Tschaikowsky. m. a. við kokkana, sem þeir hafa haft með sér frá heimalandinu, því maturinn verður að vera eins og leikmenn eru vanir að hafa hann. Það er Sepp Herberger, sem hér smakkar á súpunni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.