Vísir - 29.05.1962, Blaðsíða 11

Vísir - 29.05.1962, Blaðsíða 11
llnrM 149. dagur ársins. Næturlæknn ei ' slvsavarðstot- jnni ilmi 15030 Næturvörður lyfjabúða er þessa viku i Ingólfs Apóteki, Aðalstræti 4, gengið inn frá Fischerssundi, lími 11330 Útvorpid 18.30 Harmonikulög. 18.50 Tilkynn ingar. 19.20 Veðurfregnir. 20.00 Fréttir. 20.00 Frá tónleikum Sin- fóníuhljómsveitar íslands í Há- skólabíói 17. þ. m.; Olav Kielland. Sinfónía nr. 2 op. 21 eftir Olav Kielland. 20.40 Erindi: Skógur í gær, gluggi í dag (Bjarni Tómas- son málarameistari). 21.00 Gítar- tónleikar: Laurindo Almeida leikur. ' 21.15 Á f.rnum vegi í Skaftafells- sýslu: Jón R. Hjálmarsson skóla- stjóri ræðir við tvo Mýrdælinga. 21.50 Formáli að föstudagstónleik- um Sinfóniuhljómsveitar fslands (Dr. Hallgrímur Helgason). 22.00 Fréttir og veðurfregnir. 22.10 Lög unga fólksins (Guðrún Ásmunds- dóttir). 23.00 Dagskrálok. Ýmlslegt Kvenfélag Laugamessóknar. Munið kaffisöluna á uppstign- ingardag kl. 3. Konur, sem ætla að gefa kökur eru vinsamlega beðnar að koma þeim i kirkju- kjallarann lyrir hádegi sama dag. , — Nefndin. Viðskipti íslands og Ungverjalands. • Viðskipta- og greiðslusamningur íslands og Ungverjalands frá 6. marz 1953 hefur verið framlengdur óbreyttur til ársloka 1962 með orðsendingaskiptum milli sendi- ráða fslands og Ungverjalands í Moskva. — (Utanríkisráðuneytið, Reykjavík, 25. maí 1962). Skipin SKIPADEILD S.Í.S. Hvassafell er í Reykjavík. Arnar fell fer væntanlega frá Ventspil 31. þ. m. áleiðis til íslands. Jökul- fell losar í New York. Dísarfell losar timbur á Austfjarðahöfnum, Helgafell fer væntanlega í kvöld frá Haugesund áleiðis til íslands. Hamrafell fór 22. þ. m. frá Batumi til Reykjavíkur Afmæli f dag er 85 ára, Þuríður Sig- mundsdóttir, að Njálsgötu 55. Hún er mörgum Reykvíkingum kunn, enda hefur hún nú búið á Njáls- götunni yfir 50 ár. Þuríður var gift Jóhanni Sigmundssyni sjó- manni, sem lézt árið 1936. Þau hjón eignuðust 5 börn og er elzta dóttirin látin. Synir þeirra eru Ólafur, læknir I Reykjavík, Pétur, framkvæmdastjóri Veiðar- færagerðar fslands, Sigmundur, skrifstofustjóri hjá Lýsi h.f. og Guðmundur, sem verið hefur skip- stjóri í Boston. Þuríður mun taka á móti gestum á heimili Ólafs sonar sfns að Hörgs hlíð 14. Borgarstjórafrúin baðar sig Háskólabíó hefur nú byrj- að sýningar á þýzku gaman- myndinni DAS BAD AUF DER TENNE (Bað á þreskiloftinu), og nefnist hér Borgarstjórafrú- in baðar sig. Þessi bráðsnjalla mynd er í óperettustíl og í lit- um og fyrirtaks vel leikin. Að- alhlutverk eru leikin af ágætum leikurum, svo sem Sonju Zie- mann, Paul Klinger, A. Kleinau. í Rudolf Platte Karl Schönböck Herthu Staal. — Sagan gerist Terbrtigg, litlum landamærabæ f Hollandi á því herrans ári 1652. Ein af allra beztu mynd- um með léttu efni, sem hér hef- ' ir sést lengi, og fyrirtaks dægra stytting. Myndin hér að ofan er af borgarstjórahjðnunum í myndinni, Sonju Ziemann og Paul Klinger. — A. Th. Tímarif ÁRSRIT Skógræktarfélags íslands 1962 er nýkomið út, mjög fjöl- breytt að efni og vandað að frá- gangi. Þetta er 28. árgangur rits- ins, sem kemur nú út í 28. sinn. Hákon Bjarnason skógræktarstjóri skrifar formálsorð. Meðal efnis er fróðleg grein um Alaska og ísland, eftir Roger H. Robinson, en hann ferðaðist um Island s.l. haust ásamt samstarfsmanni sfnum Jam- es Scott, en báðir starfa þeir við skógrækt í Kanada. Hákon Bjarna- son skrifar grein um ferð um Vest- ur-Þýzkaland. Báðar hafa þessar greinar mikinn fróðleik að geyma, og má raunar sama segja um ýms- ar aðrar, sem í ritinu eru. M.a. er þarna athyglisverð grein um sam- býli sveppa og trjáa, eftir Helga Hallgrímsson. — Áð vanda er ara- grúi af myndum í ársritinu. Söfnin (Vlinjasatr, Reykjavíkurbæjar, ákúlatúni 2. opiS daglega frá kl. 2 til 4 e. h. nema mánudaga Þjóðminjasafnið er opið sunnu dag. þriðjud., fimmtud. og laug- ardag kl. 1.30—4 e. h Ameríska Bókasafnið, Laugavegi i3 er opið 9—12 og 12 — 18 þriðju- dagr. og fimmtudaga Rólegar kosningar Lögreglan í Reykjavík, Hafnar- firði og Akureyri telur að mikili friður og ró hafi hvílt yfir kosn- ingunum á öllum þessum stöðum. í gærkveldi bar að vísu nokkuð á ölvun á almannafæri eins og ger- ist og gengur, en þó sfzt meira en venja er til á slíkum dögum. Ólafur Jónsson fulltrúi hjá lög- reglustjóranum í Reykjavík tjáði Vísi í morgun að ölvun hafi verið all áberandi í Reykjavík undan- farna daga, einkum fyrir síðustu helgi, og að hún hafi á engan hátt verið meiri f gærkveldi en endra- nær. í Hafnarfirði var ölvun ekkert meiri en venja er til á kosninga- dögum. Og yfirlögregluþjónninn á Akureyri, Gísli Ólafsson, hafði svipaða sögu af Akureyringum að segja. Hann sagði að umferð á götum hafi að mestu leyti dottið niður eftir að kjörfundi lauk og að ölvun hafi verið lítil. — Ef þú ætlar að borða þessa samloku, þá verðurðu að flýta þér, því að megrunarkúrinn okkar byrj- ar eftir 2l/2 mfnútu. Læknaskortur úti um land í SÍÐASTA Lögbirtingablaði eru 7 læknishéruð auglýst laus til urn- sóknar. Þetta eru Bakkagerðis-, Djúpavíkur-, Kópaskers-, Raufar- hafnar-, Reykhóla- og Súðavfkur- héruð, og verða tvö hin fyrstu, Bakkagerði og Djúpavík, veitt frá 20. júní, en hin síðar, og Kópaskers hérað síðast eða 20 .október. Það er ekki neitt sérlega íslenzkt fyrirbæri, að smáleturs- dálkar sé notaðir til að koma á framfæri alls konar gagnrýni eða aðfinnslum á ýmislegu, sem miður fer f daglegu lífi. Þetta er einmitt það, sem virðist góð og gild regla víða, og er þvf engin uppfinning manna hér á Fróni. Hitt mun aftur algengara hér á landi en annars staðar, að menn reyni að lauma alls konar leiðindaskætingi nafn- Iausum inn i slíka dálka, en um- sjónarmenn þeirra munu vera farn ir að vara sig nokkuð vel á slfkum sendingum. ► Blöð erlendis birta mikið af bréfum frá lesendum sínum, og öll eru þau undir fullu nafni. Heim ilisfang er oft látið fylgja, svo að enginn vafi leiki á, hver höfund- ■.■.■.■.V.V.V.W.V.W.V.V. urinn sé. Hér er því hins vegar svo farið yfirleitt, að margir eru fúsir til að taka til máls um ýmis efni, en helzt vilja þeir, að nafnið sé látið liggja í þagnargildi. Menn vilja hliðra sér hjá „óþægindum" f sambandi við slík skrif. ► Ekki er nú slík afstaða karl- mannleg. Hún er þvert á móti — fyrir neðan allar hellur, því að hver sá, sem getur ekki staðið fyr- ir máli sínu, varið sannfæringu sína eins og maður, á ekki að vera að koma henni á framfæri eða troða henni upp á aðra. Hann á að hafa hana fyrir sjálfan sig, og getur hann þá glingrað við hana f rúminu, þegar allt er orðið kyrrt á kvöldin. ► Um það hefur nokkuð verið rætt, að blaðamenn ættu að setja sér siðalögmál, codex et- hicus, þar sem skilgreint væri, hversu langt þeir megi ganga f skrifum sfnum, hvar takmörkin eigi að vera í ummælum um ná- ungann, hvar. siðleysið taki við. En blöðin sjálf þurfa líka að setja sér lögmál. Þau verða líka að reisa skorður við þvf, að hægt sé að lauma inn ýmsum svigurmælum um menn og málefni í trausti þess, að blaðamaðurinn geti sagt: Þetta er bara ekki eftir okkur — það er aðsent. ► Blaðamannafélagið mundi vaxa mjög að virðingu, ef það kæmi þessu máli í höfn, en það þarf líka að setja eftirlitsnefnd eins og sum stórveldin telja nauð- synlegt, þegar rætt er um afvopn- un. 1) En hvað varð svo um allt þetta fólk. Flutti það burt? Enginp veit það með vissu, það eru aðein tilgátur. 2) F.n svo virðist sem þrælarn- ir hafi gert uppreisn og iteypt Maya-foringjanum. 3) Þegar þeir höfðu drepið for- ingjana og prestana, gátu þeir ekki lengur lifað hér, en dreifðust út um skóginn. BUT /T APPBARS THE SLA VES REBELLEP AND OVERTHREW THE/R MAYA MASTERS."

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.