Vísir - 30.06.1962, Blaðsíða 16
r
'V
VISIR
Laugardagur 30. júní 1962.
I Frakkar eru byrjaðir að afhenda |
Túnísum suðurhluta flotastöðvar-
svæðisins í Bizerta. Samkomulags-
umleitanir hefjast á mánudag í
næstu viku um hvenær allt lið
Frakka í Bizerta skuli vera farið
þaðan.
/ notma
og drukknaði
Aðfaranótt fimmtudagsins tók
stýrimanninn, Hilmar Tómasson, út
af v.b. Hafþór frá Norðfirði, sem þá
var að síldveiðum úti af Horni.
Slysið skeði laust eftir miðnætti
og var löng og ítarleg leit gerð að
Hilmari en árangurslaus. Fór bátur-
inn þá rakleitt til Akureyrar, kom
þangað síðdegis á fimmtudag og í
gær hófust sjópróf í málinu.
Hilmar Tómasson stýrimaður
stóð á þrítugu. Hann lætur eftir
sig konu og þrjú börn.
Vísir átti seint í gærkvöldi tal við
Kristján Jónsson fulltrúa bæjarfó-
geta á Akureyri, sem hafði sjópróf
í máli þessu til meðferðar.
Það sem kemur fram I sjóprófun-
um er í höfuðatriðum þetta:
Stýrimaðurinn á m.b. Hafþór,
Hilmar Tómasson, fór út úr brjínni
á bátnum rétt eftir miðnætti að-
faranótt s.l. fimmtudags, eða um
kl. 0.20. Svo virðist sem „hanafót-
ur“ hafi herpst að fæti Hilmars, en
það er nafn á lykkju sem rennur
eftir herpinótslínunni, og þetta hafi
verið orsökin að óhappinu. Enginn
skipverja sá þegar þetta skeði og
ekki fyrr en Hilmar var flæktur í
nótina og var að renna útbyrðis.
Sáu skipverjar að lykkju var þá
brugðið um fót hans.
Líða ekki nema örfá augnablik
unz menn höfðu sett út lítinn bát
og í hann fóru tveir menn til að ná
í manninn. Sáu þeir að línugarn lá
yfir höfðinu á Hilmari, sem reyndar
þrýsti honum niður, en töldu þó
víst að þeir myndu ná honum á
hverju augnabliki. Áttu þeir aðeins
tvo eða þrjá metra til hans og var
annar bátsverja kominn fram í bát-
inn til að innbyrða hann þegar Hilm
ar sökk allt í einu og skaut ekki
upp eftir það. Munu hafa liðið uni
4 klst. frá því að slysið skeði og þar
tii báturinn fór burt af slysstaðnum.
Öll leit var árangurslaus.
Veiðin glæddist með kvöldinu
í gær gerði nokkurn vin(j frétt um að fiugvél hefði séð • Bjarnarey, en það er það næsta
þrjár góðar síldartorfur rétt fyr- j sem síldin hefur komið að land
ir austan Vopnafjörð, út afl Frh. á 6. síðu.
á síldarmiðunum fyrir
Norðurlandi og var lítil
sem engin veiði frá því
snemma um morguninn og
fram til kl. 6 um kvöldið.
Þá fóru skipin að kasta og
fengu sæmilega veiði. Síð-
ast þegar Vísir vissi til í
gærkvöldi höfðu 9 skip til
kynnt að þau væru á leið
til Siglufjarðar. Búizt var
við að miklu fleiri skip
hefðu fengið 100 til 300
mál, þótt þau tilkynntu
ekkert um það þar sem
þau ætluðu að halda áfram
að (veiða. Löndun hélt á-
fram á Siglufirði í allan
dag.
Torfur við Bjarnarey.
Veiðisvæðið er á líkum stað
og í gær á Strandagrunni 25—50
mílur út af Horni. Nokkru eftir
hádegi í gær barst hins vegar
Mikil fjölgun félaga / AB
Mussolini
mynd mótmælt
Kvikmynd um Mussolini, „Ben- j
ito Mussolini, eðli einræðisherr-
ans“, er nú mjög vel sótt á Ítalíu. i
Fjölskylda Clarettu Patacci,
frillu Mussolinis, hefir kvartað yfii
því, að sagt er frá sambandi þeirra
í myndinni og telja þeir, að mynd- j
in muni rýra álit ættarinnar. Hið
opinbera hefir svarað því, að
Claretta sé „þáttur í veraldarsög-
unni“, og verði engin breyting
gerð á myndinni.
» Charlie Chaplin, sem nú er 73
ára ætlar að framleiða nýja skop-
mynd. Hann hefur samið handritið
og ætlar að leika í henni sjálfur.
Sidney sonur hans er meðframleið
andi. - - .
Hin árlega ferð landsmála-
félagsins Varðar verður farin
sunnudaginn 1. júlí n. k. Leið-
in liggur um Krísuvík, Ölfus,
Flóann Skeið og Biskupstungur.
Kunnur leiðsögumaður verður
með í förinni, sem sé Árni Óla
ritstjóri. Staldrað verður við á
helztu sögustöðum svo og skoð
uð athyglisverð mannvirki á
leiðinni. Lagt verður af stað frá
Sjálfstæðishúsinu kl. 8 árdegis.
Væntanlegir þátttakendur geta
keypt farseðla á 225 króuur í
Sjálfstæðishúsinu. Innifalið í
verðinu er miðdegisverður og
kvöldverður.
Varðarferðirnar svokölluðu
eru einn vinsælasti þátturinn i
starfsemi félagsins. Árlega taka
margir tugir manna þátt í þess
um ferðum sér til ánægju og
fróðleiksauka.
Meðfylgjandi mynd sýnir þátt
takendur í síðustu Varðarferð á
einum áningarstaðnum.
félagsins, sem haldinn var á
miðvikudaginn. Þar flutti Bjami
Benediktsson dómsmálaráð-
herra, sem er formaður AB
greinargerð um starfscmina og
sagði hann að bækur félagsins
á s.l. ári hefðu yfirleitt selzt
vel, enda hefði verið þar margt
úrvals bóka. Einnig flutti þar
skýrslu framkvæmdastjóri fé-
lagsins Baldvin Tryggvason.
Stjórn Almenna bókafélags-
ins var öll endurkjörin en hana
skipa: Bjarni Benediktsson for-
maður, Alexander Jóhannes-
son, Gylfi Þ. Gíslason, Jóhann
Hafstein og Karl Kristjánsson.
I bókmenntaráð voru kjörn-
ir: Tómas Guðmundsson for-
maður, Birgir Kjaran, Davíð
Stefánsson, Guðmundur G.
Hagalín, Höskuldur Ólafsson,
Jóhannes Nordal, Kristján AI-
bertsson, Matthías Jóhannessen
og Þórarinn Björnsson.
Félagsmönnum í Almenna |
bókafélaginu hefur fjölgað um :
300 síðan um áramót. Er hagur I
félagsins góður og mikil gróska
í bókaútgáfu þess. Þetta kom
fram á aðalfundi Almenna bóka
Um þessar mundir er unnið
að því að breyta Isborginni í
flutningaskip og standa vonir
til að því verki ljúki um áramót.
í sambandi við breytingar
þessar hefur ketiilinn úr skipinu
verið tekin úr því og seldur
síldarverksmiðjur ríkisins. —
Mun eiga að nota hann í hina
nýju verksmiðju, sem er í bygg
ingu á Reyðarfirði. Mjög óvíst
þykir hvort verksmiðjan komist
í gang á þessu sumri, vegna
þess að verkfall jámsmiða tafði
mjög fyrir.
Ketill þessi er um fimmtíu og
átta tonn að þyngd, en hér á
íslandi en engin krani svo sterk
ur að hann geti lyft honum.
Var þá það ráð tekið að fá
eitt af skipum Moore-Mc
Cormac línunnar, sem annast
birgðarflutninga fyrir banda-
ríska herinn, til þess að lyfta
hinum þunga katli úr Isborginni,
og gerði skipið þaö í dag.
Við verkið var notuð „boma“
sem ly/tir um 75 tonnum og
gekk það mjög fljótt og vel
Dró síðan dráttarbáturinn Magni
ketilinn út á Viðeyjarsund en
þar verður hann þar til að eitt
af skipum Iandhelgisgæzlunnar
mun draga hann austur.
Söfnuðu sér fé ti
ísiandsferðar
Yorkshire Evening Post segir
frá því, að tíu skólapiltar og
tveir kennarar þeirra haldi til ís-
Iands í ágúst til nokkurra vikna
dvalar.
Piltarnir eru allir í efsta bekk í
Ripon-gagnfræðaskóla, og hafa
þeir unnið kappsamlega við að
safna fé til fararinnar, sem þeir
ætla að greiða að mestu úr eigin
vasa. Þó hefir þeim ekki tekizt
að leggja allan farareyrinn til hlið-
ar, og vonast þeir til að fá stuðn-
ing frá vinum og velunnurum skóla
síns til að fylla ferðasjóðinn, ef á
hann vantar.
Þegar hingað til lands verður
komið, er æJunin að taka bifreið
á leigu og aka um Iandið, en sofið
verður í tjöldum og piltarnir munu
sjálfir elda ofan í sig og kennara
sína. Eftir heimkomuna eiga þeir
svo að rita ferðasögu, sem geymd
skal í bókasafni skólans. Með pilt-
unum verður fimleikakennari
þeirra, svo og landafræðikennari
skólans.
i