Október 1990 Notendaráðstefna GUIDE Jón Freyr Jóhannsson tölvunarfræðingur SKÝRR Dagana 1.-5. september s.l. var haldin ráðstefha á Hótel Loftleiðum sem bar yfirskriftina "Positioning for the New Decade". Að ráðstefhunni stóð hópur sem ber skammstöfuiiina GUIDE (Nordic region), nánar tiltekið sá hluti hópsins sem ber heitið "Development Support Center". GUIDE stendur fyrir "Guidence for Users of Integrated Data Processing Equipment" og er GUIDE nokkurs konar IBM- notendahópur. Ráðstefhugestir komu frá "stóru" Norðurlöndunum, Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og íslandi. Alls voru um 130 þátttakendur, þar af 14 íslendingar, en íslendingar hafa lítið tekið þátt í ráðstefhum GUIDE-hópsins áður. Mikil umfjöilun um AD/CYCLE Fyrirlesarar ráðstefhunnar komu úr ýmsum áttum og eins var efhi fyrirlestranna nokkuð misleitt. Meginhluti fyrirlestra snérist þó með einum eða öðrum hætti um AD/ Cycle, semlBM kynnti á síðasta ári sem ramma fyrir hugbúnaðarferilinn í heild sinni (AD = Application Development). Þrír fyrirlestranna komu frá tölvudeildum stórra fyrirtækja og samtaka. Fyrirlesari frá tölvumiðstöð danskra bændasamtaka (Landbrugets EDB-Center) skýrði frá því hvernig AD/Cycle félli að stefhumörkun sem þeir mótuðu fyrir tveimur árum og hvernig þeir hygðust fylgja sinni stefhu með hliðsjón af AD/Cycle- rammanum. Svipuð saga var flutt frá Norsk Hydro og einnig fjallaði erindi frá Volvo Data um AD/Cycle ásamt því hvernig þeir væru nú að vinna að því að koma á raunverulegri tölvustuddri hugbúhaðargerð (CASE) innan VOLVO Data. Þávareinnig fróðlegt að heyra þessa fyrirlesara segja frá skipulagi sinna tölvudeilda og eðli og umfangi verkefha sem þeir fást við. Straumar og stefnur í tölvustuddri hugbúnaðargerð Fjórir fyrirlestrar komu frá ráðgjafarfyrirtækjum (reyndar er rangt hjá mér að segja ráðgjafar- fyrirtæki í þessu samhengi því aðeins einn þessara aðila var frá óháðu ráðgjafarfyrirtæki, hinir voru spyrtir við sölustarfsemi á einn eða annan hátt). Ég held að ekki sé á neinn hallað þó fyrirlestur Gig Graham frá Gartner Group í Bandaríkjunum sé talinn þeirra bestur. Hanndrósaman þróun og umhverfi hugbúnaðargerðar síðustu ára og spáði í þróun næstu ára. Hann tók fyrir helstu strauma og stefnur í tölvustuddri hugbúnaðar- gerð og virtist gera það án þess að draga taum neinnar einnar stefnu eða framleiðanda. Slíkt hlutleysi var ekki að finna hjá hinum "ráðgjöfun" enda gáfu þeir sig svo sem ekki út fyrir að vera hlutlausir. Fjórir fyrirlestrar komu frá IBM í Danmörku. Fjallað var um AIX, reynslu af þekkingarkerfum, upplýsingalíkanið ("Information Model" sem er líkanið á bak við grunn AD/Cycle) og hönnun tölvukerfa í blönduðu umhverfi vinnustöðva og "heimskra" skjáa. íslenskur fyrirlesari Einn fyrirlestur kom frá íslandi. Páll Jensson prófessor flutti fyrirlesturinn sem bar yfirskriftina "Object Oriented Approach to System Development". Þar fjallaði hann nokkuð vftt um hlutbundna hug- búnaðargerð og var þar um ágætis yfirlit að ræða frá honum. Lítil reynsla - miklar vonir Eins og áður hefur verið nefnt var mikið fjallað um AD/Cycle-rammann á ráðstefnunni og hvaða áhrif sú hugmynd gæti haft á störf okkar í náinni framtíð. Þessi umfjöllun var ekki einungis frá fyrirlesurum komin heldur snérust umræður í vinnu- hópumað mestuumsama mál. Ég held að við íslendingarair höfum flestir reiknað með að heyra meira af reynslu frænda okkar, en í þetta skiptið virtust þeir vera meira í spádómsskikkjum súium og miðluðu frekar af vonum sínum en reynslu. Það kom mér þægilega á óvart að sjá og heyra að staða flestra þeirra sem ráðstefhuna sóttu, með tilliti til tölvustuddrar hugbúnaðargerðar, var svipuð okkar hér heima. Ég hafði einhverra hluta vegna talið okkur skemur á veg komin en starfsbræður okkar á hinum Norðurlöndunum. Flestir voru aðbúa sig undir að móta stefnu varðandi tölvustudda hugbúnaðargerð en fæstir voru búnir aðþví. Allirvirtustþósammálaum að það semhöfuðmáli skipti væri að móta skýra stefnu innan hvers fyrirtækis um það hvert skyldi stefha í hugbúnaðargerð. Það sem 10-Tölvumál