Vísir - 17.08.1962, Blaðsíða 1
Eftir öllum fréttum að dæma virð-
ist vera mjög góð veiði við Græn-
Iand núna. Hver togarinn eftir ann
an hefur komið af Grænlandsmið-
um með fulifermi eða næstum það.
Mikið annríki er hjá Togaraaf-
greiðslunni og í gær var unnið við
að landa upp úr Hauki og Fyiki.
í dag eða nánar tiltekið um eitt-
leytið, kom Júpíter, stærsti togari
Tryggva Ófeigssonar af veiðum við
V-Grænland með fullfermi af karfa.
Einnig kom á svipuðum tíma til
Akraness togarinn Víkingur með
fullfermi af Grænlandsmiðum.
Með fullfermi
VISIR
52. árg. — Föstudagur 17. ágúst 1962. — 192. tbl.
Söltun lokið
Lokið er nú að salta síld
upp í gerða samninga.
Hafa verið saltaðar 306
þúsund tunnur og má heita
að það sé selt. Eftir er að
salta 10—12 þúsund tunnur
af sérverkaðri síld.
Blaðið hafði í morgun tal af Er-
lendi Þorsteinssyni, formanni síld-
arútvegsnefndar. Sagðist hann ekki
telja forsvaranlegt annað en að
stöðva söltunina aftur. Ekki hefur
þó enn verið tekin ákvörðun um
það, en fundur verður haldinn í
nefndinni í dag og verður málið
þá tekið fyrir.
Taldi Erlendur mjög litlar lík-
ur á að hægt væri að selja meiri
síld að svo komnu máli og því
mjög varasamt að leyfa meiri sölt-
un.
Stærsti kaupandi síldar er Sví-
þjóð, sem kaupir 128.000 tunnur.
Til Danmerkur hafa selzt 4500 tn.,
til Fjnnlands rúmar 55.000, til Nor
egs 6700 tunnur, V-Þýzkalands
8700, Bandaríkjanna 12.300 og til
Sovétríkjanna 80.000 tunnur.
Síldarútvegsnefnd hefur staðið í
sambandi við verzlunarfulltrúa Sov
étríkjanna hér á Iandi, til að leita
fyrir sér um sölu á meiri síld til
Rússlands. Ekki hefur sú viðleitni
borið árangur, enn sem komið er.
VANTAR ÞIG LÓÐ?
Lóðir fyrir 550 íbúðir brúff tilbúimr
Miklar lóðaúthlutanir til bæjarbúa eru nú í bígerð.
innan skamms , jafnvel á þessu ári, verða lóðir tilbúnar
fyrir 200—250 íbúðir í Háaleiti.
Lóðir fyrir um 200 íbúðir verða tilbúnar á næsta ári við
Elliðárvog.
Lóðir fyrir um 100 íbúðir við Kleppsveg verða einnig
tilbúnar á næstunni. Samtals eru þetta lóðir fyrir um
550 íbúðir.
Frá þessu skýrði borgarstjóri
á borgarstjórnarfundi i gær.
Mun þetta kærkomnar fréttir
þeim mörgu sem'enn hafa ekki
fengið lóð úthlutað. Þá gat
borgarstjóri þess einnig að gera
mætti ráð fyrir því að á næsta
ári mætti hefja byggingafram-
kvæmdir norðanmegin í Foss-
voginum og í Breiðholtshverfi.
Þá verður og Selásinn og Ár-
bæjarblettir skipulagðir. Þegar
þetta hefir verið gert, á næsta
ári er séð fyrir byggingaþörf
næstu 5 ára að því er lóðir varð
ar. Er byggingasvæði þetta allt
fyrir 12_15.000 manns.
Nýiar kartöfíur í
Nýjar íslenzkar kartöfl-! verzlanirnar. — Kartöflur
ur verða til sölu í búðunum munu nú ekki vera niður-
í dag. Grænmetissalan átti greiddar, og er verðið það
von á fyrstu sendingunni
að austan eftir hádegi í
dag, og verður kartöflun- lausasölu.
um þá jafnharðan dreift í
sama og á ítölsku kartöfl-
unum eða kr. 8.50 kg. í
hafa ekki feng-
izt í nokkra daga, þar sem þær
útlenzku hafa allar selzt upp.
Segja kunnugir að aldrei fyrr hafi
verið meiri sala í kartöflum, og
það þrátt fyrir þá verðhækkun,
sem varð á ítölsku kartöflunum
frá hinum niðurgreiddu. Síðastliðið
ár entust þær ítölsku lengur en nú,
aðallega vegna þess að gæðin voru
mun lakari í fyrra.
Nýjar íslenzkar kartöflur eru
fyrr á markaðnum nú en áður, og
eru það kartöflur úr sandjörðinni
í Þykkvabænum og við Eyrar-
bakka. Var þar sáð um miðjan
maímánuð. Kartöfiur úr uppsveit-
unum, Rangárþingi og Flóanum
munu hins vegar vera nokkuð
seinna á ferðinni vegna kalsins í
vor.
Verðið hefur verið auglýst og
mun kílóið í lausasölu verða eins
og fyrr er sagt, kr. 8.60 og 5 kg.
pokinn kr. 43.00. Verða þessar kart
öflur ekki niðurgreiddar.
Björgunaræfing
1 sólskininu i gær var haldinj
björgunaræfing í Nauthólsvík,
fyrir flugáhafnir hjá Loftleiðum.
Æfingar sem þessi eru haldnar
ekki sjaldnar en einu sinni á ári
fyrir hverja áhöfn.
Á æfingum þessum er æft
hvernig setja skal út gúmmíbát
og blása hann upp. Bátar þess-
ir taka margt fólk. Voru um tíu
manns í bátnum og rúm fyrir
fieiri. Þá er settur út grænn lit-
ur, sem er til þess gerður að
fæla burt hákarla, þar sem hætta
er á þeim.
Hægt er að tjalda yfir þessa
báta og er þá fólk vel varið, sem
í þeim er. Er sagt að þeim eigi
ekki að geta hvolft.
Þá er einnig æft að skjóta upp
neyðarblysum og meðferð á litlu
senditæki, sem taka á með í bát-
inn ef slys kemur fyrir.
| Framhald á bls. 5.
Allmiklar væringar eru
lú ineö mönnum vegna
veiðinnar í vatnsdalsá. Fyr
ir nokkrum dögum var frá
því skýrt hér í blaðinu, að
leigutaki árinnar Guðmund
ur Ásgeirsson hefði kært
prófastinn í Steinnesi sr.
Þorstein Gíslason fyrir ó-
löglegar netaveiðar í ánni.
Nú hefur það verið skýrt
að hér var um að ræða sil-
ungsnet, en landeigendur
hafa heimiíd tfl að leggja
þau í ána. Því er deilan að-
eins um það, hvort netin
liafi verið lögð of þétt.
O Leigutaki nú sakaður
Hins vegar hefur nú annað
gerzt í málinu, formáður veiðifé-
lags bænda í Vatnsdal hefur sak-
að leigutakann um brot á samn-
ingi og brot á veiðilöggjöf, þar
sem helmingi fleiri stengur hafi
verið í laxi en leyfilegt sé.
Það er tekið fram f samning-
um, að þrjár stengur megi vera í
laxi samtímis og þrjár í silungi.
En nú telur formaður veiðifélags-
ins, Guðmundur í Ási, að það
hafi komizt upp, að veiðisvæðum
í ánni var þannig skipt, að hægt
var að moka upp laxi með sil-
ungsstöngunum.
O Lax fæst a Skriðuvaði
Silungssvæðin eru aðallega í
Flóðinu í Vatnsdal og í Húnavatni.
Þar bítur Iax ekki á og því hefur
verið heimilað að veiða þar á þrjár
silungsstengur. En nú heldur for-
maður veiðifélagsins því fram, að
Guðmundur Ásgeirsson leigutaki
hafi skipt veiðisvæðum þannig, að
hið svokallaða Skriðuvað, sem er
eitt bezta laxveiðisvæðið fylgi
Flóðinu og þannig hafi silungs-
veiðimennirnir getað yeitt laxinn.
Mun þetta hafa komizt upp um
síðustu helgi, þegar Sveinn Kjarval
og nokkrir arkitektar voru þar að
veiðum. Þeir höfðu gert listilega
gerðan uppdrátt af ánni og mark-
að inn á hana veiðisvæðin. Sýndu
þeir bónda í Vatnsdalnum það og
varð hann undrandi þegar hann
sá þessa skiptingu, þar sem öruggt
laxveiðisvæði var látið fylgja sil-
ungsveiðisvæðinu.
0 Til veiðimálastjóra
Sé þetta rétt er hér fyrst og
fremit um að ræða samningsbrot
og hefur þetta ekki verið kært
fyrir sýslumanni á Blönduósi, held
ur hefur veiöimálastjóra Þór Guð-
jónssyni verið gert aðvart um það.
Mun hann ætla að fara norður
nú um helgina til 'að kynna sér
ágreiningsatriðin.