Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1992, Blaðsíða 27

Tölvumál - 01.04.1992, Blaðsíða 27
Apríl 1992 Að markaðssetja hugvit erlendis Pétur Guðjónsson, Marel hf. Fyrirtækið Marel hf. framleiðir vogakerfi sem samanstanda af rafeinda- og hugbúnaði. Það eru nálægt tíu ár síðan byrjað var að huga að útflutningi og er hann nú yfir 80% af framleiðslunni. Þar sem langt er (á íslenska vísu) síðan byrjað var á þessum úflutningi, hefur auðvitað verið fallið í flestar gryfjur, sem hægt er að falla í og langar mig að segja frá sumum þeirra svo að kannski megi af þeim læra. Sérstaða söluvöru Marel er öflugur hugbúnaður sem í réttu pakkningunni leysir ákveðin afmörkuð verkefni, aðallega í fiskiðnaði. Þróaðurfiskiðnaður er tiltölulega smár í heiminum, ef litið er á aðra markaði, sem há- tæknifyrirtæki geta leitað á. Hafa stóru fyrirtækin því mjög tak- markaðan áhuga á að leysa þessi verkefni. Vandamálið, sem einnig snýr að þeim, er að þessar lausnir krefjast mikillar þekkingar á fiskiðnaðinum og er erfitt að fjöldaframleiða eina lausn sem hentar öllum notendum. Þarna eru einmitt okkar tækifæri - þessir hornmarkaðir. Það var ákveðið hjá Marel að byrja á að markaðssetja vörurnar í einu landi fyrst. Varð Noregur fyrir valinu, þar sem skilyrði eru sem líkust og á okkar heimamark- aði. Þetta held ég að gæti verið regla númer eitt - fara á eitt mark- aðssvæði fyrst og sinna því vel. Eftir að ljóst var í Noregi, að vörur okkar áttu erindi á erlenda grund, var ákveðið að berja á dyr í Kanada, vera stórhuga og stofnadótturfyrirtæki. Vitað var, að fiskiðnaðurinn í Kanada var rnikill, meiri en hér. Stærsta fyrirtækið í fiskiðnaðinum í Kanada, sem á margar verk- smiðjur, hafði keypt tækjabúnað í hluta einnar verksmiðju og var með stór orð um að vogarvæða þær allar að fullu á skömmum tíma. Var þetta ein af aðal- forsendunum fyrir stofnun dóttur- fyrirtækisins. Eins og nærri má geta er enn ekki búið að fullvogarvæða hjá þeim og hitt stórfyrirtækið, sem átti að vera handan hornsins, hefur varla enn byrjað að kaupa búnað. Það er auðvitað tómt reynsluleysi og gildra, sem flestir falla í í byrjun, að trúa stórum orðum viðskipta- vina, sem eru að slá um sig. Annað verra, sem við höfum þó reynt að forðast, en of oft sést, er þegar fyrirtæki hlaupa með þessi sömu orð í fjölmiðla. Betra er að vera kominn með samninginn í hendurna og fara þá í blöðin. Við fórum tveir "Marel-menn" til Kanada með fjölskyldur okkar. Fór ég vegna tæknilegs bakgmnns míns, en sem rafmagnsverk- fræðingur hafði ég unnið við hönnun rafeindabúnaðar voganna svo og við forritun vigtarkerfis- ins. Hinn aðilinn, Sverrir Guðmundsson fisktæknir, hafði mikla þekkingu á iðnaðinum sem selja átti tækin í. Marel gat ekki leitað ráða hjá neinum aðila hér á landi hvernig standa ætti að svona málum, því að mér vitandi hafði ekki verið stofnað dótturfyrirtæki tækni- fyrirtækis erlendis áður og mjög takmarkað flutt út af hátæknivöru. Varþví rennt ansi blint í sjóinn og látinn slagur standa. Var það kannski eins gott, því hefði verið reiknað út hvað dæmið kostaði og hvenær það færi að skila alvörutekjum á móti, hefði senni- lega aldrei verið farið af stað. Það fyrsta sem gerði okkur veru- lega erfitt fyrir, var að tækin þurftu að uppfylla ákveðnar kröfur frá hinu opinbera. I fyrsta lagi tók um sex mánuði að fá þau prófuð og síðan uppfylltu þau ekki allar kröfurnar og þurfti að endurhanna 27 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.