Tölvumál - 01.06.1993, Blaðsíða 20

Tölvumál - 01.06.1993, Blaðsíða 20
Júní 1993 Að hugsa lengra en höndin nær Anna Kristjánsdóttir, prófessor við Kennaraháskóla íslands og varaformaður SÍ Vorið 1992 fóru Fræðsluskrif- stofa Reykjavíkur og Skóla- skrifstofa Reykjavíkur fram á það við Skýrslutæknifélag íslands, Islenska menntanetið og 3F-Félag tölvukennara að þau tilnefndu fulltrúa í ráðgjafarnefnd vegna tölvuvæðingar grunnskóla í Reykjavík. Verkefni nefndarinnar hefur einkum varðað fræðslu fyrir kennara og annan stuðning sem að gagni mætti koma fyrir kennara og nemendur í nýtingu tölvubúnaðarins. Undirrituð er fulltrúi Skýrslutæknifélags Islands í þessari nefnd. Það sem hér fer á eftir er skrifað að afloknu fyrsta starfsári nefndarinnar og vonandi jafnt erindi til skóla- manna og þeirra sem áhuga hafa á nýtingu tækninnar í sem fjöl- þættustum farvegi. A liðlega hálfu ári hefur fjölmargt gerst og margir kennarar hafa unnið að málinu. Lífleg umræða hefur komið upp á íslenska menntanetinu (ISMENNT) og er gaman að lesa jafnt kveðjur nemenda og umræður kennara. Þess má líka sjá merki að í skól- unum láta fleiri sig þessi mál varða en áður og á það ekki síður við á barnastigi en ungl- ingastigi. Tölvunotkun er nær því að tengjast eðlilega náminu í skólanum en verið hefur lengst af. En hve langt eigum við í land að slík tenging náist fullkomlega og við getum notað tæknina til að bæta námsaðstæður í skólum? Þegar nefnd á vegum Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) rannsakaði íslenska skólakerfið fyrir nokkrum árum kom fram í skýrslu hennar að nefndin hefði m.a. komið í skóla sem nýlega hefði eignast tölvu- búnað og orð skólastjórans voru á þann veg að nú væru tölvurnar komnar og þá þyrfti að fara að hugsa um hvernig menn gætu notað þær. Annað hvort mátti túlka þetta dæmi nefndarinnar á þann veg að Islendingar væru Tölva er ekki bundin einu notkunarsviöi heldur býr í henni hæfileikinn til að bregða sér í allra gerða kvikindi tækjafíknir eða lítið fyrir að skipuleggja til langs tíma hvað þeir vildu geranemahvorttveggja væri. En þurfum við að vinna þannig að tölvuvæðingu mennta- kerfisins? Hvaða hlutverk leikur tölvu- búnaður í námi? I umræðum undanfarinna áratuga hafa menn sveiflast milli þess að segja að tölvur leysi kennara af hólmi yfir í það að segja að tölvur séu bara ósköp hversdagsleg tæki eins og ritvélar og myndvarpar. Hvort tveggja má að vissu leyti til sanns vegar færa en allt fer það eftir því hvaða möguleika við skynjum í tölvubúnaði og hvaða augum við lítum á nám og kennslu. Hugbúnaður getur auðveldlega miðlað til nemanda fróðleik, lagt fyrir hann fremur þröngar spurn- ingar og brugðist við á ýmsan hátt eftir því hvert svar nemandans hefur verið. Og það sem meira er, þetta getur vel skrifaður hugbúnaður gert á þolinmóðan og hvetjandi hátt. Hugbúnaður getur líka haldið utan um árangur nemandans. Hann getur fylgst með framförum nemandans, borið hann saman við aðra nemendur eða nemendahópa, haldið saman upplýsingum um bekki o.s.frv. Hér er vissulega um að ræða verk sem kennarar telja hluta starfa síns og oft allstóran hluta. Góður hugbúnaður er þó farinn að gefa talsvert meiri möguleika á ýmsum sviðum. Þess er kostur jafnvel í venjulegri ritvinnslu að leika sér með mál og þá ekki síst stílgerð. Nýútkomið hefti norr- æna ritsins Nytt om data i skolan fjallar um tölvunotkun í móður- málskennslu og byggist á því sem fram kom á norrænu ráðstefnunni um sama efni vorið 1992. Þar er sagt frá tölvunotkun í skriftum og lestri og frá nýtingu gagna- safnsforrita, umbrotsforrita, tölvuleikja og rafpósts í móður- málsnáminu. Og í grein Dóru Pálsdóttur sem starfar hjá starfsþjálfun fatlaðra segir hún frá því sama sem hún greindi frá á ráðstefnu hér sumarið 1991, þ.e. hvernig nota má ritvinnslu til að styrkja nemendur með lestrar- og skriftarörðugleika. Allt eru þetta dæmi um hvað tölvu- búnaður gefur okkur kost á að gera umfram það sem áður hefur verið unnt. Og þetta dæmi varðar aðeins eina grein grunnskólans. Hliðstæð dæmi eru til um þær allar allt frá stærðfræði til íþrótta, 20 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.