Tölvumál


Tölvumál - 01.09.1993, Blaðsíða 14

Tölvumál - 01.09.1993, Blaðsíða 14
September 1993 Ávarp flutt í afmælishófi Skýrslutæknifélagsins, 6. apríl 1993 Jóhann Gunnarsson (Eftirfarandi er tekið saman mánuði eftir samkomu þessa sam- kvæmt minnisblöðum sem ég hafði að styðjast við. Sé textinn ekki nákvæmlega eins og mér fórust orð bið ég lesendur að taka trúanlegt að þetta vildi ég eftir á sagt hafa.) Góðir félagar! A þessari 25 ára afmælishátíð er margs að minnast. Þessu félagi hefur tekist að verða og vera sjálfsagður og ótvíræður samnefnari fyrir þá margbreyttu atvinnugrein sem upplýsinga- tæknin er orðin. Oddur Benediktsson prófessor, heiðursfélagi og fyrrverandi for- maður rifjar upp mörg atriði úr sögu félagsins í ítarlegri afmælis- grein í Morgunblaðinu í dag. [6.4.1993]. Má þar glöggt sjá hversu víða komið hefur verið við og að mörgu unnið. Mig langar að minnast á tvo þætti sem hafa verið áberandi í starfinu alla tíð og báðir verið mér hugleiknir löngum. Annarsvegar er ég að hugsa um stöðlunarmál og hinsvegar það sem kalla mætti sambúð íslensks máls og gagnavinnslutækninnar. Þessir málaflokkar eru reyndar tengdir þegar nánar er að gáð. Fyrstu skýrsluvélarnar voru illa búnar til að birta texta. Beita þurfti alls konar brögðum til að rita mannanöfn með frambæri- legum hætti. Reyndar er réttara að segja að lengst af hafi ritháttur nafna í skattskrám, íbúaskrám, á orkureikningum og víðar ekki verið með frambærilegum hætti. (frh. affyrri síðu) En við megum ekki gleyma því að þróun annars staðar í heim- inum hefur einnig áhrif á okkur hér og því er mikilvægt að fy Igjast með á sem flestum vígstöðvum. I þessu skyni er Skýrslu- tæknifélagið aðili að norrænum samtökum skýrslutæknifélaga, alþjóðasamtökum skýrslutækni- félaga og félagið er að ganga í evrópusamtök skýrslutækni- félaga. Með þessum hætti, og aðild okkar að Fagráði í upplýs- ingatækni, teljum við tryggt að við höfum fingurinn á því helsta sem er að gerast á þessu sviði í heiminum. í öllum þessum sam- tökum eru staðlamál ofarlega á baugi en þau tel ég vera einn af hornsteinunum í starfi félagsins okkar á komandi tíð. En eins og segir í góðri bók þá er maður manns gaman og ekki megum við gleyma okkur um of í því hvað við ætlum að gera fyrir greinina okkar. Félag eins og Skýrslutæknifélagið byggir á áhuga félaganna og honum er viðhaldið með hæfilegri blöndu af skemmtun og fræðslu. Nú hefur árshátíð félagsins verið haldin í nokkur ár við vaxandi vinsældir. Fleiramágera íþessum dúr og gjarnan blanda þá saman fræðslu og skemmtun. Þegar grein birtist um það í MBI fyrir mörgum árum að ég væri orðinn formaður Skýrslutækni- félagsins spurði tengdamóðir mín konu mína hvaða félag þetta skýrsluvinafélag væri sem ég væri orðinn formaður fyrir. Við ættum að stefna að því að félagið okkar verði sannkallað skýrslu- vinafélag þar sem góðir félagar og vinir vinna sameiginlega að góðum málum og hafa gaman af því! Gleðilega hátíð!! Halldór Kristjánsson, for- maður Skýrslutœknifélags Islands er verkfrœðingur að mennt og rekur eigið fyrirtæki, Tölvu- og verkfrœðiþjónustuna. 14 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.