Tölvumál


Tölvumál - 01.10.1994, Blaðsíða 12

Tölvumál - 01.10.1994, Blaðsíða 12
Október 1994 Ahrif tæknivæðingar á námsgreinar Dæmi um námskeið í grunnmenntun kennara Eftir Önnu Kristjánsdóttur Þótt tölvunotkun sé þegar orðin talsverð í íslenskum skólum ber hún þess víða greinileg merki að standa utan námsgreinanna. Hefðbundnar hugmyndir um hvað skuli kennt og hvernig það skuli gert ganga oft þvert á þá mögu- leika sem tæknin gefur. Það er mikið verk fy rir kennara að hugsa á nýjan hátt um námsgreinarnar sem þeir kenna og hlutverk sjálfra sín í nýju umhverfi. Þetta við- fangsefni má ekki vanmeta og þarf hvarvetna að gefa því gaum og styðja kennara og kennara- nema. Undanfarin 7 ár hefur verið að finna innan valgreinarinnar stærð- fræði í Kennaraháskóla Islands námskeiðið Ahrif vasareikna og tölvubúnaðar á stærðfræði- nám. Þetta námskeið er kennt á 2. ári námsins, 1 eining á haustönn og 1 á vorönn og er sjötti hluti þess sem kennt er í valgrein. Hér á eftir er að finna dæmi um það sem fengist hefur verið við á þessu námskeiði. Það hefur að sjálfsögðu þróast á þessum árum og áherslur breyst milli ára en grundvallarmarkmiðið með námskeiðinu er þó hið sama og í upphafi: Að gefa nemendum í stærð- fræðivali tækifæri á að kynnast fjölbreyttum notkunarmögu- leikum vasareikna og tölvu- búnaðar á öllum stigum grunn- skólans og víðar ef ástæða er til. Að beina sjónum nemenda að því hvaða breytingu tækni- búnaðurinn hefur í för með sér í vali inntaks í stærðfræðinámi en þó ekki síður í vinnu- brögðum. Að gera nemendur sjálfbjarga í að halda þekkingu sinni við á þessu sviði og að bæta í sífellu við sig þekkingu og reynslu. Dæmi um það sem gert hefur verið á námskeiðinu og nokkrar spurningar sem glímt hefur verið við. Vasareiknar: 1 Hvað er átt við með því að nota vasareikna til að læra stærðfræði? 2 I hvaða mæli og á hvern hátt eru vasareiknar notaðir í skól- um hérlendis? 3 Eigavasareiknarerinditilbyrj- enda á skólagöngu? Kennsluforrit: 1 Hvaða kennsluforrit í stærð- fræði eru til á íslensku? 2 Hvernig er hægt að nota þessi kennsluforrit í samhengi við annað nám? 3 Hentaeinhverkennsluforrittil notkunar fy rir hei I an bekk sam- tímis? Lógó: 1 Hvaða möguleika gefur lógó í ýmiss konar stærðfræðinámi? 2 Hvernig er unnt að nota lógó þannig að nemandinn ráði ein- hverju um viðfangsefni og leiðir en nái samt valdi á öfl- ugum hugtökum í stærðfræði? Töflureiknar: 1 Hvernig er töflureiknir upp- byggður og hvaða möguleika gefur hann? 2 Er hægt að nota töflureikni til að læra stærðfræði, ekki aðeins til að leysa stærðfræðileg verk- efni? 3 Hvegamlirnemendurgetafært sér töflureikni í nyt? Tölvusamskipti: Nemendur hafa lengi fengið kynningu á tölvusamskiptum. Nú fá þeir notendanúmer sem notast bæði til ákveðinna samskipta inni í náminu og einnig þegar þeir eru úti á vettvangi í æfingakennslu. Upplýsingar í rituðu máli og á myndböndum: 1 Hvað segja heimildir um áhrif vasareikna og tölvubúnaðar á stærðfræðinám? 2 Hvað sýna myndbönd um möguleika á þessu sviði? Tenging námskeiðsins við vinnu með börnum og unglingum hefur verið með ýmsu móti. Oft hefur verið sett upp sérstakt nám- skeið í KHI fyrir börn/unglinga sem nemar annast undir stjórn. Með því móti hefur stundum verið unnt að tengja kenningar og út- færslu nokkuð vel saman. Ymis verkefni eru unnin með vasareikna, kennsluforrit, lógó og töflureikna. Heimildaritgerð er skrifuð um áhrif vasareikna og töl vubúnaðar á stærðfræðinám og velur hver nemi, auk almennrar umfjöllunar, eitthvert sérsvið. Sem örfá dæmi um það hvað nemar hafa glímt við má nefna: * Þrautalausnir með vasareikn- um og tölvuforritum. * Tölvusamskipti með stærð- fræðinám í huga. 12 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.