Tölvumál


Tölvumál - 01.10.1994, Blaðsíða 50

Tölvumál - 01.10.1994, Blaðsíða 50
Október 1994 Alþjóðlegt samstarf um tölvunotkun í námi International Federation for Information Processing (IFIP) Eftir Önnu Kristjánsdóttur International Federation for InformationProcessing (IFIP) eru alþjóðleg samtök þeirra sem nýta tölvutæknina á einhverju hinna fjölmörgu sviða sem hún hefur sett svip sinn á. Skýrslutæknifélag ísland á aðild að IFIP. Starf IFIP fer að mestu fram í svokölluðum tækninefndum og fjallar ein þeirra um menntamál. Skýrslutækni- félag Islands á fyrir hönd Islands aukaaðild að IFIP. Starf IFIP fer að mestu leyti fram innan tækninefndanna og vinnuhópa þeirra. Innan mennta- málanefndar eru 6 vinnuhópar. Allir fjalla þeir um áhrif og mögu- leika upplýsingatækni á afmörk- uðum sviðum skólamála. Við- fangsefni þeirra eru sem hér segir: * tölvunotkun í námi á unglinga- stigi og í framhaldsskólum * tölvunotkun í námi á háskóla- stigi * rannsóknir á tölvunotkun í menntamálum * tölvunotkun í starfsmenntun * tölvunotkunínámiábamastigi * fjarnám með stoð tæknibún- aðar AnnaKristjánsdóttirprófessor við Kennaraháskóla íslands á sæti í tækninefnd IFIP og fyrstnefnda hópnum og Lára Stefánsdóttir kennslustjóri íslenska mennta- netsins í hinum síðastnefnda. Þeim, sem hefðu áhuga á að kynna sér starf hópanna, er velkomið að snúa sér til þeirra. Vinnuhópar halda reglulega vinnuráðstefnur þar sem þátttakendum gefst kostur á að bera saman bækur sínar um það sem unnið er að í mismunandi löndum og á mismunandi stöðum. Ein slík ráðstefna hefur verið haldin hér á landi; "Educational Software at Secondary Level - in and out of School" var haldin í Kennaraháskóla Islands sumarið 1989. Hana sóttu m.a. fjölmargir erlendir sérfræðingar sem eru í fararbroddi í löndum sínum. Á fimm ára fresti stendur IFIP fyrir mjög stórum ráðstefnum, World Conference on Computers in Education. Nú nálgast sú næsta, WCCE 95, en hún verður haldin í Birmingham í Bretlandi dagana 23.-28. júlí 1995. Fyrirhugað er að skipuleggja hópferð frá Islandi á þessa ráðstefnu og verður hún kynnt nánar innan skamms. WCCE 95 verður með mjög fjölbreyttri dagskrá sem bæði er ætluð þaulreyndum sérfræðingum á þessu sviði og einnig þeim sem minna þekkja til mála og eru nýfarnirað gefaþeimgaum. Yfir- skrift ráðstefnunnarer "Liberating the Leamer” sem íslenskir áhuga- menn geta nú spreytt sig á að þýða á lipran og ekki of háfleygan hátt. Þemu ráðstefnunnar eru alls 26 og allt frá stefnumörkun landa yfir í að kunna að nota þekkingu sem auðlind, frá umtjöllun um kostnaðarmál yfir í framtíðarsýn, frá námsmatsumfjöllun yfir í jafn- réttismál og að sjálfsögðu einnig þemu eins og kennaramenntun, fjarnám, gervigreind, hugbúnaður o.fl. o.fl. Reynt hefur verið að finna viðfangsefni sem geta höfð- að til kennara innan og utan form- legra skólakerfa, sérfræðinga í upplýsingatækni, stefnumótenda, námskrárgerðarfólks og náms- efnishöfunda, seljenda og þeirra sem leiðbeina í sérhæfðri starfs- menntun. Þeir sem hafa áhuga á að sækja WCCE 95, eða fylgjast með undirbúningi, geta haft samband við Önnu Kristjánsdóttur (91-633855 eða ak@khi.is) Anna Kristjánsdóttir er samstarfsfulltrúi Skýrslu- tœknifélagsins viö IFIP Punktar... Vélmenni Nýverið var búið til vél- menni í Bretlandi sem er sér- hæft í því að þvo glugga að utan í háhýsum. Það hefur handlegg og úlnlið sern gerir því kleift að þvo gluggana vel og örugglega. Hér á landi hefur gluggaþvottur háhýsa ekki verið rnikið vandamál enda ekki mörg hús það há að vandasanrt sé að ná til efstu glugga. En erlendis hefur gluggaþvottur háhýsa lengi verið erfiður enda ekki allir sem geta hangið utan á 72. hæð. 50 - Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.