Vísir - 02.10.1962, Blaðsíða 5

Vísir - 02.10.1962, Blaðsíða 5
VÍSIR . Þriðjucjagur 2. október 1962. 5 ikil fjölgun og fóiksflutn- ingar til Ólafsfjarðar Þannig hefur brugðið við á síð- ustu tveimur til þremur árum, að fólksflutningar frá Ólafsfirði hafa stöðvazt og f staðinn hefur komið aðstreymi fólks til bæjarins. Hefur það bæði gerzt, að fólk sem flutt var frá Ólafsfirði hefur snúið þangað aftur og svo hefur fleira fólk komið til bæjarins. Þessi gleðilegu umskipti hafa orðið eftir að fólki hafði fækkað í Ólafsfirði í meir en áratug. Breyt- ingin stafar auðvitað af því að at- vinna hefur aukizt á staðnum. Leiðrétting í frétt frá Siglufirði í síðustu viku var sagt að barnsfæðingar væru 50 á móti hverjum einum sem andaðist. Hér er um misskiln- ing að ræða, átti að standa þar, að árlega fæddust þar 50 umfram dána. Eins kom nokkur misskiln- ingur fram þar sem rætt var um þýðingu bættra samgangna til Siglufjarðar. Bættar samgöngur eru aðkallandi fyrir auknar fram- farir, en hins vegar er það móður- sýki að halda þvf fram, að ekki sé hægt fyrir menn að flytja til Siglu- fjarðar fyrr en betra vegarsam- band sé komið á. Mississippi — Fiamhald af 16. síðu: Og það Var skotið, tveir menn létu lífið. Síðan lét herliðið til skarar skríða og dreifði mannfjöldanum með táragasi. Það var þannig hernaðarástand í borginni og óhugnanlegt að sjá hinn æsta múg og herliðið í full- um herklæðum. En Bandarikin og dómur hæstaréttar sigruðu. Þar með er málið þó ekki úr sögunni. Það Verður erfitt fyrir svertingjann að stunda nám sitt í háskóla, þar sem hann er umsetinn fjandmönn- um og jafnvel verður setið um líf hans. Og fyrir Kennedy forseta getur þetta orðið afdrifaríkt. í hönd fara kosningar í Bandaríkj- unum og enginn véit hvaða afleið- ingar það getur haft, að demo- kratar munu tapa e. t. v. milljónum atkvæða í Suðurríkjunum. Skipstjóranómskeið á Siglufirði Á Siglufirði stendur nú yfir námskeið fyrir hið minna fiski- mannapróf. Námskeið þetta sækja 15 menn, flestir frá Siglufirði. For- stöðumaður þess er Guðmundur Arason skipstjóri. Auk hans kenna þar Sigurður Sigurðsson héraðs- læknir og Flosi Sigurbjörnsson magister. Kennsla stendur yfir frá kl. 5 síðdegis til miðnættis, svo að þátttakendur geti stundað vinnu sína samhliða náminu. Námstím- inn er frá 9. sept. til áramóta. í undirbúningi er að koma hér upp sams konar námskeiði fyrir vél- stjóra. Tilkynnt hefir verið í Vientiane, að búið sé að láta lausa alla póli- tíska fanga. Er þetta í samræmi við samn- inga þá, m gerðir voru um hlut- leysi landsins. Samkvæmt upþlýs- ingum, sem stjórnin hefir látið uppi, er um 3000 manns að ræða, konungssinna og kommúnista. En vegna þessa aðstreymis hafa nú skapazt mikil húsnæðisvand- ræði í Ólafsfirði þótt íbúðabygg- ingar séu óvenjulega miklar þar. Þess vegna réðist bæjarstjórnin í það að hafa forgöngu um bygg- ingu íbúðarhúsa en jafnframt að leita upplýsinga og ráða hjá Rann- sóknarráði ríkisins, sem m. a. vinnur að því að lækka byggingar- kostnaðinn. Hefur bærinn hafði byggingu raðhúss og undirbúið byggingu annars og notið við það fyrirgreiðslu Skúla Norðdahls arki tekts. Telja þeir að það sé sýnt að lækka megi verulega byggingar- kostnað með ýmsum ráðum m. a. með notkun hinna svonefndu tengimóta sem Agnar Breiðfjörð hefur tekið að framleiða. Yfirdýrulæknir — Framhald af bls. 1. nautgriparæktarráðunautur sömdu frumvarp að þessum lögum, að frumkvæði ráðherra. 1 frumvarpið voru sett öll öryggisákvæði, sem þekkt eru, til varnar því að smit- andi búfjársjúkdómar bærust með holdanautasæðinu til landsins, og fékk yfirdýralæknir komið öllum þeim ákvæðum inn í frumvarpið, er hann taldi þörf á í þessu sam- bandi. En til þess að ráðherra gæti lát- ið þessi lög, sem vissulega eru ný- mæli, koma til framkvæmda, þurfti samþykki yfirdýralæknis og for- stöðumanns Tilraunastöðvarinnar að Keldum, en yfirdýralæknir gegn ir einnig þvf embætti síðan Björn Sigurðsson Iæknir lézt. Þegar ráðu- neytið leitaði síðan samþykkis yf- irdýralæknis um stofnun sóttvarn- arstöðvarinnar, samkvæmt hinni nýju löggjöf, synjaði hann um sam- þykki sitt. Vitað er að Búnaðarfé- lag íslands og Búnaðarþing hafa haft mikinn áhuga á þessu máli, og augljóst er að synjun yfirdýralækn- is fer í bága við stefnu landbúnað- arráðherra, sem hafði beitt sér fyr- ir þessari Iagasetningu. Holdanautabú er rekú í Gunn- arsholti á Rangárvöllum og rennur arðurinn af því til Sandgræðslu rík- isins. í fyrra voru 200 holdanaut á þessu búi, en í haust ætlar Páll Sveinsson sandgræðslustjóri að fjölga þeim upp í 230. Hann hefir manna mest beitt sér fyrir að þessi búgrein yrði tekin upp hér á Iandi og hefir mikla trú á gagnsemi henn ar fyrir íslenzkan landbúnað. Menntaskólinn — Framhald at bls. 1. Menntaskólinn verður þv£ á þrem stöðum: 1) í gamla hús- inu, 2) í Fjósinu og 3) f Þrúð- vangi. Skólinn missti stofur þær sem hann hafði í KFUM, vegna þess að félagsskapurinn þurfti að nota þær til eigin þarfa. 18 NÝIR KENNARAR. Breytingar á kennaraliði urðu verulegar. Tólf kennarar hættu kennslu en 18 komu í staðinn. Þá hafa verið skipaðir sjö fasta- kennarar við skólann: Bjarni Guðnason cand. mag. og Eirík- ur Hreinn Finnbogason til að kenna íslenzku, Friðrika Gests- dóttir B. A. til að kenna ensku, Sigríður Magnúsdóttir lic-es- lettres í frönsku, Þórður Örn Sigurðsson M. A. í latínu og ensku og Skarphéðinn Pálma- son menntaskólakennari í eðl- is- og stærðfræði. Vegna þrengsla í skólanum varð að takmarka nokkuð og breyta tilhögun á kennslu í söng og leikfimi. Verður leikfimi að- eins tvisvar í viku f stað þrisvar áður, en í staðinn kemur einn tími vikulega í sundi. Að lokum sagði rektor m. a.: „Kæru nemendur. Þið komið nú aftur hirigað til náms eftir langt og vonandi happasælt og arðsamt sumarleyfi. Erlendir skólamenn verða steinhissa, þeg ar þeir heyra um þetta langa sumarleyfi hér, 4 mánuði fyrir flesta nemendur. Svo langt sumarleyfi þekkist hvergi, þar sem ég veit til. Samt tel ég það eiga rétt á sér hér vegna sér- stakra staðhátta, enda gottifyr- ir unga menntamenn að kynnast hinum ýmsu atvinnugreinum landsmanna. En hins vegar ligg- ur í augum uppi, að til þess að geta keppt við hliðstæða erlenda skóla, verða nemendur þessa skóla að leggja miklum mun meira að sér við námið en fé- lagar þeirra erlendis. Þeir mega ekki halda, að þeir séu svo miklu gáfaðri en þeir. Námið hér byggist miklu meir hér en erlendis á heimavinnu. Þess vegna er afaráríðandi að búa sig undir tímana, svo að námið komi að fullu gagni, svo og auðvitað að sækja skólann vel.“ Leiklistarskóli Þjóð- leikhússins settur Leiklistarskóli Þjóðleikhúss- ins var settur s.l. mánudag. Inntökupróf í skólann fóru fram fyrir nokkru og stóðust 12 nemendur prófið og hefja þeir nú nám í skólanum. Námstími er tvö ár. Kennarar við skólann eru leikararnir: Haraldur Björns- son, Gunnar Eyjólfsson, Klem- enz Jónsson, Jón Sigurbjörns- son, Kristín Magnúsdóttir og Baldvin Halldórsson, en auk þeirra kenna við skólann pró- fessorarnir Steingrímur J. Þorsteinsson og Símon Jóhann Ágústsson. Skólastjóri skólans er Guðlaugur Rósinkranz, þjóð- leikhússtjóri. Brot úr graf'ik i tiu ár Fyrir helgi opnaði Bragi Ásgeirs- son sýningu í Snorrasal að Laugav. 18. Á sýningunni eru eingöngu graflistarmyndir, sem unnar hafa ristur, sáldþrykk, Iitografíur, radí- eringar, agvatint og teikningar. Samtals eru verkin á sýningunni um 50 talsins og öll til sölu. Sýn- ingin verður opin kl. 14 — 22 um verið á síðastliðnum 10 árum, tré- tíu daga skeið. Verkleg kennsla verður mjög aukin að Hólum Búnaðarskólinn á Hólum í Hjalta- dal verður settur 15. október og munu verða í honum um 30 nem- endur. Hinn nýi skólastjóri Ámi G. Pétursson hefur skýrt Vísi svo frá í stuttu samtali, að hann hygg- ist nú leggja meiri áherzlu en áður á fasta og aukna kennslu í verk- legum efnum. Það er m.a. ætlunin að hafa fasta kennslu í búsmiðum og vélaviðgerðum og meðferð véla í allan vetur. Fastur kennari hefur verið ráð- inn í búsmíðum og er það bygg- ingameistari Sigurður Haraldsson frá Hellu. Hann er einnig kunnur hestamaður og mun liann einnig taka að sér kennslu í tamningu. Þá verður aukin kennsla í búfiár- dómum. Skólastjórinn kvaðst vona að ekki liði á löngu þar til hægt yrði að ráða fastan kennara í vélfræði. En f vetur myndi stundakennari annast hana, Sigurþór Hjörleifsson frá Kimbastöðum. í stað þess að venja hefur verið að kenna vél- fræðina skamman tíma á haustin og taka heilu dagana í hana, verð- ur nú stefnt að því að kenna hana allan veturinn 3 tíma f viku og telur skólastjórinn, að slíkt sé miklu heppilegra, nemendur tai bannig lengri og staðbetri reynslu í vélaviðgerðum. Árni skólastjóri kvaðst bjart- sýnn um skólastarfið í vetur. Að vísu kvað hann rafmagnsmálin vera f deiglunni. Vatnsaflsstöðin sem bilaði væri enn ekki komin í lag, en búast mætti við héraðs- rafveitu næsta vor og væri kostn- aðarsamt að taka hana inn, þar sem breyta þyrfti öllu rafkerfi skólans. Árni tók við skólastjórn s.l. vetur, en hafði þá verið kenn- ari við skólann í 10 ár. Samninga- nefnd skipuð Hinn 25. fyrra mánaðar óskaði LlÚ bréflega eftir því við Alþýðu- sambandið, að samningaviðræður gætu hafizt sem allra fyrst um kaup og kjör sjómanna á komandi haust- og vetrarsíldveiðum við SV-Iand, LÍÚ hefir nú borizt svar- bréf frá Alþýðusambandinu og segir þar að ASÍ muni vinna að því að samningaviðræður geti haf- izt eins fljótt og auðið er. Útvegs- menn hafa þegar skipað samninga- nefnd af sinni hálfu. IforzBunarskólinn — Framh at 16 síðu eða fleiri en nokkru sinni fyrr. Fyrsti og annar bekkur verða fjórar bekkjardeildir hvor um sig, og þriðji og fjórði þrjár bekkjar- deildir hvor. Lærdómsdeild verðm að vanda tvær bekkjardeildir, ein í V. bekk og ein f VI. bckk. Þessi fjölgun er möguleg, þar sem neðsta hæð nýju skólabygg- ingarinnar verður tilbúin til notk- unar nú í haust. Er þar um stóran áfanga að ræða. «

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.