Vísir - 11.10.1962, Blaðsíða 8

Vísir - 11.10.1962, Blaðsíða 8
8 VÍSIR . Fimmtudagur 11. október 1962, Utgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskrifstargjald er 55 krónur á mánuði. t lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Engit nýir skattar FiárJögin hafa nú verið lögð fram og væntanlega tekst að afgreiða þau fyrir jól. Höfuðatriði þeirra er, að þrátt fyrir hækkuð út- gjöld ríkisins eru hvorki tollar né skattar hækkaðir. Því munu allir fagna. Sú staðreynd sýnir, að hér er unnið að málunum með hag borgaranna í huga. Þetta er þriðja árið í röð, sem fjárlög hafa verið lögð fram án skatta eða tollahækkana. Tuttugu árin áður var sagan önnur og verri. Þá var aðalvandamál fjármála- ráðherrans að finna upp nýja og nýja skatta til þess að mæta útgjöldum ríkisins. Að höfuðstofni bera fjárlögin því vitni, að áfram er haldið uppbyggingar- og viðreisnarstefnunni í efna- hagsmálum þjóðarinnar. Fyllstu hagsýni er gætt í út- gjöldum, en þó aukast ríkisútgjöldin yfir 300 milljónir króna. Hjá því verður ekki komizt sökum fólksfjölg- unar og því aukins kostnaðar við skólahald og al- mannatryggingar, auknar niðurgreiðslur og fleira. Að- alatriðið er, að fé hefir fengizt til þess að mæta þess- um gjöldum án nýrra skatta. Það kann aldrei góðri lukku að stýra að reka fyr- irtæki með halla og sama má segja um ríkisbúskap- inn, þótt á þeim vettvangi gildi nokkuð önnur lög- mál. Frumvarpið gerir ráð fyrir hallalausum ríkisbú- skap; að tekjuafgangur verði 13 millj. króna. Er það vel. Ríkinu ber að ganga á undan og reka hallalausan búskap. Hið gamla heilræði, að enginn má eyða um efni fram, er enn í fullu gildi. Of lengi höfum við íslendingar vanizt á bruðl og skeytingarléysi í fjármálum ríkisins. Of lengi hefir ríkið litið á borgarana sem ótæmandi uppsprettu nýrra og nýrra skatta. Við sættum okkur ekki við slík sjón- armið. Við viljum enga „jólagjöf“ líka þeirri sem vinstri stjórnin gaf þjóðinni í mynd fimm þúsund króna álags á hverja fjölskyldu. Sjóslysasöfnunin Forráðamenn sjóslysasöfnunarinnar tilkynntu nú í vikunni að í desember yrði hafizt handa um úthlut- un söfnunarfjárins. Er þar um meira en tvær milljónir króna að ræða. Framtak þeirra, sem að söfnuninni stóðu, er lofs- vert og liðsinni þeirra mikilvægt. Tæpt ár mun verða liðið frá því að hin hörmu- legu sjóslys áttu sér stað, þar til fénu verður úthlut- að. Þessi langi tíma gefur tilefni til þeirrar spurning- ar, hvort ekki sé óhagræði fyrir þá, sem fjár eru þurfi, að verða að bíða svo langan tíma eftir úthlutun. Mörg heimili voru svipt fyrirvinnu sinni í sjóslysunum og tvímælalaust hefir orðið hart í búi hjá ýmsum þeim, sem um sárt áttu að binda. Kemur ekki fyllilega til greina að hefja úthlutun söfnunarfjár fyrr en hingað til hefir tíðkazt, — jafn- vel áður en söfnuninni er að fullu lokið? Brezkir kratar ennþá klofnir Gaitskell — þótti ganga of Iangt. Flokksþingi brezka Verkamannaflokksins er nýlega lokið. Gait- skell og Harold Wilson fyrrv. formaður flokks- ins lýstu því yfir í þing- lok að flokkurinn hefði aldrei verið sterkari og sameinaðri. Þeir sem fylgdust með þinginu af áheyrendapöllum eru ekki á sömu skoðun. Enda þótt Verkamannaflokk- urinn hefði mikla möguleika á að sigra í þingkosningunum, sem fram færu í dag, þá er ekki þar með sagt að flokkurinn sé miklu samstilltari en hann var þegar allt logaði í deilum innan flokksins um stefnu flokksins f vígbúnaðar málum. Það sem nú skilur í sundur samherja er afstaðan til Efnahagsbandalags ins. Gaitskell hafði heitið því á þinginu að berjast gegn því með oddi og egg að Bretland gengi í Efnahagsb'andalagið, nema sex veldin, sem fyrir eru í banda- laginu, slaki á skilyrðum sínum. Var þessari yfirlýsingu Gait- skell fagnað gífurlega á flokks þinginu. En ekki voru allir jafn ánægðir. Nokkrum klukkustundum síð- ar reis Georg Brown varamað- ur Gaitskell, og líklegasta utan- ríkisráðherraefni Verkamanna- flokksins á fætur. og talaði f allt öðrum dúr. Hann taldi ó- hjákvæmilegt að Bretar gengju í bandalagið. Án þess að gagn- rýna Gaitskell eða ræðu hans, reyndi Brown að draga eftir mætti úr þeim áhrifum, sem ræða Gaitskell hafði haft. Orð Brown vöktu mikla athygli, því að augljóst var að hann var á allt öðru máli en Gaitskell, þótt hann legði sig allan fram við að orða skoðanir sínar á þann hátt að andstaðan kæmi ekki berlega í Ijós. Það eru einkum yngri menn innan Verkamannaflokksins og leiðtogar launþegasamtakanna, sem eru andvígir stefnu Gait- skell, Reis mikil andúðaralda gegn Gaitskell er á umræð- urnar leið. Þótti mönnum hann hafa gengið of langt í yfirlýs- ingum sínum, sem margir sögðu að þýddu ekkert annað en al- gjöra andstöðu við inngöngu Breta í Efnahagsbandalagið. Georg Brown — í andstöðu við Gaitskell. Vestur-Þjóðverjar voru meðal þeirra þjóða, sem brugðu við skjótt vegna hörmunganna i sambandi við jarðskjálftana i íran fyrir skemmstu. — Sendi þýzki flugherinn meðal annars þrjár risaflugvélar af Noratlas- gerð til Teheran fullfermdai alls konar hjálpargögnum, tjöld jm, ábreiðum, bráðabirgðahvíl- um, blóðvatni og þess háttar. Þessar deilur eiga eftir að draga dilk á eftir sér ef að líkum læt- ur. Geta þær orðið til þess að draga úr sigurmöguleikum Verkamannaflokksins í næstu þingkosningum, ef þá verður ekki búið að sætta deiluaðila. En hvað sem leið yfirlýsing- um Gaitskell og Wilsons um einhug í Verkamannaflokknum, þá var það auðvitað augljóst að hann hefði ekki verið .--vo alger, sem þeir vildu láta í ve-5ri vaka, burt séð frá deilunni varð andi Efnahagsbandalagið. í flokknum hefur ríkt og ríkir að miklu leyti ennþá algjört ósam- komulag um stefnuna í vígbún- aðarmálum, utanríkismálum, og þjóðnýtingarmálum. Reynt hef- ur verið að klastra í sprungurn- ar, sem myndazt höfðu í flokks vegginn. En það dygði skammt ef málin væru tekin föstum tökum. Klofningurinn í Verkamanna- flokknum er því raunverulegri en í fljótu bragði sýnist. Það gefur þeirri skoðun aukinn byr að Frjálslyndi flokkurinn kunni að vinna enn meira á en orðið er, ekki síður á kostnað Verka- mannaflokksins en íhaldsflokks ins. Myndin er tekin, þegar verið er að ferma eina flugvélina á Wahn-flugvelli við Köln, og er verið að aka ullarábreiðum að vélinni. Þær þrjár flugvélar, sem sendar voru fyrst af stað, fluttu alls sjö lestir af alls kon- ar nauðsynjum. Vestur-þýzka stjórnin lagði fram um tvæi millj. króna til hjálparstarfsins. Aðstoð við ÍRAN m m.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.