Vísir - 13.10.1962, Blaðsíða 1
25. árg. — Laugardagur 13. októhsr 1962. — 235. tbl.
HLlF SEGIR UPP
Ennþó með-
vitundnrlnus
hringi
eftir jólin
Ákveðið hefir verið, að næsti
geimfari Bandaríkjanna verði
Gordon Cooper, og er ætlunin,
að hann fari 18 ferðir umhverfis
jörðu — verði á lofti meira en
sólarhring í janúar eða febrúar
í vetur. Ákvörðunin var tekin
þetta, þegar sýnt var, að
geimferð Schirras hafði tekizt
vel í alla staði. Myndin er af
Cooper í flugmannsbúningi, en
hann er ofursti i flugher Banda
rikjanna.
Jódis Björgvinsdóttir, sem slas-
aðist aðfaranótt 23. september s.l.
liggur enn meðvitundarlaus i
Landspítalanum.
Hefur hún aldrei komizt til með-
vitundar á þeim hartnær þrem vik-
um frá því hún slasaðist, en hún
varð fyrir leigubifreið I Banka-
stræti svo sem áður hefur verið
skýrt frá í fréttum.
Jódís er 29 ára að aldri og er
aðeins rúm vika þar til hún verður
þrítug.
Vísir spurðist fyrir um það í
Landspítalanum í morgun hvort
ekki væri sjaldgæft að fólk lægi
jafn lengi meðvitundarlaus, en því
var svarað að þess væru mörg
dæmi og meira að segja hafi til-
svarandi atvik komið nýlega fyrir
hér í Reykjavík, einnig í sambandi
við umferðarslys.
Hún vinnur hjá Sláturfélagi Suðurlands. Eiginlega vitum við ekki hvers vegna hún er að gretta
sig. En það leynir sér ekki að stúlkan er lagleg og skrokkarnir fallegir. — (Ljósm. Vísis: I. M.).
Lagning sæsímastrengsins frá
Grænlandi til íslands hafin
Sæsímaskipið Neptune
mun hafa farið frá Græn-
Forsætisráðherrar
Norðurlanda hittast
Forsætisráðherrar Norð.'.rlanda
koma saman á fund í Osló 13. nóv-
ember n.k. Meðal umræðuefna
verður afstaðan til Efnahagsbanda-
lagsins. Forsetar Norðurlandaráðs
taka einnig þátt í fundum þess-
um. Það er Einar Gerhardsen for-
sætisráðherra Norðmanna, sem
býður til fundarins.
Fundurinn er til undirbúnings
fundum Norðurlandaráðsins, sem
verða í febrúar. Verður reynt að
samræma stefnu Norðurlandanna
gagnvart Efnahagsbandalaginu eft-
ir því sem hægt er. Danmörk og
Noregur hafa sem kunnugt er sótt
um inngöngu í bandalagið, en Sví-
þjóð mun sennilega ekki gera það.
Munu forsætisráðherrarnir ræða
þessi mál.
landi í gær og hafið lagn-
ingu síðari hluta sæsímans
Icecan, og ætti lagning-
unni að verða lokið á um
það bil 10 dögum. Á morg-
un verður búið að leggja
sjöttung leiðarinnar.
Svo sem Vísir skýrði frá fyrir
nokkru varð Neptune fyrir nokkr-
um töfum í upphafi sæsímalagn-
ingarinnar frá Nýfundnalandi til |
Grænlands, svo að sýnt þótti, að |
ekki mundi verða unnt að standa j
við þá áætlun, sem gerð var í önd-
verðu um að lagningunni mundi
| lokið 15. október, svo að unnt
flytur SH verksmiðju sínu I
Englundi til Vestmunnaeyju?
í ráði er að Sölumið-
töð Hraðfrystihúsanna
lytji fiskstangaverk-
imiðjur sínar í Englandi
il íslands og setji þær
íiður I Vestmannaeyj-
um. Endanleg ákvörðun
verður væntanlega tek-
in eftir nokkra daga.
Björn Halldórsson framkvæmda-
stjóri SH, og Einar Sigurðsson,
útgerðarmaður, einn af stjórnar-
mönnum S. H. fóru til Vestmanna-
eyja fyrir stuttu til að athuga þar
aðstæður til að setja niður verk-
smiðjur samtakanna sem eru í
Englandi.
Framleiðsla verksmiðjanna hefur
verið mjög lítil og tap á rekstr-
inum. Þess vegna kemur einnig til
greina að selja þær ef kaupandi
fæst. En mikill vilji er fyrir því
innan Sölumiðstöðvarinnar að
halda 1 verksmiðjurnar, vegna þess
að markaður er mikill fyrir fisk-
stangir, þótt tilraunir verksmiðj-
anna hafi enn þá ekki borið betri
árangur en raun er á. Það getur
verið hentugt að hafa þær á ís-
landi þar sem hráefnið er meðan
verið er að gera tilraunir með
framleiðsluna. !
En flutningarnir kosta mikið,
Framh. á 5. síðu.
yrði að hefja prófanir upp úr því.
Nú skýrði Jón Skúlason, verk-
fræðingur hjá póst- og símamála-
stjórninni, blaðinu svo frá í morg-
um, að lagningunni til Grænlands
væri lokið, og væru prófanir á sæ-
símanum hafnar, og skipið mundi
hafa lagt upp í síðari áfangann í
gær. Leiðin frá Nýfundnalandi til
Grænlands er 1520 km., en síðari
hlutinn er heldur styttri eða um
1400 km. Áætlað er, að það taki
10 daga að leggja sæsímann þá
Framh. á 5. síðu.
Tvö slys
Um klukkan 15.16 í gær varð
árekstur á mótum Lönguhlíðar og
Miklubrautar. Einn maður va:
fluttur á Slysavarðstofuna. Hafði
hann hlotið höfuðmeiðsli, sem
voru talin lítil.
í gær var lögreglunni tilkymit
að maður hefði orðið fyrir bifreiö
utan við húsið Laugarásv^g 15.
Maðurinn var flut'tur á Slysavarð-
stofuna.
ISýr bæjarstjóri í
Vestmannaeyjum
Nýr bæjarstjóri var settur í
Vestmannaeyjum fyrir skömmu.
Er það Jóhann Friðfinnsson, kaup-
maður. Guðlaugur Gíslaspn skip-
aður bæjarstjóri Vestmannaeyja
situr á Alþingi og getur því ekki
annazi störf bæjarstjóra.
Verkamannafélagið Hlíf í
Hafnarfirði samþykkti einróma
á fjölmennum fundi í gærkveldi
að segja upp samningum við
atvinnurekendur. Falla samn-
ingarnir úr gildi 15. nóvember.
Annað var ekki ákveðið á fund-
inum. Formaður Hlífar er Her-
mann Guðmundsson.