Vísir - 22.10.1962, Blaðsíða 8

Vísir - 22.10.1962, Blaðsíða 8
8 Ví SIR . Mánudagur 22. október 1962. VISIR Utgefandi: BlaðaUtgáfan VtSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskrifstargjald er 55 krónur á mánuði. í lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f Æsifrétt eða raunveruleiki? í Morgunblaðinu í gær lætur einn af lyfjafræð- ingum bæjarins hafa þetta eftir sér um deyfilyfjamálið: „Málið hefir meira verið sett upp sem æsifréttir en raunveruleikanum samkvæmt“. Vísir og Alþýðublaðið hafa undanfarið bent á þá j hættu, sem stafar af aukinni ólöglegri dreifingu á væg- ari nautnalyfjum, einkum meðal yngra fólksins í Reykjavík. Þau skrif telur lyfjafræðingurinn ekki „raunveruleikanum samkvæmt“. Og dagblaðið Tíminn segir í gær að hér sé um lítið annað að ræða en „venju- legar slúðursögur“. Hvað er hæft í þessum fullyrðingum? Yfirlæknir Slysavarðstofunnar lýsti því yfir í vik- unni að hann teldi að óhugnanlega margir neyttu deyfi lyfja hér í bæ og ekki væri hægt að nefna málið ann- að en þjóðfélagsvandamál. Yfirmaður rannsóknarlögreglunnar hefir lýst því yfir að það færi vaxandi með hverju ári að menn neyti þessara nautnalyfja, jafnvel unglingar undir tvítugs- aldri, og sé þróun þessara mála geigvænleg. Þráfald- lega hafi bifreiðastjórar verið handteknir undir áhrif- um þessara lyfja. Formaður Læknafélagsins bar fram ákveðnar tillögur hér í blaðinu, sem væru til þess fallnar að stemma stigu við vaxandi notkun deyfilyfja. Vísir telur að þessir menn séu allir dómbærari á það hvað er raunveruleikanum samkvæmt í þessu efni en lyfjafræðingamir, sem fást við sölu nautna- lyfjanna. Því miður er ekki unnt að afgreiða málið með því einu að nefna það „slúðursögur“. Aukin ólög- leg sala og neyzla nautnalyfja er alvörumál, sem krefst róttækra aðgerða réttra yfirvalda og, eins og komið hefir fram hér í blaðinu, þá er þeim aðilum sem um mál ið ber að fjalla Ijóst í hvaða vanda hefir verið stefnt. Rannsókn sú, sem Saksóknari ríkisins hefir fyrirskip- að í nautnalyf jamálinu mun væntanlega leiða það enn betur í ljós. Og það er hlutverk blaðanna að skýra frá staðreyndum og áliti þeirra manna, sem gerst mega um þessi mál vita, í stað þess að þegja. Formaður lyfjafræðinga segir á prenti í gær: „Það getur verið hættulegt að blása svona mál upp, því það vill vekja áhuga á efninu“. Hér er Vísir lyf jafræðingnum ósammála. Það þarf l einmitt „að vekja áhuga á efninu“. Hættan liggur ekki i í fyrirsögnum blaðanna heldur í þögninni. Æsku þessarar borgar er lítill greiði ger með at- ferli þeirra manna og málgagna, sem reyna að sann- færa lesendur sína um að hér sé allt með felldu. Að- eins eitt orð er til yfir slíkt háttemi: ábyrgðarleysi. ÞEGAR UNCOLN GAF ÞRÆLUN- UM FREÍSÍ Lincoln undirritar boðskapinn um, að þræiunum sé veitt freisi, í viðurvist nokkurra ráðherra sinna. Þann 22. september síðastlið- inn voru liðin 100 ár frá þvi að ástsælasti forseti Bandaríkj- anna, Abraham Lincoln, gaf þrælunum frelsi með tilskipun, sem hann gaf út, meðan á borg arastyrjöldinni ægiiegu stóð. Abraham Lincoln var fæddur í fylkinu Kentucky, þar sem þrælahald tíðkaðist, og þótt hann myndi ekki mikið frá æsku sinni, sagði hann svo frá í sjálfs ævisögu, sem út kom 1860, að faðir hans, efnalítill maður, hefði flutzt frá Kentucky yfir Ohio-fljót til hins frjálsa fylkis Indíana — „sumpart vegna þrælahaldsins í Kentucky". Sem ungur maður í Indiana og Illinois hafði Lincoln ekki aðeins lesið og heyrt um þræla- haldið, en hann hafði einnig séð það í framkvæmd. Hann hafði tvívegis farið niður eftir Missis- sippi-fljóti til New Orleans, og þar hafði honum gefizt tækifæri til að sjá þrælahaldið, þar sem það var að allra dómi verst. Fyrstu mótmælin árið 1837. Þegar Lincoln hafði verið kjör inn á fylkisþing £ Illinois, lagði hann fram tillögu til þingsálykt unar um að þingheimur and- mælti þrælahaldinu, sem hann taldi byggjast á „stórlega rangri og óskynsamlegri stjórnar- stefnu". Það var fyrsta opinbera fordæming hans á fornum hátt- um, sem fluttir höfðu verið frá hinum gamla heimi til nýlendna Englendinga í nýja heiminum um það bil 200 árum áður. Síðan var þrælahaldið orðið einn af máttarstólpum hins bandaríska þjóðfélags. Menn sættu sig við það í helmingi fylkjanna, það var meira að segja viðurkennt í stjórnar- skránni, og órjúfandi tengt kyn- þáttavandamálinu, þvi að þræl- arnir voru allir svertingjar. Þótt Lincoln væri aðeins 28 ára gamall, er hann lagði fram tillögu sína 1837, var honum þetta allt ljóst. Tillaga hans náði ekki aðeins til fordæming- ar á þrælahaldinu, heldur og þeirri kenningu, sem komnar voru frá andstæðingum þess, því að ekki var tekið tillit til þess i kenningum þessum, hversu flókið vandamálð var og hverjar afleiðingar það mundi hafa í för með sér, ef þrælahald ið væri afnumið. Lincoln leit svo á, að ef þrælunum væri veitt frelsi skyndilega, mundi það frekar auka en draga úr illum afleiðingum þrælahaldsins. „Ég bít á vörina ..." En hann var andvígur þræla- haldinu, hvar sem hann komst í snertingu við það, og sönnun þess, hve mjög það lá honum á hjarta, er að finna í bréfi frá honum til náins vinar í Ken- tucky: „Ég viðurkenni, að ég hef and styggð á að sjá, hvemig þessir vesalingar eru eltir, handsamað ir og þvingaðir til ómannúðlegs strits, en bít á vörina og segi ekkert. Árið 1841 fórum við saman á gufuskipi frá Louisville til St. Louis. Þú manst væntan- lega eins og ég, að á skipinu voru 10—12 þrælar, hlekkjaðir saman með jámhlekkjum. Sú sýn kvaldi mig án afláts, og ég sé eitthvað í líkingu við hana í hvert skipti sem ég er í Ohio eða einhverju hinna þræiafylkj- anna. Ég verð alltaf vansæll af því“. En þegar bréf þetta var ritað, 24. ágúst 1855,, var Lincoln hættur að bíta á vörina og þegja. Hann hafði sett skoðanir sínar fram opinberlega. Þrælahaldið breiðist út. Tilefnið var samþykkt þjóð- þingsins á lögum, sem höfðu mikil áhrif hvarvetna í landinu og vöktu mikla gremju og and- úð Lincolns og hundraða ann- arra manna. Þetta voru hin al- ræmdu Kansas- Nebraska-lög, sem opnuðu stóran hluta Louis iana-svæðisins (er var eiginlega allur Mississippi-dalurinn), er Bandaríkin höfðu keypt af Framh. á 10. sfðu. Hermaður frá Norðurríkjunum hefir barið að dyrum og gengið inn i svertingjakofa til að lesa boðskap Lincolns um, að þrælun- um sé veitt frelsi. Myn þessi er eftir gamalli stungu, sem geymd er í bókasafni þjóðþingsins í Washington. |‘j,J j ((i {.)’/} i ý.'1 < <• i n’i H ♦ H>M *' 'V i' i I H 'V'. I í |‘| )■ i M'( (t'; t I}! I > I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.