Vísir - 25.10.1962, Blaðsíða 1

Vísir - 25.10.1962, Blaðsíða 1
VISIR 52. árg. — Fimmtudagur 25. október 1962. — 245. tbl. AMERÍKA EINHUGA Það virðist ríkja mikil ánægja í rikjum Mið- og Suður-Ame- ' ríku vegna hinna einbeittu að- gerða Bandaríkjanna til að hindra frekari vígbúnað á Kúbu. í mörgum þessara landa hafa menn litið með skelfingu á hinn óhugnanlega vígbúnað Kúbumann^ og uppsetningu rússneskra herstöðva á eynni. Þessar aðgerðir hafa ógnað ör- yggi nágrannaríkjanna og verð- ur vart léttis yfir því að víg- búnaðaræði Kúbu-manna er nú stöðvað. Mið- og Suður-Ameríkuríkin hafa öll sem einn maður lýst yfir fullum stuðningi við að- gerðir Bandaríkjanna og mætti telja þau öll upp, nema Boliviu, sem engin yfirlýsing hefur enn komið frá. Mörg þessara ríkja hafa og boðizt til að taka þátt í gæzlustarfinu við Kúbu eða veita aðstoð sína á annan hátt. Meðal þeirra ríkja sem hafa boðizt til að senda herskip til gæzlustarfa við Kúbu eru Arg- entíma og Kolumbía. Ríkið Kostarica, sem hefur engan her né flota hefur boðið varð- flotanum aðstöðu í höfnum landsins ef á þarf að halda. Utanríkisráðherra Argentínu Carlos M. Muniz hefur lýst yfir fullkomnur- stuðningi við stefnu Bandaríkjanna í þessu máli. Sama hafa utanríkisráðh. Chile, Panama og Hondur- Framh. á bls. 5. RUSSNÍSK VOPNASKIP SNUA m FRÁ KÚBU Nokkur þeirra rússnesku skipa, sem voru á siglingu til Kúbu breyttu í nótt um stefnu og sigldu frá. Bandaríska landvarnarráðuneytið gaf í nótt út tilkynningu um þetta. Það skýrði þó um leið frá því að önnur rússnesk skip héldu áfram ferðinni. Þessar fréttir þykja bera því vitni, að nú sé heldur að draga aftur úr spennunni við Kúbu. Sú staðreynd að nokkur hinna rússnesku skipa snúa við er túlkuð með ýmsum hætti. Hugsanlegt er talið að þau skip sem snúa við séu þau sem flytja hergögn, en hin sem flytja almennan varning verði lát in halda áfram. Aðrir telja, að hér sé aðeins um frest- un að ræða, meðan Rússa- stjórn íhugar, hvað hún eigi nú til bragðs að taka. Bandaríkjafloti tilkynnti í morgun, að enn hefði hann ekki þurft að stöðva skip á siglingu til Kúbu. Þá gerðist það í gær, að Krús- jeff einræðisherra Rússa sendi brezka heimspekingnum Bertrand Russel skeyti og þykir orðalag þess, benda til að Rússar ætli ekki að halda til streitu vopnasendingum til Kúbu, eftir aðgerðir Bandaríkja manna. Russel hafði sent Krúsjeff skeyti þar sem hann skoraði á hann að koma í veg fyrir að styrj- öld brytist út. I svarskeyti kveðst Krjúsjeff reiðubúinn að Semja um deilumálin við Kennedy forseta. U Thant framkvæmdastjóri S.Þ. Frh. á bls. 5. Steinbeck vafínn Sænska akademian tilkynnti á hádegi í dag, að bandaríska rit- höfundinum John Steinbeck hafi verið veitt bókmenntaverðlaun Bilið breikkar milli sjó- manna og útgerðarmanna Ekkert dregur saman í hefur dregið sundur með um 1% í launum og vilja Meira ber á milli. deilu sjómanna og út- deiluaðilum miðað við breytta skiptaprósentu, Jón Sigurðsson formaður krofurnar í vor. Sjo- sem hefur það í for með s'gði Vísi f morgun að hvorki menn hafa hækkað sér að hlutir yfirmanna gen£i né ræki { deiiunni. sátta- krofur sinar fra þvi i vor hækka. Framh. & 5. siðu gerðarmanna um kaup og kjör á vetrarsíldar- vertíðinni. Meira segja Nóbels. í rökstuðningi er sagt að Steinbeck séu veitt verðlaunin fyr- ir raunsæja og litríka frásagnar- gáfur, sem einkennist af kímni og skarpskyggni á þjóðfélagsvanda- mál. John Steinbeck

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.