Tölvumál


Tölvumál - 01.04.1997, Blaðsíða 24

Tölvumál - 01.04.1997, Blaðsíða 24
T O L V U M Á L Af CeBIT‘97 Eftir Ehar H, Revnis Það er alveg við hæfi að hefja greinina á nokkrum tölum: Sýningin var í 25 sýningarhöll- um, sýnendur frá 61 landi, sýning- arbásar, ef hægt er að nota það orð, voru 6.814 og allt sýningar- svæðið var 350.000 fermetrar. Reiknað var með 750.000 gestum vikuna 13 til 19. marz og slegið var á að 250 Islendingar hefðu heimsótt CeBIT’97 íHannover. Það er líka alveg deginum ljós- ara að skoða allt er alveg vonlaust þó ekki væri nema vegna mann- mergðarinnar á staðnum. Reyndar hefur skipulaginu á sýningunni verið breytt og reynt að stfla frekar á að fá fólk úr viðskiptalífinu en almenning á sunnudagsrúntinum og sérstök sýning sem kallast CeBIT Home er ætlað að taka þann kúf. Hvað sem því líður er sýning sem þessi vel þess virði að skoða, þó ekki væri nema til að taka púlsinn á markaðnum og kynnast nýjum straumum. Internet og Intranet í sviðsljósinu Það kemur ekkert á óvart að Internetið/Intranet skyldi hafa verið fyrirferðamikið. Símafyrir- tækin voru sérstaklega að fást við Intemetið og sýndu ýmsan hug- og vélbúnað í tengslum við það. Eitt símafyrirtækjanna sýndi hvernig hægt er að nota Internet tengingu til að tala og flytja gögn í einu um mótald, og var það tæknilega mun flottari lausn en það sem venjulegir notendur hafa verið að basla við en er þó vel að merkja ekki ætlað til að tala ódýrt þvert um heiminn heldur frekar að tvinna tölvuna við símann. Sömuleiðis var sýndur búnaður sem ætlað er að taka Intemet um- ferð af langlínum og flytja á þar til gerðum samböndum og þannig greina tal- og gögn alveg í sundur sem næst notandanum. Þetta getur verið gott mál þar sem tölvuum- ferð er mjög mikil og reyndar hvar sem er því gert er ráð fyrir ógnar- vexti í Internetinu á næstu árum og kannski ekki ráð nema í tíma sé tekið. Allar tölur sem eru nefndar eru hundruð eða þúsundir prósenta. Annars voru allskonar lausnir svokallaðar áberandi. Eitt þýzku símafyrirtækjanna býður sérstakan Internet pakka handa þeim sem vilja stofna þjónustu þar sem allt sem þarf fylgir með; allur tölvubúnaður og forrit og allur fjarskiptabúnaður. Mynd- og hljóðflutningur var áberandi og má nánast segja að útvarp og sjónvarp séu að undir- búa innrás á Netið. Það em komnir fram fyrstu vísarnir að hinni einu sönnu margmiðlun með mynd og hljóði í rauntíma. Eitt fyrirtæki sýndi hvernig sjónvarpsstöðin RTL var tengd inn á Netið og tölvunotandinn gat horft á dag- skrána um 2 Mbit samband með MPEG-1 gæðum. Upphafið að alheimssjónvarpi? Það er ekki frá- leitt að CNN og BBC færu fyrstar á Netið af einhverri alvöru en það kostar jafnframt að annarri tækni verður að beita til að flytja mynd en venja er í dag, svo Netið koðni ekki í gífurlegri umferð. Nettölvan NC og Internet sjón- varp WebTV eru meðal þess sem nefnt er til að auðvelda tengingar við Internet en ekki bar mikið á þessu. WebTV er þó tæki sem vert er að skoða og sum fyrirtæki eru á því að þar sé komin leið til að auðvelda ótæknisinnuðum notend- um aðgang að Netinu. Lítill kassi er tengdur við sjónvarpstæki heim- ilisins og þar til gerð fjarstýring notuð til að flakka um Netið. WebTV hefur til að bera alla helstu kosti rápforrita en heimasíður eru valdar með tölum og að því leytinu líkist WebTV textavarpi. Microsoft sýndi frumgerð af Explorer 4.0 en fyrirtækið stefnir að því að tvinna rápforritið meira við Windows. Sýnendur á CeBIT virtust mér langflestir nota Navi- gator og verður forvitnilegt að sjá hver framvindan verður þarna. Novell hampaði því hvernig netstýrikerfi þeirra getur tvinnast við Internet og Intranet, sem svo er kallað og hefðbundnir þjónustu- aðilar eins og CompuServe og America On Line (eða Alles On Line eins og það er kallað í Þýzka- landi) eiga núna á brattann að sækja og mörkin milli þeina og hins eiginlega Internet eru oft æði óljós. Cisco hefur mjög sterka stöðu á markaðnum á leiðstjórum fyrir Internet og slegið er á að markaðhlutdeild fyrirtækisins sé 83%. GSM: veni, vidi, vici Vöxturinn í farsímakerfum er lygilegur. Núna bætast við 1,24 nýjir notendur á hverri sekúndu í heiminunt og markaðurinn stækk- aði um 56% á árinu 1996. Reiknað 24 - APRÍL 1997

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.