Vísir - 29.10.1962, Blaðsíða 2

Vísir - 29.10.1962, Blaðsíða 2
asssaajB p=» t== D 'n W///A ra 1 n 1 1 u '"////////á. ! ////////L H a n d k n a f f I e i k u r: KR Á BOTNINUM I gærkveldi fóru fram 3 leikir í Reykjavíkurmeistaramótinu í handknattleik, þar að auki fór fram leikur í 3 flokki karla. Kvöld- ið byrjaði með þeim leik, og var hann all sögulegur, þar áttust við Pram og KR og lauk leiknum með sigri Fram 5—2. í hálfleik var staðan 5 — 2 og var seinni hálfleik- ur marklaus, sem er nær óþekkt fyrirbrigði f handknattleik, Fram- arar héldu boltanum nær allan hálfleikinn, þó án þess að tefja. Þróttur — Valur 10—10. / Næsti leikur var á milli Vals og Þróttar í mfl. karla, leikur þeirra var daufur og leiðinlegur, alveg fram á síðustu mínútu, en þá kom smá fjörkippur í leik- menn. Þróttarar settu fyrsta mark- ið, og var Grétar þar að verki, Valsmenn kvittuðu fljótlega með góðu marki Bergsteins, sem meira er þekktur fyrir knattspyrnu en handknattleik. Rétt fyrir hálfleiks lok var staðan 3 — 3, en þá tókst Valsmönnum að setja 2 mörk í röð, og var Bergur Guðnason að verki í bæði skiptin. Þróttarar kom ust marki yfir strax í seinni hálf- leik, og enn var það Grétar sem skoraði. Það sem eftir var skiptust liðin á að jafna, og að komast yfir. Þegar ein mínúta var til leiksloka var staðan 9—9 og tóku nú leik- menn að komast í ham. Axel kom Þrótti yfir með góðu marki er hann komst inn í sentringu mót- herjanna. En Sigurði Dagssyni tókst að jafna fyrir Val á síðustu sekúndu, 10—10. Þessi endasprett ur liðanna var eina sem var spenn- andi í þessum leik. Leikmenn virt- ust hálf kærulausir fyrir öllu þar til í restina. Markverðir liðanna stóðu sig einna bezt í Ieiknum, þeir Þórður Ásgeirsson í Þrótti og Egill hjá Val, en aðrir leik- menn vart umtalsverðir. Ármann — KR. 10—4. Þótt leikur Vals og Þróttar væri leiðinlegur var leikur Ármanns og KR enn verri. Og í þokkabót gróf- ur og ljótur. Unglingarnir hjá Ár- manni léku sér að KR, sem áður var stórveldi í mfl. karla. Ármenn- ingarnir settu fjögur mörk í röð, áður en KR-ingum tókst að pota einu marki, en þá voru liðnar 10 mínútur af fyrri hálfleik. Seinni hálfleikur var ólíkur þeim fyrri að því leyti að KR-ingar settu nú 3 mörk en Ármann lét sér nægja 5 í þeim hálfleik, en þau hefðu sann- arlega getað orðið fleiri. Leikur þessi var, sem fyrr segir grófur og ljótur. Ármannsliðið hefur bætt mikið vörn sfna undir handleiðslu Einars Sigurðssonar úr FH, en vörn liðsins hefur verið veikasti punktur liðsins hingað til, en nú er þetta sýnilega að batna hjá þeim, og það að mun. Bezti maður liðsins var markvörðurinn Þor- steinn en hann hefur sjaldan verið betri en í þessum leik. aðrir leik- menn stóðu vel fyrir sínu. KR- liðið hefur oft sýnt lélegan leik, en aldrei hafa þeir samt verið verri en í þessum leik. Þeir voru grófir, samspil var ekkert, og skot- æðið keyrði nú úr hófi fram. Fram — ÍR 23—13. Síðasti leikur kvöldsins, var einna skemmtilegastur þótt hann væri ójafn, áttust þar við erfða- fjendurnir í handknattleik Fram og ÍR. Búizt var við jöfnum og fjörugum leik, en sú varð ekki raunin. Fjörugur var hann að vísu, en að engu leyti jafn. Fyrstu mín- úturnar voru jafnar eins og gefur að skilja þegar aðeins eitt mark skilur en fljótlega fóru Framarar að saxa framúr, og settu hvert glæsi markið á fætur öðru, í hálf- leik var staðan 14 — 7 fyrir Fram, og í síCar hálfleik hélt sama stór- skotahríðin áfram á mark ÍR. En nú voru Framarar óheppnir því þeir áttu ekki færri en 6 stangar- skot. I’R-ingar gáfust ekki upp þótt illa gengi á móti hinum vel æfðu Frömurum og börðust hetjulega fram á síðustu stund. En það var ekki nóg að berjast nú, því yfirburðirnir voru ótvíræðir hjá Fram. Leiknum lauk því með miklum sigri Fram 23—13. Leik- urinn var, sem fyrr segir hraður og skemmtilegur en ójafn. 36 mörk í 30 mfnútna leik sýnir að lítið er hægt að tala um spil hjá liðunum, því þetta gerir rúmlega 1 mark á mínútu. I'R-liðið var ekki sem verst í þessum fyrsta leik sínum og bar- áttuhugann vantar sýnilega ekki hjá liðinu nú frekar en fyrr. Beztu menn liðsins voru bræðurnir Gylfi og Gunnlaugur Hjálmarssynir ásamt Hermanni sem stóð vel fyrir sfnu sem fyrr. Framarar eru sýni- lega komnir í hörku æfingu og er enginn þar öðrum fremri. í þess- um leik bar mest á nýliðanum í markinu Atla Marinóssyni, sem lék fyrri hálfleikinn og varði íiann markið að stakri prýði. Aðalmark vörður liðsins Sigurjón Þórarins- son lék seinni hálfleikinn og var hann ekki síðri. Eftir leikinn stilltu liðsmenn ÍR sér upp og þökkuðu fyrir leikinn og óskuðu Frömurunum góðrar ferðar til Danmörku, en þeir halda utan á föstudaginn kemur. K.L.P. Kjörgarðs- kaffi KJÖRGARÐI Matar- og kaffisala frá kl. 9—6 alla virka daga. Salurinn fæst einnig íeigður á kvöldin og um helgar fyrir fundi og • veizlur. K J ÖRG ARÐSKAFFI Sími 22206. Myndin sýnir Defa hreyfilhitara tengdan við hreyfil í Traktor. Defa hreyfilhitarinn með hitastilli er nauðsynlegur á allar vökvakældar vélar. Auðveldar gangsetningu í köldu veðurfari. Hitarinn fæst ísettur hjá: Spindli h.f. við Rauðará. Smiðjubúðin við Háteigsveg . Sími 10033 Skrifstofur vorar eru fluttar að Laufásvegi 36, Þverá. Verziunarróð íslands Afgreiðslustúlka Okkur vantar konu eða stúlku til afgreiðslu- starfa hálfan daginn nú þegar. Æskilegt að umsækjandi væri eitthvað vön. Aldur helzt ekki undir 25 árum. TEIGABÚÐIN, Kirkjuteig 19. r Islenzlca körfu- knaftleiks- liðið Frá vinstri: Haukur Hannesson, Þorsteinn Hallgrimsson, Sigurð- ur Þorsteinsson, Birg- ir ö. Birgis, Bjarni Jónsson, Guðmundur Þorsteinsson, Hólm- steinn Sigurðsson, Ein ar Matthiasson, Agn- ar Friðriksson, Ólafur Thorlacius, Davið Helgason. i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.