Vísir - 30.10.1962, Blaðsíða 1

Vísir - 30.10.1962, Blaðsíða 1
Sjónvarpsleyfi þásund kr.? í útvarpsþætti í gærkveldi gaf menntamálaráðherra dr. Gylfi Þ. Gislason ýmsar merkar upplýs- ingar um sjónvarpið. Kvað hann ekkert því til fyr- irstöðu að hafizt yrði handa um tilraunasjónvarp hér á landi eft- ir tvö ár. Hann kvaðst ekki vera í vafa um að fjárhagsgrundvöll- ur væri fyrir íslenzku sjónvarpi ef að sjónvarpsleyfið kostaði 1000 krónur á ári og menn væru fúsir tii að kaupa það við því verði. Þá mundi vera nægur grundvöllur fyrir sjónvarpi, sem næði til Faxaflóabyggða og Suð- urlandsundirlendis. Eins og Vísir skýrði frá fyrir nokkrum dögum, hefur útvarpið sent ríkisstjórninni tillögur um að byrjað verði á sjónvarpi hér á iandi eftir 2 — 3 ár, ásamt nauð synlegum kostnaðarútreikning- um. ■ - •................... HESTUR FYRIR BÍL ' Á laugardagskvöld um kl. 21,30 hljóp hestur fyrir bifreið sunnan við Þórustaði í Eyjafirði og slasaðist svo illa, að slátra varð honum. Ungt par frá Akur- eyri var á leið á dansleik að Freyvangi í nýrri Taunus-bif- reið, er hestur úr hópi hrossa, sem var á vegkantinum, hljóp fyrir bifreiðina og hentist fram- an á bílinn, braut framrúðu og beyglaði talsvert frambretti og vélarhús. Bifreiðarstjórinn fékk höfuðhögg við áreksturinn, en meiðsli hans voru ekki að fullu rannsökuð í gærkveldi, en munu sennilega ekki vera aivarleg. En eins og áður er sagt, var hest- urinn það illa farinn, að það varð að skjóta hann, 3 HAFNIIITURLYFJAMAHNS- notkun INS ÍNN HALDID LÍYNDU Þrengslavegurmn nýi hefur nú verið tekinn í notkun. Var byrj- að að fara hann fyrir helgina, vegna þess að hálka var á Heil- isheiði, en ekki þar, vegna þess hve miklu lægra Þrengslin eru. I fyrsta snjó vetrarins lá við að vegurinn lokaðist. Á mánu- dagsmorgun áttu mjólkur- og vöruflutningabílar frá Selfossi i verulegum erfiðleikum með að komast Ieiðar sinnar. Var mesta ófærðin í brekku í Þrengslun- um, ekki langt frá þar sem Hell- isheif'nrvegurinn liggur út af Þrengslaveginum. Voru sendar jarðýtur og veg- heflar til að hreinsa veginn, og var hann fljótlega fær öllum bíl- um. Myndin er tekin í gærkvöld, og sést á henni einn af vörubíl- unum frá Selfossi, við hiið jarð- ýtu, sem er á Ieið til baka frá þvf að hreinsa veginn. L Yfirsakadómari sagði Vísi í morgun að hann teldi ekki tímabært að gefa upp nafn þess manns, sem fannst með fjölda eit- urlyfja í fórum sínum á miðvikudagskvöldið. Þeg- *r blaðið innti hann eftir ástæðunni kvað yfirsaka- dómari, Logi Einarsson, rannsókn ekki lokið og ekki væri enn vitað hvort naðurinn hefði aðhafzt nokkuð refsivert. , Vísir spurði hvort ekki væri rétt að sum eiturlyfjaglösin hefðu ekki verið merkt Lyfjaverzluninni, sem j ein selur iyf hér á landi. Það sagði | yfirsakadómari að væri reyndar rétt. Þá spurði blaðið yfirsakadóm- ara, hvenær hann mundi gefa upp nafn mannsins, hvort það yrði að ; Iokinni rannsókn. Yfirsakadómari kvað það ailsendis óvíst, jafnvei þótt sakir sönnuðust á manninn. I Vísir benti á að nöfn árásarmanna 1 væru þó oftast birt almenningi. Yfirsakadómari kvað það ekki allt- af vera gert. Blaðið spurði um hverjar reglur giltu um nafnabirt- : ingu í sakamálum. Yfirsakadómari 1 kvað engar reglur gilda um það. Hrakningar á Djúpi Lítill bátur frá Bolungarvík, Gissur Hvíti að nafni, lenti í hrakningum á sunnudaginn. — Höfðu þrír menn farið á hon- um til Aðalvíkur til að skjóta tófur og voru á heimleið, er vél bátsins bilaði. Höfðu bátsverjar ekki talstöð. Reyndu þeir að ná til Bol- ungarvikur á seglum, en tókst ekki. Hrakti bátinn vestur yfir ísafjarðardjúp. Var hann kom- inn að Stigahlíð kiukkan hálf- sjö um kvöldið, en hafði áður séð til bátsins Særúnar. Reyndu bátsverjar að vekja athygli á sér með því að kynda bál á dekkinu, en báturinn sigldi framhjá. Við Stigahlíð vörpuðu þeir akkerum á átta faðma dýpi. Fór formaðurinn, Jón Vagnsson, í land á gúmmíbátnum og tókst að lenda, þrátt fyrir brim og illar aðstæður. Gekk hann síð- an til Bolungarvíkur og kom þangað kiukkan fjögur um nótt ina. Voru þá allir bátar í burtu, þar sem ekki var liggjandi við brimbrjótinn í Bolungarvík sök- um veðurs. Fékk hann Vilmund Reimars- son á Sædísi, með sér til ísa- fjarðar, og fóru þeir þaðan á Sædísi og sóttu Gissur Hvíta. Höfðu tveir bátsverja verið i bátnum allan tímann. Blaðið spurði þá hvort yfirsaka- dómaranum væri kunnugt um, hvort nöfn manna, sem viðriðnir væru eiturlyfjamál í nágrannalönd- unum væru birt þar. Hann kvað sér ekki kunnugt um að neinar á- kveðnar reglur giltu þar heldur um nafnabirtingu. Vísir spurði þá, hvort maðurinn, sem eiturlyfin fundust hjá, hefði verið settur f gæzluvarðhald í sambandi við rannsókn málsins. Yfirsakadómari kvað það ekki vera. Þá spurði blaðið hve langt rann- sókninni á hendur honum væri komið og hvenær henni myndi ljúka. Um það get ég ekkert sagt, svaraði yfirsakadómari. ant íer til Havana íéag U Thant, framkvæmda- stjóri S.Þ., mun fljúga til Eíúbu í dag til viðræðna við Kastró forsætisráð- herra. Hann kveðst ekkert geta sagt um hvernig eft- irliti S.Þ. með niðurrifi eld- flaugastöðvanna verði hag að fyrr en hann hefur rætt við Kastró og samkomu- !ag hefur náðst um aðgerð- irnar. Þó var tilkynnt í gærkvöldi að Sameinuðu þjóðirnar hefðu óskað eftir aðstoð sænskra liðsforingja, sem áður hafa aðstoðað samtökin við að halda uppi lögum og reglu í Palestínu og síðar í Kongó. Bandaríkjastjórn tilkynnti í gær, að hún hefði ákveðið að létta hafn banninu af Kúbu í þá tvo daga, sem U Thant framkvæmdastjóri mun dveljast í Havana. Er þetta gert samkvæmt sérstökum tilmæl- um U Thants. Taldi stjórnin þetta óhætt með tilliti til þess, að hin rússnesku vopnaflutningaskip, sem voru á Ieiðinni til Kúbu ^eru nú öll snúin við og komin langt frá Kúbusvæð- inu á leið til rússneskra hafna. Á þetta boð Bandaríkjamanna og að sýna samkomulagsvilja.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.