Tölvumál - 01.10.1997, Blaðsíða 12

Tölvumál - 01.10.1997, Blaðsíða 12
Inngangur Tölvuiðnaðurinn í heiminum stendur nú frammi fyrir vandamáli sem tengt er komandi aldamótum (1999-2000) og áhrifum þess á öll hugbúnaðarkerfi í heiminum. Sumir hafa tekið svo djúpt í árinni að þeir telja að breytingar vegna ársins 2000 sé stærsta og viða- mesta verkefni sem tölvuiðnaður- inn hefur nokkurn tímann staðið frammi fyrir. Mikill hræðsluáróður hefur verið rekinn um allan heim í þessu máli og sýnist sitt hverjum um réttmæti þess. Mjög líklegt er talið að öll fyrirtæki og stofnanir sem á einn eða annan hátt eru tengdar tölvum muni áþreifanlega upplifa erfiðleika vegna næstu aldamóta. Áætlaður kostnaður á heimsvísu við að gera tölvukerfi aldamótahæf er talinn verða um 300-600 milljarðar USD (heimild: Gartner Group) þannig að það er ljóst að vandamálið er umtalsvert. Chase Manhattan bankinn áætlar að eyða sem svarar 250 milljónum Frh. affyrri síðu sem hagkvæmastan hátt. Staða verkefnisins hjá Skýrr er nú sú að lokið er við 1. áfanga þessarar vinnu. Lagt hefur verið mat á umfang verkefnisins og hvaða leiðir eru heppilegastar við lausn þess. Nú þegar hefur verið hafist handa við að framkvæma breytingar og jafnframt er verið að skoða ýmis hjálpartól sem gætu auðveldað vinnuna og gert hana kostnaðarminni. Ö L V U M Á L Árið 2000 Eflr &Ærand GuSrrmtoi USD (18,3 milljarðar ísk.) í það að gera tölvukerfi sín, sem eru u.þ.b. 200 milljónir forritslínur, aldamótahæf (heimild: J P Morgan). Það er óhætt að segja að hálf- gert gullgrafara æði hafi gripið um sig í tölvuheiminum út af þessu vandamáli þar sem bæði hin ýmsu ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtæki ætla sér skerf af þessari 300-600 milljarða USD köku. Fjöldamörg fyrirtæki hafa verið stofnuð til að veita ráðgjafarþjónustu og einnig hafa fjölmargir hugbúnaðarpakkar verið skrifaðir til að auðvelda breytingar vegna aldamótanna. Allt í einu eru Cobol-forritarar í Bandaríkjunum orðnir mjög eftirsóttir þar sem mikið af eldri tölvukerfum eru skrifuð í því forritunarmáli. Fyrirtæki í Bandaríkjunum keppast nú við að lokka til sín Cobol-forritara og í kjölfarið hafa laun þeirra snarhækkað og eru dæmi um það að slíkum forriturum í New York séu greidd árslaun sem nema 120.000 USD (8,8 milljónir ísk.) á ári og góður verkefnastjóri vegna ársins 2000 getur gert ráð fyrir 375 USD (27.000 ísk.) á tímann (heim- ild: The Meta Group Inc. of Stam- ford, Conneticut/American Pro- grammer). Sá böggull fylgir þó skammrifi að hluti launanna fæst ekki greiddur út fyrr en eftir að árið 2000 er runnið upp til að tryggja það að viðkomandi foixitarar eða verkefnisstjórar hverfi ekki skyndi- lega á braut. Vandamálið við að gera hug- búnaðarkerfi aldamótahæf liggur fyrst og fremst í miklu umfangi en ekki í því að það sé tæknilega flók- ið að gera breytingar á kerfunum. Dagsetningar koma víða við í flest- um viðskiptahugbúnaðarkerfum og því þarf að finna og yfirfara öll í mörgum upplýsingakerfum er unnið með dagsetningar fram í tímann. Fyrir mörg upplýsinga- kerfi er fresturinn til lagfæringa því styttri en fram til aldamóta. Hjá Skýrr höfum við því sett okkur það markmið að ljúka öllum breyt- ingum fyrir árslok 1998. Með því að móti höfum við árið 1999 til að láta reyna á breytingarnar og lag- færa það sem þarf. Framkvæmd breytingana er ennfremur gerð í samráði við viðskiptavini fyrirtæk- isins og eigendur upplýsingakerf- anna. Við úrlausn verkefnisins er unnið skv. vottuðu gæðakerfi Skýrr, en eins og áður sagði er gæðastjórnun lykilatriði við lausn verkefnisins og tryggir að stjórn verkefnisins verði í föstum og öruggum skorðum. J. Pálmi Hinriksson erfram- kvœmdastjóri hugbúnaðar- deildar Skýrr hf. 12 - OKTÓBER 1997

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.