-*- TOLVUMAL Tímarit Skýrslutæknifélags íslands Frá formanni ÓSKAR B. HAUKSSON 5 Rekstraröryggi upplýsingakerfa Albert Ólafsson og guðríður jóhannesdóttir Um staðla, tungumál og íslensku ÞORGEIR SlGURÐSSON 6 8 Skýrsla formanns fyrir 1998 ÓSKAR B. HAUKSSON 11 GSM posar fáanlegir Elvar Guðjónsson Fjarskiptamál í brennidepli Kristján Geir Arnþórsson Artalið 2000 hjá Skýrr hf. Sigri'ður B. Vilhjálmsdóttir 14 15 17 Að gefa út bók á netinu Viðtal RÚV við Þorgeir Þorgeirsson 19 íslensk útgáfa af Windows 98 Arnaldur F. Axfjörð Samantekt á birtum greinum í 23. árgangi Tölvumála 27 29 ISSN-NUMER: 1021-724X RITST J O RASPJALL Núna fer að styttast í að árið 2000 gangi í garð með öllum sínum vandamálum. Það er víst að bera í bakkafullan lækinn að tala um ár 2000 vandann en góð vísa er aldrei of oft kveðin. I skoðanakönnun sem að Gallup gerði fyrir Skýrslutæknifélag íslands kom meðal annars fram að tæplega 40% fyrirtækja í útgerð og fiskvinnslu hafa ekki hafið athugun á vandanum og einungis 10% þeirra hafa lokið athugun. Þessar upplýsingar hljóta að teljast mikið áhyggjuefni þegar svo mikilvæg atvinnugrein á í hlut. Það var einnig athyglisvert að það sótti engin aðili frá siávarútvegsfyrirtæki hódegisverðarfundinn þar sem skoðanakönnunin var kynnt, fyrir utan fulltrúa fró Haraldi Böðvarssyni sem flutti erindi ó fundinum um þeirra 2000 verkefni. Svo er það hin hliðin á 2000 vandanum sem snýr að lagalegri hlið mólsins, hverjir eru ábyrgir fyrir lausnum á 2000 vandanum? Eru það fyrirtækin sjólf, eru það hugbúnaðarsalar, vélbúnaðarsalar, eða er það ráðgjafinn? Þessum spurningum verður eflaust svarað eftir aldamót fyrir dómstólum. Á síðustu vikum hafa fallið tveir dómarsem snerta hugbúnaðarfyrirtæki, og koma til með að skerpa línurnar á milli verkkaupa og verksala, og er fróðlegt fyrir hug- búnaðarfyrirtæki að skoða niðurstöðu þessara dóma. Þar sem ég mun nú lóta af störfum í ritstjórn Tölvumála vil ég nota þetta tækifæri og þakka samstarfsmönnum mínum ! ritstjórn- inni fyrir ónægjulegt samstarf og jafnframt bjóða nýja ritstjórnarfull- trúa velkomna til starfa. Agnar Björnsson Tölvumál