Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Tölvumįl

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Tölvumįl

						Skýrsla fyrir 1 998

Skýrsla formanns fyrir 1998

- Flutt á aðalfundi 72. febrúar s/.

Óskar B. Hauksson

Áríð er metár að

mörgu leyti í starfsemi

þess og var bryddað

upp á mörgum

ný/'ungum

Sett var met í aðsókn

á árinu en ails sóttu

1230 manns fundi og

ráðstefnur félagsins

og komu að meðal-

tali 1 12 á hvern

atburð

Ráðist var í útlits-

breytingar og gefið út

veglegt afmælisblað

Síðasta ár var mjög viðburðaríkt í

starfsemi Skýrslutæknifélagsins

enda fögnuðum við 30 ára afmæli

félagsins. Árið er metár að mörgu leyti í

starfsemi þess og var bryddað upp á

mörgum nýjungum eins og ég kem að

síðar. I upphafí starfsársins voru sett

markmið og lagðar áherslur í starfmu og

er það mér mikil ánægja að geta greint frá

því á þessum fundi að flest þeiira mark-

miða sem sett voru hafa náðst. Við stefnu-

mótunina nýttist vel viðhorfskönnunin

sem félagið lét gera á meðal félagsmanna.

Ráðstefnu- og fundahald

Sett voru markmið að halda 5-6

hádegisfundi á árinu og grípa tækifæri til

að koma að þeim málum sem efst eru á

baugi hverju sinni. Haldnir voru 5

hádegisfundir og var fjallað um mál sem

voru í brennidepli, til dæmis um gagna-

grunn á heilbrigðissviði og samkeppni á

fjarskiptamarkaði. Alls sóttu 495 manns

þessa fundi eða 99 manns að meðaltali og

verður það að teljast mjög góð

þátttaka.

Ráðstefnuhald var einnig líflegt og hélt

félagið alls 6 hálfs dags ráðstefnur sem

725 sóttu. Þessi mikla aðsókn að

ráðstefnum segir okkur að þær hafa öðlast

fastan sess á meðal félagsmanna.

Aðsóknin ein segir hins vegar ekki allt,

reglubundnar gæðamælingar eru mikil-

vægar til að bæta undirbúning ráðstefna.

Við rennum oft blint í sjóinn með val á

fyrirlesurum, sérstaklega þeim erlendu.

Skoðanir ráðstefnugesta í viðhorfskönn-

unum endurspegla hvernig til tekst í hvert

sinn. Að meðaltali fengu ráðstefnur

félagsins einkunnina 4,2 (af 5

mögulegum) á árinu 1998 og verður það

að teljast ágætur árangur.

Meginatriðið í ráðstefnuhaldinu er ekki

aðsókn eða fjöldi fyrirlesara heldur að

ráðstefnur séu áhugaverðar fyrir félags-

menn. Mörkuð var sú stefna í upphafi árs

að bjóða upp á breidd í efnistökum en

Tölvumál

jafnframt að hver ráðstefna væri með

fókus á ákveðið efni. Haldnar voru m.a.

ráðstefnur um tungutækni og samruna

síma- og tölvutækni.

Eitt af markmiðum ársins var að stór-

auka markaðssetningu ráðstefna og funda

með tölvupóstsendingum til félagsmanna.

Þetta form hefur gefist mjög vel og fer

sífellt stækkandi það hlutfall gesta sem

skráir sig með því að senda svarskeyti til

skrifstofu félagsins.

Mikil vinna er við undirbúning ráð-

stefna og er hér um óeigingjarnt starf að

ræða sem unnið er í sjálfboðavinnu af

stjórnarmönnum og öðrum félags-

mönnum. I auknum mæli hafa ráðstefnur

og fundir verið haldnir í samvinnu við

önnur félög og er útlit fyrir að slíkt muni

aukast á næsta starfsári.

Sett var met í aðsókn á árinu en alls

sóttu 1230 manns fundi og ráðstefnur

félagsins og komu að meðaltali 112 á

hvern atburð. Þetta þýðir að aðsókn hefur

aukist í heild um 60% á milli ára og

meðalaðsókn á fund um 17%.

Útgáfumál

Utgáfa Tölvumála er ein af megin-

þáttum í þjónustu við félagsmenn og kom

það skýrt fram í viðhorfskönnuninni.

Ákveðið var að renna styrkari stoðum

undir útgáfu Tölvumála en uppi höfðu

verið hugmyndir um að draga úr útgáfu

eða hætta henni alveg. Ráðist var í útlits-

breytingar og gefíð út veglegt afmælis-

blað. Alls voru gefin út 4 tölublöð, samtals

132 blaðsíður með 40 greinum. Unnið

hefur verið að því á síðustu vikum að

fjölga verulega í ritstjórn Tölvumála og

efla útgáfuna. Taka þarf auglýsingamál til

endurskoðunar en tekjur af auglýsingum í

Tölvumálum hafa minnkað upp á

síðkastið. Styrkja þarf enn frekar tengslin

á milli stjórnar félagsins og ritstjórnar.

Ráðist var í gagngerar endurbætur á vef

félagsins á árinu 1997 og er hann orðinn

virkur miðill fyrir fréttir af starfsemi þess

11

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32