Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Tölvumįl

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Tölvumįl

						Frá ráðstefnu SÍ

Fjarskiptamál í brennidepli

- hefur samkeppnin skilað sér til neytenda?

Kristján Geir Arnþórsson skrifar um hádegisverðarfund Sl, 26. janúar 1999

/ dag snýst

samkeppnin um

vörugæði og

þjónustustig, sagði

Þór Jes Þórisson frá

Landssima íslands hf

Arnþór Halldórsson

talaði fyrir Tal hf og

kvað sitt iyrirtæki

hafa 15%markaðs-

hlutdeild í

farsímaþjónustu á

landinu

Dagný Halldórsdóttir

frá Skímu hf sagði

að sitt fyriríæki

hefði komið inn á

markaðinn í

virðisaukandi

fjarskiptaþjónustu -

„sem hefur alltaf

verið frjáls"

Fundarstjóri, Einar K. Guðfinnsson,

rakti í upphafi fundar tildrög þess

að lögin um frelsi í símaþjónustu

voru sett og gengu í gildi á síðasta ári.

„Nú er komin nokkur reynsla á þetta

fyrirkomulag og verður fróðlegt að heyra

hvað fulltrúar fyrirtækjanna hafa um hana

að segja."

Hefur samkeppnin

skilað sér til neytenda

I dag snýst samkeppnin um vörugæði og

þjónustustig, sagði ÞórJes Þórisson frá

Landssíma íslands hf. Hann rekur

helstu atriðin í stöðu Landssímans í dag

og bendir á hvílíkur dvergur Landssími

íslands er í samanburði við erlendu

símarisana. „Við njótum ekki hagkvæmni

stærðarinnar eins og þeir."

Arnþór Halldórsson talaði fyrir Tal hf

og kvað sitt fyrirtæki hafa 15% markaðs-

hlutdeild í farsímaþjónustu á landinu.

Honum þykir frelsið vera fremur í orði en

á borði enn sem komið er og telur vanta

ákveðnari heimildir í lögin til að auka það

og festa í sessi.

Dagný Halldórsdóttir frá Skímu hf

sagði að sitt fyrirtæki hefði komið inn á

markaðinn í virðisaukandi fjarskipta-

þjónustu - „sem hefur alltaf verið frjáls",

bendir hún á. Samkeppni í

Internetþjónustunni hefur skilað notend-

um lágu verði, aukinni þjónustu og meiri

gæðum. Nú, þegar höftum á talsíma-

þjónustu hefur verið aflétt, er Dagný sann-

færð um að þróunin á eftir að skila

notendum því sama þar.

Arnþór segir að það sem komi til með

að skilja menn að á markaðinum sé

hæfileikinn til að markaðssetja vöruna,

pakkana, ekki endilega tæknin sem beitt

er. Hann telur að samkeppnisstyrkur nú

kunni að snúast upp í andhverfu sína:

„Verður sá sterkasti sem er að byggja sig

upp með þunglamalegri og jafnvel úreltri

tækni kannski sem steinrunninn þurs á

morgun?"

Samkeppnisaðstæður

Arnar Sigurðsson, talsmaður Islands-

síma hf sem ekki hefur hafið rekstur enn,

bendir eindregið á skyldur Póst- og

fjarskiptastofnunar því aðstöðumunur

Landssímans og nýrra fyrirtækja á

markaðinum sé geysimikill: Frelsið í

þessari starfsemi er undir dug og

frumkvæði Póst- og fjarskiptastofnunar

komið telur hann - henni beri að flýta

frelsisþróun sem verða má.

Eftirlitsstofnanir eru nauðsynlegar,

tekur Þór Jes undir, en krafan um að skipta

Landssímanum upp í net- og þjónustu-

hluta gengur þvert á fyrrnefndar hug-

myndir um hagkvæmni stærðarinnar. Það

muni Landssíminn því ekki gera.

Arnþór segir að hér sé við ramman reip

að draga því stærsti aðilinn á markaðinum

hafi yfirburðastöðu og hætt sé við að þeir

láti „einokunarrekstur" greiða niður

samkeppnishluta rekstrarins. „Næstu 2-3

árin munu skera úr um það hvort frjáls

samkeppni í fjarskiptum nær að skjóta

rótum hér."

Þróun þjónustunnar

Árið 1906 hófst almenn fjarskipta-

þjónusta á Islandi, sagði Dagný

Halldórsdóttir, og var Póstur og sími einn

um hituna allt til 1989. Það ár fór IBM á

íslandi að bjóða fyrirtækjum upp á

tölvutengingar til útlanda. Árið 1994

byrjaði svo Internetsamkeppnin að fullu.

Bæði Skíma og Miðheimar voru stofnuð

1994, fyrirtæki sem sameinuðust 1997,

rekur Dagný áfram. Árið 1998 er fjar-

skiptaþjónusta gefin frjáls. Starfsmenn

hinna sameinuðu fyrirtækja eru nú 25 og

„þar er stærsti hnútpunktur á landinu í dag

og stærsta alhliða Internetþjónustan,"

segir Dagný hreykin, „- nema þetta sagði

ræðumaður Landssímans líka og það sýnir

að það er tekist á," bætir hún við.

Þór Jes rekur nokkur rannsóknarverk-

efna Landssímans, en „Skýrsla

rannsóknardeildar Landssímans 1999" lá

Tölvumál

15

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32