mm W Ómissandi fyrir tölvunotendur! í Tölvuorðasafni eru um 5800 íslensk heiti og um 6500 ensk heiti á rúmlega 5000 hugtökum sem lúta að upplýsingatækni og tölvunotkun. Langflest hugtökin eru skilgreind eða útskýrð nákvæmlega á íslensku. Hugtökin eru flest sótt í alþjóðlega staðla. Tölvuorðasafn er bæði íslenskt-enskt og enskt-íslenskt. I ensk-íslenska hlutanum er íslensk þýðing við hvert orð og er hún hugsuð sem tilvísun til íslensk-enska hlutans en þar er að finna skilgreiningar og útskyringar á hverju hugtaki. Tölvuorðasafn er afrakstur af margra ára starfi orðanefndar Skýrslutæknifélags íslands og samvinnu hennar við fjölmarga sérfræðinga í fremstu röð. Það kemur nú út í þriðja sinn og er tvöfalt stærra en í síðustu útgáfu. Tölvuorðasafn er höfuðrit á sínu sviði og ómissandi þeim sem tala og skrifa á íslensku um tölvur og notkun þein-a. Tölvuorðasafn hentar öllum, bæði byrjendum og sérfræðingum. Tölvuorðasafn er selt í öllum helstu bókabúðum. Félagsmenn Skýrslutæknifélags íslands geta fengið 10% afslátt af verði bókarinnar með því að snúa sér til Kára Kaaber hjá íslenskri málstöð.