Tölvumál - 01.07.1999, Blaðsíða 9

Tölvumál - 01.07.1999, Blaðsíða 9
Linux Dæmi eru um fólk sem gerir ekkert ann- að en að lesa kótann og koma með tillögur um betri rithátt. senda þá frá sér. Linux er alveg þveröfugt. Þar er hvatt til þess að leita uppi sambæri- legan rekil í kjarnanum og aðlaga hann að eigin vélbúnaði. Þannig fást gæði því vera kann að kótinn sem verið er að breyta hafi verið í notkun í tvö ár algjörlega villulaust og því verða ekki til lýs sem oft fylgja nýjum kóta. í Linux snýst allt um endur- vinnslu. Annað sem söluaðilar geta ekki skilið er að það er best að senda nýjan kóta frá sér í þróunarkjarnanum sem allra fyrst svo aðrir geti prófað hann við aðrar kringum- stæður og lagt til lagfæringar. Allar líkur eru á því að svar berist með tillögu um lagfæringu eða betrumbót. Dæmi eru um fólk sem gerir ekkert annað en að lesa kót- ann og koma með tillögur um betri rithátt. Þannig leggja margir í púkkið og allir eru sælir með sitt framlag. Þannig að það á bara senda kótinn frá sér og láta lýsnar koma fram og fá aðra til að hjálpa til við aflúsunina. Þessi hugsun er mjög fjarlæg flestum þróunaraðilum hugbúnaðar. A döfinni Verið er að vinna að Linux 2.3 og næsta útgáfa gæti verið tilbúin eftir um það bil eitt og hálft ár en meðal þess sem er á döf- inni er að fella inni í kjarnann sumt af því sem þegar er stutt í dag en er utan hans svo sem stuðningur við ýmsar gerðir ör- gjörva. Annað sem er óunnið er stuðning- ur við ATM net. Sama er að segja um DECNet. Stuðningurinn verður felldur inn í kjarnann. Annað atriði er betri stuðningur við skráakerfi netkerfa. Lengst af var skráa- kerfi netkerfa tiltölulega hægfara á SUN og jafnvel ennþá hægara á Linux. Flestir eru farnir að styðja það sem kallast NFS útgáfa 3. Það er mikilvægt fyrir Linux að styðja þetta vegna þess að á 100 Mb/s net- um gengur núverandi NFS ekki vel. Það eru grundvallargallar í hönnun á NFS en með NFS útg. 3 eru málin leyst og Linux þarf að styðja þetta. 120 högunin er trúlega atriði sem snertir bara fólk sem vinnur við gagnagrunna. Þeir sem eru kunnugir IBM móðurtölvum setja fram þá hugsun að láta sérstaka gjör- va sjá um I/O þannig að álagið sé ekki sett á megingjörvan sem sér um gagnagrunn- inn. Hann er ekki látinn sjá um I/O á disk- um og netinu. I stað þess að megin- gjörvinn gefi ítarleg fyrirmæli þá gefur hann almenn fyrirmæli til þessara viðbót- argjörva. Lokaatriðið er stuðningur við USB en það verður æ mikilvægara. Bráðlega verða fáanlegar PC tölvur sem eingöngu verða búnar USB og þær verða afar ódýrar. Arnaldur Axfjörð Einar H. Reynis Frá Linux-ráðstefnunni: Bruce Perens iengst til vin- stri, Alan Cox í miðju og til hægri er formaður und- irbúningsnefndar Eggert Olafsson. Tölvumál 9

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.