Tölvumál - 01.07.1999, Blaðsíða 32

Tölvumál - 01.07.1999, Blaðsíða 32
Tungutækn Excel; Netscape, Internet Explorer; Eu~ dora;...) 2. Unnt verði að nota íslenska bókstafi (áéíóúýðþæöÁÉÍÓÚÝÐÞÆÖ) við allar Megináhersla á þá aðstæður; í tölvum, GSM-símum, texta- þætti sem varða dag- varpi og öðrum tækjum sem almenn- legt líf ingur notar. 3. Unnið verði að þróun málgreiningar fyrir íslensku, með það að markmiði að geta greint íslenskan texta í orðflokka og setningarliði. Til þess að það sé hægt þarf að: 3.1. Koma upp stórri tölvutækri texta Tölvuforrit á almenn- heild með íslenskum textum af sem um markaði verði á fjölþreyttustum toga til að byggja íslensku áframhaldandi vinnu á. 3.2. Koma upp fullgreindu orðasafni (með málfræðilegri og merkingar legri greiningu) til nota í áfram haldandi vinnu. 4. Til verði góð hjálparforrit við ritun texta á íslensku, s.s. orðskiptiforrit, staf- Islenskur talgervill setningarleiðréttingarforrit, málfarsleið- réttingarforrit o.fl. 5. Til verði góður íslenskur talgervill sem geti lesið upp íslenskan texta með skýr- um og auðskiljanlegum framburði og eðlilegu tónfalli og sem sé skiljanlegur án þjálfunar. 6. Unnið verði að þróun talgreiningar fyrir íslensku, með það að markmiði að til verði forrit sem geti túlkað eðlilegt ís- lenskt tal. 7. Unnið verði að þróun forrita til vél- rænna þýðinga milli íslensku og ann- arra tungumála, m.a. til að auðvelda leit í gagnabönkum. 8. Að sumum þessara verkefna hefur nokkuð verið unnið, að öðrum lítið sem ekkert, en öll eiga langt í land. Framhaldið Skýrslan hefur verið kynnt í ríkisstjórn- inni, auk þess sem menntamálaráðherra og skýrsluhöfundar kynntu hana á fundi í Odda 28. apríl. Komið hefur fram að stjórnvöld hafa ekki tekið afstöðu til til- lagna nefndarinnar en munu beita sér fyrir umræðum um skýrsluna á almennum vett- vangi og meðal sérfræðinga, og einnig fær verkefnisstjórn ríkisstjórnarinnar um upp- lýsingasamfélagið skýrsluna til umsagnar. Framhaldið er því enn óljóst. Það er þó greinilegt að áhugi á tungu- tækni fer ört vaxandi, og sífellt fleiri átta sig á mikilvægi þessa sviðs í upplýsinga- samfélaginu. Því er full ástæða til að vænta þess að tillögum nefndarinnar verði hrint í framkvæmd, a.m.k. að einhverju leyti. Það er hins vegar mikilvægt að sú umræða sem stjórnvöld boða nú fari fljótt af stað og verði markviss og árangursrík. I þessari umræðu þurfa að taka þátt hugbúnaðarframleiðendur og málfræðing- ar, einkafyrirtæki og opinberar stofnanir, stjórnvöld og tjárfestar, og smíða í sam- einingu undirstöðu að nýjuin og þroska- vænlegum íslenskum iðnaði sem jafnframt eflir íslenska tungu og gerir henni kleift að blómstra í upplýsingasamfélaginu. Dr. Rögnvaldur Olafsson eðlisfræðingur og Eiríkur Rögnvaldsson prófessor 32 Tölvumál

x

Tölvumál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.