Vísir - 13.12.1962, Blaðsíða 1

Vísir - 13.12.1962, Blaðsíða 1
52. árg. — Fimmtudagur 13. desember 1962. — 281. tbl. JóIaiöQ hljómplötum a Viðtækar aögerðir í jólaumferðiimi 2ja ára fangelsi Lögreglan í Reykjavík hefur ákveðið að gera miklar ráðstaf- anir vegna umferðar á helztu umferðargötum í bænum nú þegar jólin taka að nálgast. Með al þessara aðgerða er að ein- stefnuakstur er tekinn upp á nýjum götum, bifreiðastöður eru bannaðar og takmarkaðar og umferð vörubifreiða tak- mörkuð. Aðgerðir þessar gilda á tíma- bilinu 14.—24. desember. Einstefnuakstur verður nú tek inn upp í Pósthússtræti, þannig að aðeins má aka það í suður frá Hafnarstræti. Þá má aðeins Frh. á bls. 5 I gær var í Sakadómi Reykja- víkur kveðinn upp dómur í máli, sem höfðað var gegn manni fyrir kynferðismök við telpu innan lög- aldurs. Dómurinn komst að þeirri niður- stöðu að maður þessi, Pétur Han- sen frá Þingeyri, 23 ára gamall og kvæntur, hafi gert tilraun til sam <■— ■ ... ———— fara við 11 ára gamla telpu, en atburður þessi átti sér stað í októ bermánuði sl. Pétur var fyrir at- ferli þetta dæmdur til 2ja ára fang elsisvistar, óskilorðsbundið og til greiðslu sakarkostnaðar. 260 þúsund I gærkvöldi var kveðinn upp dómur á Seyðisfirði í máli tog- arans DINAS frá Fleetwood og var skipstjórinn, James Arthur Ness, dæmdur í 260 þúsund króna sekt til Landhelgissjóðs og afli og veiðarfæri voru gerð upptæk. Togari þessi var sem kunnugt er tekinn við Langa- nes. SA S „stelur" !íku // Ummæli kristjáns Guðlaugssonar, formanns Loftleiða í vlðtali við Vísi í morgun svaraði Kristján Guðlaugsson, stjómarform. Loftleiða nokkr- um ummælum Sir William Hild red, framkv.stjóra IATA, sem hann lét falla á fundi með blaðamönnum f Stokkhólmi. Sir William sagði að Loftleið ir stælu farþegum frá öðrum flugfélögum. Sagði hann að það flvgfélaga, sem flytti farþega frá landi sem ekki væri heima- land hans, til lands, sem ekki væri heldur heimaland farþeg- ans stæli farþegum frá öðrum flugfélögurft. Um þetta sagði Kristján Guðlaugsson: — í samningum sínum við bandarísk yfirvöld um flugferð ir til Bandaríkjanna hefur SAS neitað að gefa nokkrar upplýs- ingar um það hverjar séu raun verulegar endastöðvar farþega félagsins. Enda liggur það ljóst fyrir að SAS gerir nákvæmlega það, sem Sir William kallar „þjófnað“ hjá okkur. Sir William sagði einnig á Ekki óformuS hærri áiagn- iag vegna segir formaður kaupmanna- samtakanna — Við höfum engin áform um að knýja fram álagningarhækkan ir í sambandi við tillög- ur okkar um breyttan sölutíma, sagði Sigurð- ur Magnússon, formað- ur Kaupmannasamtaka íslands við Vísi í morg- un. — Við höfum fyrst og fremst haft f huga hagræðingu á af- greiðslutíma og þar með vinnu tíma afgreiðslufólks, sem ekki hefir í för með sér útgjalda- aukningu fyrir okkur. En þetta veltur á samkomulagi við sam tök verzlunarfólks, Verzlunar- mannafélag Reykjavíkur. Og ef þetta kostar okkur ekkert, þá liggur auðvitað í augum uppi að við þurfum ekki álagn ingshækkun af þeim sökum. Ég á bágt með að skilja hvers vegna Tíminn er andsnúinn okk ur kaupmönnum í þessu máli. Ég veit ekki af hvaða rótum sú andúð er. En hún ristir djúpt, því að Tfminn gerir okk ur upp alls kyns fyrirætlanir, sem ekki hafa verið ræddar hjá okkur. Ég vil taka það fram að gefnu tilefni að yfirgnæfandi meiri- hluti kaupmanna er samþykkur tillögunum eins og þær liggja nú fyrir. Ég er jafnframt sann- færður um vilja verzlunarfólks ins sjálfs til viðræðna um þessi mál. En af skiljanlegum ástæð- um þarf að viðhafa fyllstu til- litssemi og gætni í meðferð málsins, því að ávallt er erfið- leikum bundið að breyta því sem lengi hefur verið í gildi blaðamannafundinum að IATA leitaðist við að halda fluggjöld unum, sem allra Iægstum. Um þetta sagði Kristján: — Á fundi samtakanna í Ari zon fyrir skömmu fóru fjölmörg flugfélög fram á það að fá að hækka fargjöldin. Það er ekki að vita nema sú hækkun hefði verið leyfð, ef Loftleiðir hefðu ekki verið til. En það er augljóst mál að IATA getur ekki samþykkt hækkanir á fargjöldum á Norður Atlants hafsleiðinni meðan við störfum. Karl Nilsson forstjóri SAS tal aði um nauðsyn þess að ríkis- stjórnir Norðurlanda þjörmuðu að Loftleiðum, en bætti því við að það myndi ekki vera fram- kvæmanlegt. Um þetta sagði Kristján: — Við höfum fimm lendingar leyfi á Norðurlöndum. Þar af af fréttum um nýútkomnar bæk ur og um fátt er meira talað. Margir rithöfundanna eru svo andríkir og afkastamiklir, að þeir senda frá sér fleiri en eina bók á ári, ýmist framhald af fyrri bókum 'eða sjálfstæðar bækur. Það er mikið gott, að svo vel skuli vera séð fyrir þeim andlegu þörfum íslend- inga, sem bókaútgáfa getur full nægt. En það er ekki nóg. And inn nærist ekki eingöngu á bók- menntum, hann verður einnig að fá sinn skammt af tónlist. En þar sem það telst til undan- tekninga, að ný hljómplata sjá- ist eða heyrist auglýst fyrir jól in, fór Vísir á stúfana til að grafast fyrir um hverju þetta sætti. 1 ljós kom að tónskáld og hljómplötuútgefendur eru ekki Framh. á bls. 5. er ein ferð til Helsingfors. Þá eru eftir fjögur lendingarleyfi fyrir hin löndin. Þau geta ekki verið færri. Það er ekkert til að 'skera niður. Ms. Hekla heldur óbreyttri áætlun M. s. Hekla hcldur áætlun sinni óbreyttri áfram, enda ekkert sem bendir til þess að hún hafi orðið fyrir neinum skemmduni við áfallið í Fáskrúðsfirði í fyrrinótt. Á þessa leið fórust Guðjóni Teitssyni forstjóra Ríkisskips orð, er Vísir átti tal við hann í morg- un. Þá var Hekla komin til Norð- fjarðar á leið norður um. Hún fer lengst til Akureyrar, snýr þar við og fer til Austfjarða aftur, þaðan svo suður og vestur til Reykjavík- ur. Samkvæmt áætlun á Hekla að koma til Reykjavíkur aftur þann 18. þ. m., en ekki er ennþá vitað hvort sú áætlun stenzt eða ekki. M. s. Helka losnaði af sjálfsdáð- um um hádegisleytið í gær. Var þá losað úr tönkum að framan en vél ar skipsins samtímis settar í gang. Fór skipið þá fljótlega á flot, enda nægilegt dýpi undir þvl að aftan. Forstjóri Ríkisskips kvaðst ekki gera ráð fyrir að skipið hafi neitt laskazt, enda ekkert komið fram sem bendi á nokkurn hátt til þess. Skipið seig mjög hægt upp i mar- bakkann eftir að akkeri höfðu ver- Frh. á bls. 5. VISIR

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.