Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Tölvumįl

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Tölvumįl

						Rafræn vioskipti

Allt of algengt er að

lausnir séu valdar og

settar upp án slíkrar

forathugunar

Þættir rafrænna viðskipta

færslum minnka líkurnar á röngum

innslætti og öðrum mannlegum mistökum.

Allir þessir þættir gefa aukið hagræði í

rekstri og skila þar með arði af viðkom-

andi fjárfestingu. Áður en ákveðið er að

fjárfesta í rafrænum lausnum er mikilvægt

að gera sér strax í upphafi grein fyrir arð-

semi hennar, innleiðingu og áhrifum á

starfsemi fyrirtækisins eða stofnunarinnar.

Allt of algengt er að lausnir séu valdar og

settar upp án shkrar forathugunar, en slíkt

leiðir jafnan til ómarkvissrar nýtingar,

óþarfa kostnaðar og þar með minni arð-

semi af framkvæmdinni í heild sinni.

Miðlægir brunnar

Þegar fyrirtæki ná árangri með samræmd-

um rafrænum viðskiptum er mikilvægt að

ná því að samnýta allar upplýsingar sem

eru almennar og algildar. Því þarf að vera

unnt að sækja slíkar upplýsingar í mið-

læga brunna sem innihalda grunnþætti

eins og vörulýsingar, ýmsar upplýsingar

fyrir mismunandi atvinnustarfsemi, skrár

yfir fyrirtæki og einstaklinga, upplýsingar

um viðskiptahætti fyrirtækja og rafræna

útfærslu á þeim, upplýsingar varðandi raf-

ræn skírteini og vottun, auk ýmissa ann-

arra miðlægra gagnagrunna.

Sem dæmi um miðlæga brunna má

nefna kjarna rafrænna markaðstorga þar

sem vörulistar, vörulýsingar og aðrar upp-

lýsingar sem tengjast vörum og viðskipt-

um með þær eru settar fram á staðlaðan

hátt. Viðskiptavinir hafa þannig aðgang að

mikilvægum upplýsingum á sameiginleg-

um vettvangi, sem auðveldar þeim að eiga

viðskipti sín á milli.

Opnar lausnir

Það er ekki nóg að tvö fyrirtæki komi sér

saman um það hvernig þau muni skiptast á

tilteknum gögnum í viðskiptum. Það þarf

að leggja áherslu á miðlun upplýsinga,

ekki bara gagna. Það er heldur ekki raun-

hæft að ætla einum aðila að vera einskon-

ar þýðari fyrir viðskiptagögn úr framsetn-

ingu eins hugbúnaðarkerfis yfir í skráar-

form sem annað kerfi skilur, nema sá aðili

nái þeim árangri að öll fyrirtæki og ein-

staklingar tengist honum. Slfkar lausnir

koma einungis að gagni ef þær miða við

stöðluð skeytaform fyrir viðskiptagögn,

útfæra viðskiptahætti og tryggja rekjan-

leika í miðlun gagnanna.

Það verður að tryggja að skilgreining

gagna og viðskiptahátta sé samræmd

þannig að útfærsla á viðskiptum sé þess

eðlis að hægt sé að hafa viðskipti við alla.

Því eru staðlar og samræming grundvall-

aratriði.

Viðskiptakerfi verða sífellt hæfari til að

meðhöndla upplýsingar á samræmdan

hátt, þar sem upplýsingar eru skilgreindar

og meðhöndlaðar eins á milli kerfa.

SARÍS

Hér að framan hafa orðin samræming -

samvinna og stöðlun gengið í gegnum

textann eins og rauður þráður. Það liggur í

hlutarins eðli að þegar viðskiptaaðilar eru

orðnir með beinum eða óbeinum hætti

innbyrðis tengdir í rafrænu viðskiptaneti

þurfa þeir að sammælast um þær reglur og

viðmið sem gilda á þeim vettvangi. Þörfin

er e.t.v. ekki mjög aðkallandi í dag, en

verður það í mjög náinni framtíð. ímynd-

um okkur til dæmis hvernig það væri að

koma til vestrænnar stórborgar, leigja sér

bíl og ætla að aka um götur þar sem væru

hvorki umferðareglur eða götumerkingar.

Það er nær öruggt að við annað hvort    '

leggjum bflnum við fyrsta götuhorn og

notum tvo jafnfljóta „eins og alltaf hefur

verið gert" eða finnum einhvern sem er

nægilega sjóaður til að keyra bílinn fyrir

Tölvumál

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36