Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Tölvumįl

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Tölvumįl

						Rafræn vioskipti

SARIS, Samráð um

rafrænt Island, er

myndað af fjórum að-

ildarsamtökunum;

ICEPRO, nefndar um

rafræn viðskipti, EAN

á Islandi, Skýrslu-

tæknifélagi Islands

og Staðlaráði/FUT

okkur í gegnum þvöguna. Það sama á við

um rafræn viðskipti, ef það eru engar regl-

ur eða merkingar þá verða fyrstu viðbrögð

þeirra sem reyna þau að fórna höndum og

taka upp gamla lagið, eða finna einhvern

sem hefur nægilega reynslu til að berjast í

gegnum „þvögu" óstaðlaðra viðskipta-

hátta, heimatilbúinna EDI skeyta og sér-

sniðinna staðarneta.

SARÍS, Samráð um rafrænt ísland, er

myndað af fjórum aðildarsamtökunum;

ICEPRO, nefndar um rafræn viðskipti,

EAN á íslandi, Skýrslutæknifélagi íslands

og Staðlaráði/FUT. Áheyraarfulltrúi til-

nefndur af Verkefnisstjórn um upplýsinga-

samfélagið situr fundi SARÍS. Markmið

samráðsvettvangsins er að stuðla að stöðl-

un og samræmingu á sviði rafrænna við-

skipta. Á ráðstefnu SARÍS „Rafrœn við-

skipti - Tœkifæri eða tálsýn " sem var

haldin á Grand Hótel 17. apríl s.l. að við-

stöddum iðnaðar- og viðskiptaráðherra

voru kynntir samstarfshópar sem ætlunin

er að virkja á næstu mánuðum. Hóparnir

eru fjórir og hafa verið nefndir Þekkingar-

hópurinn, Laga- og stöðlunarhópurinn,

Lausnahópurinn og Oryggishópurinn.

Markmiðið með myndun þessara hópa er

fyrst og fremst að efla tengingar SARIS

við þá aðila innan fyrirtækja og stofnana

sem hafa áhuga á málefnum hópanna, sem

vilja hafa áhrif á þróun rafrænna viðskipta

en eru ekki tilbúnir til að setjast í e.k.

stjórnir, nefndir eða ráð. Reiknað er með

því að hóparnir hittist reglulega og ræði

tiltekin mál sem annað hvort hafa komið

upp á vettvangi SARÍS eða innan hópsins.

Ályktanir hópanna verða síðan hafðar til

hliðsjónar við stefnumörkun og ákvarðan-

ir SARÍS.

Lausnarorðið

Til að ná árangri í nýtingu á upplýsinga-

tækni til framþróunar og hagræðingar í ís-

lensku atvinnulífi þurfa allir að leggjast á

eitt og mikilvægt að allir hugi að eftirfar-

andi þáttum:

•  Samræma þarf meðhöndlun viðskipta-

tengdra upplýsinga af sama toga. Sem

dæmi þá gengur ekki að gúmmíslöngur

séu ýmist mældar í metrum eða kíló-

grömmum.

•  Mikilvægt er að upplýsingakerfi þróist

jafnt og þétt þannig að bæði innri sam-

skipti milli tölvukerfa innan fyrirtækis

og ytri samskipti byggi á samræmdri

meðhöndlun upplýsinga til að auka

notagildi þeirra.

•  Mikilvægt er að styðja þróun þar sem

viðskiptakerfi fyrirtækja verða sífellt

hæfari til að miðla upplýsingum á sam-

ræmdan máta sem allir geta móttekið

og meðhöndlað.

•  Miðlægir þjónustuaðilar þurfa að styðja

uppbyggingu rafrænna viðskipta með

þjónustuþáttum sem gera miðlun við-

skiptaupplýsinga mögulega. Þeir þurfa

að bjóða aðgengi að miðlægum upplýs-

ingabrunnum, miðla viðskiptaskeytum

og bjóða miðbúnað (e. middleware)

sem gerir mögulegt fyrir fyrirtæki að

nýta sér samræmda miðlun milli tölvu-

kerfa, hvort sem þau eru innri eða ytri

kerfi.

Fyrirtæki verða að líta á rafræn við-

skipti sem lykilþátt í þróun upplýsinga-

kerfa sinna en ekki sem tímabundið átaks-

verkefni. Þau þurfa að samræma markmið

viðskiptanna og útfærslu rafrænna lausna

og viðhalda sífelldri endurskoðun á við-

skiptaferlum sínum. Stjórnendur fyrir-

tækja mega búast við að öll starfsemin

muni þróast í átt til aukinnar sjálfvirkni

viðskipta- og samskiptaferla. Tími ritvél-

arinnar og leiðréttingarborðans er liðinn,

tími samtengdra viðskiptakerfa er runninn

upp.

Rúnar Már Sverrisson er tækni- og viðskipta-

fræðingur og formaður SARIS -

Samráðs um rafrænt Island.

Amaldur F. Axfjörð er rafmagns- og tölvuverk-

fræðingur og situr í stýrihóp SARIS -

Samráðs um rafrænt Island.

8

Tölvumál

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36