Rafrænt markaðstorg Ólafur Ingþórsson Markaostorg Augu manna beinast nú hinsvegar í vax- andi mæli að rafræn- um viðskiptum milli fyr- irtækja (Business-to- Business) þar sem fyr- irtæki stefna að sparn- aði og hagræði í samskiptum sín í milli Lengi hefur verið rætt um þá kosti og möguleika rafrænna viðskipta sem felast í betri þjónustu og sparnaði í viðskiptum. Þar hefur oft verið vitnað til auðveldara og vítækara aðgengis viðskipta- vina að vörum og þjónustu fyrirtækja á s.k. fyrirtækja-til-neytenda markaði (Business- to-Consumer), þar sem m.a. Amazon.com er gott dæmi um árangursríkt fyrirtæki. Augu manna beinast nú hinsvegar í vax- andi mæli að rafrænum viðskiptum milli fyrirtækja (Business-to-Business) þar sem fyrirtæki stefna að sparnaði og hagræði í samskiptum sín í milli. Eitt af því sem hvað best hefur tekist til með á undanförnum misserum eru s.k. rafræn innkaup (e-procurement) milli fyrirtækja. Rafræn innkaup fela venju- lega í sér að fyrirtæki sem stundar innkaup (kaupandi) frá öðru fyrirtæki (seljandi) hefur aðgang að vöru- listum seljenda á raf- rænu formi ásamt þeim verðum sem viðkomandi kaupandi og seljandi hafa samið um sín í milli. Hin hefðbundna leið er að fyrirtæki skipt- ast á rafrænum við- skiptaskjölum milli- liðalaust, þ.e. kaup- endur og seljendur setja upp nauðsynleg- ar tengingar beint sín í milli. Dæmi um þetta eru rafrænar skjalasendingar á EDI formi milli fyrirtækja. Þrátt fyrir ákveðna kosti, hefur þessi að- ferð stóra galla sem felst m.a. í kostnaði og flækjustigi við fjölbreytilegar tengingar milli margra aðila. Þannig getur t.d. kaup- andi þurft að tengjast mörgum seljendum sem hann á viðskipti við, sem allir hafa mismunandi forsendur og áherslur til að stunda rafræn viðskipti. Meðal annars til að einfalda rafræn samskipti milli fyrirtækja hafa s.k. rafræn markaðstorg (e-marketplace) rutt sér til rúms sem vettvangur kaupenda og selj- enda til að stunda rafræn viðskipti. Fyrir- tæki sem vilja stunda rafræn viðskipti geta þannig nýtt samræmda aðkomu að sam- eiginlegu umhverfi til að nálgast alla sína viðskiptaaðila sem tengdir eru rafrænu markaðstorgi. Hefðbundin innkaupatengsl Markaðstorg Myndin sýnir annarsvegar flækjustig hefbundinna innkaupatengsla og hinsvegar einföldun tengslanna meö tilkomu markaðstorgs. Rafræn markaðstorg hafa verið skil- greind sem viðskiptatenging milli kaup- enda og seljenda, til að einfalda og straumlínulaga innkaupaferla fyrirtækja Tölvumál