Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Tölvumįl

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Tölvumįl

						Þekkingarsetur

Reykjavík og hugmyndir um

þekkingarþorp

Ari Skúlason

Það skiptir auðvitað

máli að skoða hvern-

ig atvinnustarfsemi á

helst heima í vísinda-

görðum

Umræða um þessi mál hefur verið

nokkuð ónákvæm og eru til dæm-

is mörg nöfn í gangi á fyrirbærinu

vísindagarðar/þekkingarþorp. Hvað menn

eiga raunverulega við í hverju tilviki er

ekki alltaf augljóst. Það eru til margar

gerðir vísindagarða með mjög mismun-

andi rekstarformi. Sem dæmi má nefna

Symbion garðinn í Kaupmannahöfn, hann

tengist engum skóla en þar er rekin öflug

sameiginleg þjónusta. Annað dæmi er

garðurinn í Surrey við London sem er í

eigu Tækniháskóla og í nánum tengslum

við hann og þar er um litla sameiginlega

þjónustu að ræða fyrir fyrirtæki innan

garðsins.

Spyrja má hvað þurfi að vera til staðar

til þess að vísindagarður geti staðið undir

nafni. Þarf t.d. æðri skóla eða rannsóknar-

stofnanir, hæft vinnuafl, frumkvöðlasetur

eða fjölbreytilega möguleika húsnæðis

hvað sveigjanleika varðar.

Margar spurningar

Hvað er raunhæft í sambandi við upp-

bygginu vísindagarða hér á landi um þess-

ar mundir? Spumingarnar sem tengjast

þessu eru margar, t.d. hversu stór hluti af

atvinnulífmu telst til þekkingariðnaðar nú,

hversu marga m2 stendur til að byggja,

hvar á að ná í viðskiptavini fyrir þær áætl-

anir sem uppi eru? Það er ljóst að yfrið

nóg er til af lausu atvinnuhúsnæði í augna-

blikinu. Hversu stór þarf þekkingariðnað-

urinn að verða til að fylla þetta allt?

Það skiptir auðvitað máli að skoða

hvernig atvinnustarfsemi á helst heima í

vísindagörðum. Fljótt á litið koma upp

þættir eins og að starfsemi sé byggð á

þekkingarinnihaldi og byggist á mannauði

í stað fjármagns og að störfin séu einkum

fyrir háskólamenntað fólk. Séu markmiðin

háleit hlýtur að vera stefnt að því að færa

hentuga starfsemi að t.d. erlendis frá og þá

einkum hátæknifyrirtæki og þróunarsetur.

Víða hefur sú leið verið farin að byggja á

stórum frumbyggjum og reyna að laða

fyrirtæki að þeim. Tilkoma íslenskrar

erfðagreiningar í Vatnsmýri gæti t.d. orðið

að slíku dæmi. Þá er oft talið nauðsynlegt

að koma upp öflugu frumkvöðlasetri inn-

an vísindagarða.

Víða hefur sú leið verið farin að stefna

að klasamyndun ákveðinna greina í vís-

indagörðum. Það leiðir hugmyndina að

spurningunni hvað við eigum við hér á

landi þegar við tölum um þekkingariðnað.

I því sambandi er oft talað um upplýsinga-

tækni og fjarskipti, líf-, lyfja- og heilsu-

tækni, nýtingu orku og nýjar leiðir í því

sambandi. Þá hefur líka verið rætt um

greinar eins og fjármálastarfsemi. Þótt sú

grein sé kannski ekki talin til þekkingar-

greina er ekki hægt að neita því að mennt-

unarstig starfsmanna þar er töluvert hátt. I

sambandi við klasamyndun þurfum við að

meta hvar við erum sterk og hvar við höf-

um sérstöðu? Á til dæmis að reyna að ýta

undir sérstöðu á ákveðnum sviðum? Það

er hins vegar ljóst að margir eru að róa á

sömu mið í þessu sambandi. Það sem við

teljum okkar styrk getur líka verið megin-

styrkur margra sem við keppum við.

Hvaö er f ramundan?

Það er ljóst að ýmis áform eru uppi á höf-

uðborgarsvæðinu í sambandi við starfsemi

af þessu tagi og þar eru ýmsir samstarfs-

möguleikar inni í myndinni. I Reykjavik

eru áform HÍ í Vatnsmýri þar sem væntan-

lega verður um að ræða samstarf við

einkaaðila og mögulega Reykjavíkurborg.

I Garðabæ eru einkaðilar með áform við

Urriðakotsvatn, í Kópavogi í Lundi svo

eitthvað sé nefnt. Spurningin er hins vegar

hvort það sé verið að tala um það sama

allsstaðar.

Á ensku er stundum talað um bæði

Business Park og Science Park og spurn-

ingin er hvort hver sem er geti kallað

áform sín hvað sem er?

22

Tölvumál

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36