Vísir - 06.10.1962, Blaðsíða 8

Vísir - 06.10.1962, Blaðsíða 8
8 V í SIR . Laugardagur 6. október 1962. Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR. Ritstjórar: Hersteinn Pálsson, Gunnar G. Schram. Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson. Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen. Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178. Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3. Áskrifstargjald er 55 krónur á mánuði. I lausasölu 4 kr. eint. — Simi 11660 (5 línur). Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f. Austurvegur Fyrir nokkru var fullgerður að kalla nýr vegur, Austurvegur, sem tengir Reykjavík og umhverfi henn ar við Suðurlandsundirlendi, sem sér höfuðborginni og öðrum byggðum vestan fjalls fyrir mestum hluta þeirra landbúnaðarafurða, sem þar er þörf fyrir. Þessi nýi vegur hefur verið all-lengi á döfinni, mun lengur en flestir munu hafa óskað. Er þar ekki við neinn að sakast, því að í svo mörg horn er jafnan að líta, að því er vegagerð snertir, að oft verða vegir útundan sem mjög er aðkallandi að vinna við. Undan farin ár hefir verið um tvo vegi að ræða milli suð- vesturkjálkans og Suðurlandsundirlendis, Hellisheið- arveg og Krýsuvíkurleið, báða með verulegum ókost- um. Hellisheiðarvegur lokast fljótlega í snjóavetrum, en Krýsuvíkurleið er mjög Iöng og getur einnig lokazt, þegar verst gegnir. Menn telja hins vegar tryggt, að nýi vegurinn verði snjóléttur og opinn allan ársins hring, hvernig sem viðrar. Vonandi rætast þessar spár manna, því að hér er um mikið hagsmunamál allra að ræða, sem búa aust- an og vestan heiðar, jafnt bænda sem neytenda. Læknaskorturinn Eins og getið var um í Vísi fyrr í vikunni, er óskip að í 12 eða 13 læknishéruð, þótt læknislaust sé að- eins í tveim eða þrem þeirra. Hefir svo verið um nokk urt árabil, að erfitt hefir verið að fá lækna í héruð úti á Iandi. Landlæknir samdi á sínum tíma tillögur til lausnar á þessu mikla vandamáli dreifbýlisins, en síðasta Al- þingi féllst ekki á þær. Virðist þá komið til kasta þess, að það bendi á leiðina sem fara beri. Enginn ágrein- ingur ætti að vera um, að nauðsynlegt er að finna skjóta lausn á þessu mikla hagsmunamáli dreifbýlis- ins. Berklavarnardagur Samband íslenzkra berklasjúklinga hefir um nær aldarfjórðungs skeið starfað undir vígorðinu: Hjálp- um sjúkum til sjálfsbjargar! Samtökin hafa lyft Grett- istaki á þessum tíma — með fulltingi almennings — og nú hjálpa þau einnig þeim, sem öryrkjar eru af öðrum orsökum en berklaveikinni, svo að ekki minnka verk- efnin. Ahnenningur á að sýna skilning sinn á þessari góðu starfsemi með því að styrkja samtökin á morg- un, á berklavarnardaginn. Frú Stefanía sem Heimilinu 1905. Magda Mæðgumar Anna og frú Stefanía saman á leiksviðinu. Anna leikur Maríu og frú Stefanía Mögdu í Heimilinu eftir Sudermann. Myndin var tekin £ Winnipeg' £ Kanadaferðinni 1921. Endurminningar Önnu Borg Við systkinin sex vorum óaðskiljanleg. Fólkið í nágrenninu hafði gaman af okkur, því að ef höf- uðið á einu okkar kom Anna og Milla dansa ballett i f jr götuhornið var það Álfhol, þegar hann var syndur ° 1 £ fyrsta sinn 1912. næstum öruggt að hin upp höfuðin fimm fylgdu á eftir. Seinna hef ég oft hugleitt það, hversu ó- vanaleg slík samheldni er í svo stórum systkina- hóp. Þegar við komum öll saman í Reykjavík Fjölskyldumynd tekin á 25 ára Ieikaraafmæli frú Stefaniu. Talið frá vinstri: Milla, Anna, Áslaug, frú Stefanía, Geir, Þóra og Borgþór Jósefsson. Elztí sonurinn Óskar var ekki með á myndinni. Hann var við nám úti í Kaupmannahöfn, en þegar hann kom heim sagði hann Önnu litlu frá dá- semdum heimsborgarinnar. I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.