Vísir - 05.01.1963, Blaðsíða 7

Vísir - 05.01.1963, Blaðsíða 7
V í S I R . Laagardagur 5. janúar 1963. 7 paii bíður dauðans Það er nú almælt í Rómaborg, að Jóhannes páfi 23. eigi ekki langt eftir ólifað. Hann ákvað í desember að fresta hinu mikla kirkjuþingi, sem hann hafði kallað saman og var ástæðan opinber- lega sögð sú, að hann væri magaveikur. En veik indi páfans munu vera al- varlegri, svo alvarieg, að þegar kirkjuþingið kemur aftur saman næsta haust, er vart búizt við að hann verði meðal lifenda. Páfinn óttast' ekki dauðann. Hann trúir því að hann muni eiga góða heimkomu á himnum. Hins vegar er hann sagður mjög á- hyggjufullur yfir því, að svo kunni að fara að kirkjuþingið mikla verði árangurslaust og starfi þess muni eigi verða fram haldið þegar hann er horfinn af sviðinu. Það er eðlilegt að hann óttist slíkt, því að þess eru mörg dæmi að nýir páfar fylgi ekki fram um- um að fresta því árið 1870, þegar styrjöld Frakka og Prússa hófst. Þó þar væri aðeins um frestun að ræða, hafði enginn eftirmanna páfa áhuga á að halda starfi þings ins áfram, hvorki Leó 13., Bene- dikt 15. né Píusarnir númer 10, 11 og 12. Tóhannes páfi telur það mjög " mikilvægt fyrir kaþólsku kirkj una, að starfi kirkjuþingsins nú verði haldið áfram. Hann hefur jafnvel gengið svo langt, sem , er einsdæmi, að gefa ákveðna vís- bendingu um það, hver hann vilji að verði kosinn eftirmaður sinn þe'gar hann fellur frá. Það er enginn vafi á því, að hann óskar þess einlæglega að til þessa háa embættis verði kjörinn Giovanni Montini kardínáli og erkibiskup af Milano. Honum treystir hann bezt til að halda áfram því um- bótastarfi á skipulagi kaþólsku kirkjunnar, sem hófst á kirkju- þinginu á s. 1. hausti. A llt frá því Roncalli kardináli settist í embætti sem Jó- hannes 23. páfi varð það ljóst, að hann hafi aðallega eitt áhuga- mál, að kalla samán kirkjuþing' til þess að endurskoða allt skipu lag hinnar kaþólsku kirkju. Hann tilheyrir nú greinilega þeim armi tíma lifnaðarhætti og skoðanir. Fyrir frestun þingsins tókst þeim aðeins að fá samþykkta eina mikilvæga breytingu, það er að breyta messuforminu, þannig að dregið verði úr notkun latínu en messur meira framkvæmdar á hverri þjóðtungu. Jþað sýnir nokkuð hvílíka á- herzlu Jóhannes páfi hefur lagt á nauðsyn þessara breytinga, að hann hefur margsinnis lýst því yfir að ákvörðunin um að halda kirkjuþingið sé miklu meira en eigin hugmynd/ eða fyrirskipun. Hann segir að sú ákvörðun sé guðleg fyrirmæli. Hann lítur svo á að í þessari ákvörðun hafi hann fengið guðdómlega opinberun. Þrátt fyrir það virðist sem hann óttist, að svo kunni að fara með kirkjuþing sem önnur fyrri, að það verði eigi til lykta l^itt, ef hann fellur frá. Þess vegna lét hann lýsa því yfir, að verkefnum þessa þings, að leysa nútíma vandamál, yrði að Ijúka. Er litið svo á að með þessu vilji hann binda hendur eftirmanns síns, svo að honum verði skylt að halda starfinu áfrani. gkömmu áður en kirkjuþinginu var nú frestað í byrjun des- Jóhannes páfi 23. biðst fyrir við setningu kirkjuþingsins. og óttast að kirkjuþingi verði ekki haldið áfram bótastarfsemi sem fyrri páfar hafa byrjað. Síðasta dæmið er það, að árið 1869 kallaði Píus 9. saman kirkjuþing, en ákvörðun var tekin kirkjunnar, sem telur að margt sé orðið úrelt í kirkjuskipuninni og að gerbreyta þurfi starfsaðferð- um hennar til samræmis við nú- ember skýrði Jóhannes páfi nokkr um vinum sfnum frá því, að hon- um yrði væntanlega eigi auðið svo langra lífdaga, að hann gæti tekið þátt í framhaldi kirkjuþings ins næsta haust. Á samkomu, sem hann hélt með enskum og banda- rískum biskupum, sagði hann m. a.: — Ef páfi er of veikur til að ljúka verki sínu, væri sennilegá betra fyrir hann að deyja. / Og á fundi með ítölskum píla- grímum sagðist hann langa til að geta setið til loka kirkjuþings- ins. Störf þess myndu þó taka langan tíma og sennilega yrði hann ekki lengur meðal þeirra I við lok þess, þá yrði annar páfi: tekinn við. heirn allan. En hin gamla fast- heldnari stefna virðist hins veg- ar enn sterkust meðal hinna ítölsku kardínála og þeir eru í sterkri aðstöðu, þar sem það eru eingöngu hinir 29 ítölsku kardín- álar, sem kjósa páfa. Sumum þess ara íhaldssömu kardínála mun hafa þótt nóg um þann byltingar- og umrótsanda, sem fram hefur komið á kirkjuþinginu.- Sumir þeirra sjá enga nauðsyn slíkra umbóta. Nú vita þeir að þeir eiga aðeins einn leik á borði, að beita hinu sérstaka valdi sem þeir hafa í páfakjörnefndinni til að velja páfa andvígan þessum breyt ingum. 17f til þess kæmi, að Jóhannes páfi 23. félli frá og nýr en afturhaldssamur páfi yrði kosinn í embættið, sem hindraði frekari umbætur, þá er hætt við að átök harðni innan kaþólsku kirkjunn- ar, því að nútíminn kallar æ sterklegar á breytingar. Meðan kirkjan stendur stirðnuð og stein runnin í miðaldahugmyndum sín- > um er eðlilegt að fólk alið upp ' í hugmyndum og þekkingu tímans hverfi frá henni. Skotinn er í sókn Drykkja á skozku whisky fer IVfikið er því undir þvi komið, jafnt og þétt í vöxt í ýnisum hver verður kjörinn eftir-; 'önduni, b.eði austan hafs og maður Jóhannesar 23. Það er nú 1 vestan- sngum vafa bundið lengur, að . Undanfarin 27 ár hefur innflutn- .... . . . , ° .. . i íngur Bandarikianna á whisky ni- sjalfur kys hann f Mont.n,. ^ Arið ^ drukku Baynda. kardínáh í Mdano verðj fynr val- ríkjamenn um 77]3 mjnjónir mra inu. Hann er nú 65 ára, einn af ^skota", og var það 5,6% meira yngsti kardínálinn cg forystumað- en árið áður og tvöfalt meira en ur hinnar nýju frjálslyndu hré>'f- þeir drukku aðeins tíu árum áður. Montini kardínáli, sem Jóhannes páfi vill að verði eftirmaður sinn. ingar innan kirkjunnar. Það virðist nú augljóst, að hin frjálslyndu öfl séu sterl uá á kirkjuþinginu, en það sitja full- trúar kaþólsku kirkjunnar um Drykkjan hefur enn aukizt, og skozkt whisky er önnur mesta út- fiutningsvara Skota, gengur næst vélum. En^það er víðar, sem menn fá sér ,,skota“, því að V.-Þjóðverjar fluttu inn um 1,9 millj. lítra árið 1959 og 1961 hertu þeir drykkjuna í 3,1 millj. lítra, en gert er ráð fyrir, að neyzlan 1962 verði næst- um 4 millj. lítra. I Þýzkalandi þykir sem stendur sérstaklega fínt að drekka „skota". í Frakklandi átti „skotinn" hins vegar erfitt uppdráttar vegna inn- rlutningshafta, en 1960 var losað um þau og 1961 fluttu Frakkar inn 3,3 millj. lítra, og enn var drykkjan hert á þessu ári. En kon- íak hefur éinnig verið í sókn, því að á sama tíma hefur neyzla þess um heim allan aukizt úr 35 mill- jónum í um 50 millj. flöskur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.