Vísir - 07.06.1963, Blaðsíða 4

Vísir - 07.06.1963, Blaðsíða 4
4 V í SIR . Föstudagur 7. júní 1963 AFREKSMADUR á SÓTTARSÆHC Rætt við Stefán Stefánsson skipstjóra á Halkion CTEFÁN STEFÁNSSON, skip- stjóri á M.b. Halkion frá Vestmannaeyjum og áhöfn hans hlutu afreksverðlaun Sjómanna- dagsins fyrir að bjarga áhöfn- um af Bergi og Erlingi IV., en báðum þessum skipum hvolfdi. Auk þess höfðu þeir á Halkion fundið vélbátinn Blátind, sem var með bilaða vél við Færeyjar, og dregið hann til lands. Stefán Stefánsson, sem hef- ur verið svo gæfusamur að bjarga á tveim árum 24 mönn- um, er 32ja ára. Hann er frem- ur hár, grannur, með ljóst lið- að hár og lítur út fyrir að vera yngri en hann er. Ctefán gerir lítið úr sínum þætti í þessum björgunum. Segir hann svo frá björgun áhafnarinnar á Bergi þann 6. desember 1962: „Bergur var á leið til lands, með um 800 tunnur af síld, er hann fékk á sig brotsjó og hvolfdi. Veður var ekki sérlega slæmt, en það er alltaf straum- ur og slæmur sjór í kantinum á Kollaál. Þetta gekk svo fljótt fyrir sig að þeim gafst rétt tíipi til að komast í talstöðina og sögðu að bátnum væri að hvolfa. Við heyrðum ekki hvað þeir sögðu, en einn bátur heyrði það og tilkynnti það flotanum. Bergur hafði nýlega farið fram- hjá okkur, svo að við vissum hvaða stefnu hann hafði siglt, og gátum því farið beint á eftir þeim.“ Enn frægari varð björgun skipshafnar á Erlingi IV. þann 22, marz síðastl. og segir Stef- án svo frá því: „Þessa nótt ætlaði ég ekki út. Netin voru á hrauni og veð- ur það slæmt að ég taldi að ekki myndi verða hægt að draga. Það varð þó úr að við fórum og get ég enga sérstaka skýringu gefið á því. Við vor- um um hálftíma á eftir Erlingi IV., þegar honum hvolfdi. Það er sérstök árvekni hjá mann- inum sem var við stýrið að taka eftir blysinu. Ég gerði mér ekki grein fyrir því strax að um neyðarljós væri að ræða. Aldan var það mikil að þetta sást eins og snöggur glampi. Við vorum komnir til þeirra eftir um hálftíma.“ Ctefán segir frá björgun Blá- tinds: „Það er varla hægt að kalla það björgun, er við fundum Blátind. Báturinn var ekki í hættu að öðru leyti en þvl, að hann fannst ekki. Við vorum á leið til Englands, og komnir langleiðina til Orkneyja, þegar við snérum við. Sigldum við svo í átt til Færeyja og þegar við fengum Blátind inn á radarinn, sáum við að ekki munaði nema hálfri gráðu að við stefndum beint til þeirra. Til gamans héldum við ó- breyttri stefnu og þegar við vorum eina mílu frá honum sá- um við hann í þokunni. Við drógum hann svo til Færeyja". Ctefán fór í Verzlunarskólann ^ og útskrifaðist úr fjórða bekk 1951. Fór hann síðan I lærdómsdeild skólans, en hættí námi þar. „Ég sá að ég var of góð- hjartaður til að geta orðið kaupmaður," segir Stefán bros- andi. „Meginástæðan var þó sú, að mig langaði alltaf á sjóinn. Upphaflega fór ég í skólann af Framh. á bls. 10 Stefán á spítalanum. (Ljósm.: S. J. Galdra-Loftur seldi sálina fjandanum, særði fram drauga og gerðist myrkur í andanum, hrifsaði í Rauðskinnu. En hann var sterkari draugurinn og hafði betur. — Síðan lokaðist haugurinn. Nú reynir Eysteinn að vekja upp vinstri stjómlna, vofuna rauðu, — og ekki sparar hann fómina. Ráðherrastóllinn er „Rauðskinna“ nýja meistarans, en rökin sótt eins og áður til gamla freistarans. CRI! ao iiin fórnar öllu fyrir von um ráðherrastól — en verður svipfur faeirri von sinni á sunnudaginn kemur Galdra Loftur fórnaði öllu fyrir Rauð- skinnu — en missti af henni Galdra Eysteinn

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.