Vísir - 21.06.1963, Blaðsíða 11

Vísir - 21.06.1963, Blaðsíða 11
V í S I R . Föstudagur 21. juní 1963. IfHHH n WBP3 ÚTVARPIÐ Föstudagur 21. júfu'. Fastir liðir eins og venjulega. 8.00 Morgunútvarp 13.15 Lesin dagskrá næstu viku. 13.25 „Við vinnuna": Tónleikar. 15.00 Síðdegisútvarp. 18.30 Harmonikulög. 20.00 Efst á baugi (Björgvin Guð- mundsson og Tómas Karls- son). 20.30 Píanómúsík. 20.45 í ijóði: Dagur og nótt, — þáttur í umsjá Baldurs Pálma sonar. Lesarar: Finnborg Örn- ólfsdóttir og Bjami Guð- mundsson. 21.10 Tónleikar. 21.30 Útvarpssagan: „Aiberta og Jakob“ eftir Com Sandel, 8. (Hannes Sigfússon). 22.10 Kvöldsagan: „Keisarinn í Al- aska“ eftir Peter Groma, III. (Her- steinn Pálsson). 22.30 Á síðkvöldi: Létt-klassfsk tón ,list. 23.15 Dagskrárlok. > .1 ‘ SJONVARPIÐ Föstudagur 21. júní. 17.00 Password 17.30 The Big Story 18.00 Afrts News 18.15 Greatest Dramas 18.30 Lucky Lager Sports Time 19.00 Current Events 19.30 Dobie Gillis 19.55 Afrts News 20.00 The Garry Moore Show 21.00 The Perry Como Show 22.00 Tennessee Ernie Ford Show 22.30 Northern Lights Playhouse „Wake of the Red Witch“. SÖFNIN Borgarbókasafn Reykjavíkur, sfmi 12308 Pingholtsstræti 29A. Útlánsdeild: 2-10 alla virka daga nema laugardaga 1-4. Lokað sunnu daga. Lesstofa: 10-10 alla virka daga Otibú Kofsvallagötu 16: 5,30-7,30 HEIMSÓKNARTIMAR SJÚKRAHÚSANNA Borgarsjúkrahúsið: kl. 14-15 og kl. 19-19.30. Landspitalinn kl. 15-16 (sunnu- daga kl. 14-16) og kl. 19-19.30. Fæðingadeild Landspftalans: kl 15-16 (sunnua. kl. 14-16) og kl. Tekid á móti tilkynningum i bæjarfréttir i sima 1 16 60 Allt fyrir bflinn nefnist smell- in norsk kvikmynd, sem nú er sýnd í Stjömubíói. Hún er frá Norsk Film A/S og er úr sama flokki og kvikmyndin ALLT FYRIR HREINLÆTIÐ, sem hér var sýnd við miklar vinsældir. Mynd þessi er tekin að nokkm á eynni Mallorka. Hún heitir á norsku „Sönner av Norge kjöp- er bii“, og eru aðalhlutverk Ieik in af Per Theódor Haugen og Inger Marie Andersen, en ann- ars fjallar hún aðallega um það hvemig nokkrar eiginkonur f sambýlishúsi lækna karlana sina af — „bíladellu“. stjörnuspá M ^ morgundagsins Hrúturinn, 21. marz til 20. apríl: Það sem hefur ónáðað þig að undanförnu lætur enn tals- vert að sér kveða. Það, sem hjálpar þér bezt, er hugrekki og mótstöðuafl. Nautið, 21. apríl til 21. maí: Vera má að þú þurfir að beita hugsuninni meira en venjulega til þess að tilfinningar þínar og hvatir hlaupi ekki með þig í gön ur. Horfur á árekstrum. Tvíburamir, 22. maf til 21. júnf: Fæstir hlutir eru svo nauð synlegir að þeir réttlæti fljót- færni í orði eða verki. Krabbinn, 22. júní til 23. júlí: Þrátt fyrir að þú hafir löngun til að láta bera á þér, þá er hyggilegra að hafa hægt um sig f dag. Láttu ekki freista þín til að opinbera leyndarmál þín. Ljónið, 24. júlf til 23. ágúst: Hyggilegt væri af þér að lána ekki fjármuni eða taka að láni í þeim tilgangi að kaupa ein- hvern glysvarning. Meyjan, 24. ágúst til 23. sept.: Þú hefur margar athugasemdir fram að færa við fólk, sem er þér ekki sammála. Það væri samt viturlegra að láta ekki mik ið á sér bera. Vogin, 24. sept. til 23. okt.: Það nægir ekki að lfta á hlutina frá einni hlið til að hægt sé að mynda sér skoðanir um þá. Þú ættir að reyna að forðast hætt- ur í dag. Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.: Láttu ekki leiðast til að festa kaup á hlutum, sem þú ættir alls ekki að koma nálægt og hefur alls enga þörf fyrir. At- hugaðu vandlega allar kröfur annarra til þín. Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21. des.: Farðu með einkafjármuni þína f samræmi við æðri hug- sjónir þínar. Láttu aðra ekki hafa áhrif á þig í þessum efn- um. Steingeitin, 22. des. til 20. jan.: daki þinn eða náinn félagi mundi glaður hjálpa þér, ef þú ert ekki uppstökkur. Hafðu ekki áhyggjur af hlutunum, því þetta er allt að breytast á betri veg. Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr.: Þú hefur talsvert mikla tilhneigingu til að eyða of miklu í dag. Það væri ráðlegra að fresta stefnumótum þangað til á morgun. Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz: Oft kemur sér vel að bönd ástarinnar eru trygg, þeg- ar stormar fjölskylduerjanna geysa. Segðu ekkert sem sært getur ástvini þína. Ýmislegt Ferðafélag íslands ráðgerir eft- irtaldar ferðir um næstu helgi: — Tvær eins og hálfs dags ferðir f Landmannalaugar og Þórsmörk, - Sunnudagsferð f Þjórsárdal. Á laug ardag 6 daga ferð um Barðaströnd, Látrabjarg — Arnarfjörð. Upplýs- ingar í skrifstofu félagsins í Tún- götu 5. Sfmar 19533 og 11798. MINNINGARSPJÖLD Munið minningarsjóð Guðrúnar Gísladóttur Björns. — Minningar- spjöld fást hjá frú Sigríði Eirfks- dóttur Aragötu 2, Sigurlaugu Helga dóttur yfirhjúkrunarkonu Bæjar- spftalanum, Sigrfði Bachman yfir- hjúkrunarkonu Landspítalanum, Jónu Guðmundsdóttur Kópavogs- braut 11, Guðrúnu Lilju Þorkels- dóttur Skeiðarv. 9, Halldóru Andr- ésdóttur Kleppsvegi 48, og í verzl- un Guðlaugs Magnússonar Lauga- vegi 22 A. Hinn nýi ambassador Belgíu herra Louis-Ghislain Delhaye afhenti í fyrradag forseta Islands trúnaðar- bréf sitt við hátíðiega athöfn á Bessastöðum, að viðstöddum utanríkisráðherra. R I P K I R B Y Vesalings Desmond líður hörmuiega, því hann hefur ekki hugmynd um hvar Kirby er. Hann hugsar með sér: Aumingja herra Kirby kemst ekki heim meðan þessir lögreglumenn sitja um húsið. Mér þætti fróðlegt að vita í hvaða holu hann hefur orðið að fela sig. En Desmond er með óþarfa áhyggjur að því er virðist. Kirby er hreinn og þokkalegur og líður bara vel. Hann hugsar með sér: Ef þeim dettur f hug að leita í almenn- ingsbókasafni, þá eiga þeir full- komlega skilið að finna þig.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.