Vísir - 29.08.1963, Blaðsíða 3

Vísir - 29.08.1963, Blaðsíða 3
V1S 1R . Fiinr.ií .’dagur 29. águst 1963, ....................................... IMI'III 3 HÚSIÐ er auðsjáanlega orðið gamalt. Það er frekar dimmt, og lágt til lofts. Umhverfið hef- ur yfir sér einhvem annarleg- an blæ, og þessar gömlu vélar, grófir veggirnir og lyktin, minna einna helzt á enska iðnbylting- armynd. Einu sinni voru þær nýjar, og vöktu þá aðdáun og undrun, eins og arftakar þeirra gera í dag. En nú er niður þeirra þagnaður fyrir fullt og allt. — Tækninni hefur fieygt fram, og þær orðið úreltar. Það var töluvert umstang og nokkuð erfiði að vinna við þess- ar gömlu vélar. Þegar ullin hafði verið greidd var hún fyrst látin í sápulútar- kar. Síðan var hún látin í ullar þvottakar, og vandlega skoluð upp úr volgu vatni. Þá var hún undin og sett í sltápa til þurrk- unar. Skáparnir, sem voru hitaðir með hveravatni, urðu allt að 60 stiga heitir, og þar þornaði ull- in á um það bil 12 tfmum. Það þurfti mörg handtök, og margur svitadropinn hefur fallið í þess- ari gömlu verksmiðju. En nýjar vélar taka við af þeim gömlu, og þá er þeim gömlu fleygt. ★ Ef við göngum inn i næsta sal, þá sjáum við vélarnar, sem tekið hafa við. Þar er þungur niður, hróp og köll, og allt ber vott um annríki. Hér er hátt til lofts og vitt til veggja. Salur- inn er bjartur og allt er gljá- fægt og hreint. Stórar vélasam- stæður teygja sig eins og stór skrímsli fram eftir gólfinu, og vlnna af fullum krafti. Þær hafa tekið við af gömlu vélunum i litla salnum. Það var Björn Þorláksson, bóndi á Varmá í Mosfellssveit, sem hóf byggingarframkvæmdir við Álafoss veturinn 1894—95. Hann fór til Noregs og keypti þar tóvinnuvélar, sem settar voru upp næsta vetur, og byrj- aði ullarvinnslu þann 1. apríl 1896. Vélamar voru knúnar vatnsorku frá Álafossstíflunni, ullin þvegin up úr volgri ánni og þurrkuð úti til að byrja með. ★ í apríl 1896 var við Álafoss litið verksmiðjuhús úr steini og lítið timburhús, þar sem starfs- fólkið, innan við 10 manns, bjó. En framkvæmdir hafa orðið miklar og er risið lítið snoturt þorp, þar sem stórar verksmiðju- byggingar gnæfa upp úr. Verk- smiðjan rekur ýmislegt, sem starfsfólkinu er ómissandi, svo sem mötuneyti, barnagæzlu, sundlaug, böð, vélaverkstæði, frystigeymslu, bifreiðaverkstæði o. m. fl. Hús eru öll hituð með hveravatni. Verksmiðjan tekur við ullinni beint frá bændunum, og full- vinnur hana í margvíslega sölu- vöru, svo sem trefla, teppi, á- klæði, Ieista o. fl., og til þess fóru á s.I. ári 160 tonn af ull, en búizt er við að nú muni framleiðslan tvöfaldast. M Y N D I R: Efsta mynd: Þetta eru nýju vél- amar, sem teknar hafa verið í notkun á Álafossi. Einn starfs- mannanna stendur við þær. í miðju: Verkstjórinn Guðjón Hjartarson við einn gömlu þurrk skápanna. Neðst t. v.: Teppum pakkað inn áður en þau fara á markaðinn. Neðst t. h.: Hér stendur einn af starfsmönnum Álafoss við aðra gömlu ullarbvottayélina. Gamli og nýi tím- inn á ÁLAFOSSI

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.