Vísir - 02.06.1964, Blaðsíða 5

Vísir - 02.06.1964, Blaðsíða 5
VÍSIR . Þriðjudagur 2. júní 1964. ■ utlönd í morgun útlönd 1 morgun útlönd í morgun 'útlönd í morgun HASTRI VAR IMORSUN VAL■ INN EFTIRMA BUR NEHRUS Lal Bahadur Shastri var í morgun snemma einróma -kjör- inn þingleiðtogi indverska Kongressflokksins og forsætis- ráðherra Indlands, og tekur hann þannig við hlutverki hins nýlátna forsætisráðherra, Nehrus. Nokkur togstreita var um hver skyldi ve*ða eftirmaður Nehrus, og horfði svo í bili, að vafasamt væri um val Shastris, en í gær fóru menn almennt að sveigjast til fylgis við hann, en það var lögð áherzla á það af öllum, að hann yrði kjörinn ein- róma. Var hann kjörinn af framkvæmdastjórn flokksins og ' þingflokksins. Shastri er 59 ára. Hann var ráðherra í stjórn Nehrus, án umráða yfir sérstakri stjórnar- deild, og í veikindum hans tók hann að sér ýmis störf hans, Shastri hlaut ekki æðri mennt- un erlendis, eins og Nehru, sem stundaði nám í Cambridge-há- skóla, og hann dvaldist ailan sinn aldur á Indlandi, án þess að ferðast neitt út um heim. Lengst burt komst hann í ferð til nágrannalandsins Nepals. Shastri flutti ræðu, er hann hafi orðið fyrir valinu. Hann sagði, að fráfall Nehrus væri mikið áfall fyrir flokkinn og þjóðina og nú væri fremur en nokkurn tíma fyrr þörf fyrir einhug flokks og einhug þjóð- ar. Hætturnar væru margar. Óvissa væri um hvað leiðtogar Kínverska alþýðulýðveldisins hygðust fyrir gagnvart Indlandi og þar gæti verið mikil hætta á ferðum, en fátæktina og at- vinnuleysið kallaði hann annars mestu féndur Indlands, og þá yrði að sigra, — í því sem öðru hefði Nehru markað brautina, og bezta ráðið væri örugg og skjót framkvæmd tillagna hans. Menn ætla, að Shastri muni starfa í anda Nehrus og fram- fylgja þeirri stefnu, sem hann hafði markað, hlutleysisstefn- unni. Hann þakkaði þingmönnum almennt fyrir að hafa valið sig og Desai sérstaklega. Hann hafði marga fylgjendur, en dró sig í hlé, til þess að eining gæti náðst um valið. Lal Bahadur Shastri. Hafmeyjan litics komin á sinn stað Hafmeyjan litla er komin á sinn stað á Löngulínu, eftir að sett hefir verið á hana nýtt höfuð vegna skemmdarverksins, sem unnið var á henni. Margt manna var viðstatt hátíð- lega athöfn sem fram fór. Borgar- stjóri flutti ræðu og lagði rósavönd í fang hafmeyjunni. Nýjar fréttir i stuttu máli ► Ungverjar senda sérfræðinga til Yemen til aðstoöar á sviði efna- hags-, heilbrigðis- og félagsmála. ► Viðræður bandarískra ráðherra, ambassadora og sérfræðmga hófust í gær í Honolulu og lýkur fundi þeirra i dag. — Fundurinn sitja meðal annarra Dean utanríkis ráðherra, MacNamara landvarna- ráðherra, Maxwell Taylor yfir- hershöfðingi alls herafla Banda- ríkjanna, Cabot Lodge ambassador í Suður-Vietnam o. m. fl. ► Viðræður að undirlagi Souwana Phouma forsætisráðherra Laos byrja í Vientiane eftir 1—2 daga. Bretar sendu 14 þjóðum boð, en óvíst er um þátttöku annarra en Breta, Bandarikjamanna, Iíanada- manna og Thailendinga og Suður- Vietnam. ► Tunku Abdul Rahman forsætis- ráðherra Malajsiu ræðir við John- son forseta í næsta mánuði um Suðaustur-Asiu. ^ Harold Wilson leiðtogi brezku stjórnarandstöðunnar er i Moskvu og ræðir við Krúsév — aðallega kjamorkuvopn. ^ Saknað er 60 kongóskra fall- hlifahermanna, sem árás var gerð á í miðhluta Kivi-fylkis. Óvíst er um örlög þeirra. Baráttukjarkur sambandshersins hefir lamazt enn frekar við þetta. Það voru blökku- menn af hálfgildings dvergakyni sem réðust á þennan flokk úr liði, sem kallað hefir verið „kjarni hers sambandsstjórnar“, og voru þeir vopnaðir öxum og spjótum, en stuðning fengu þeir þó frá ein- kennisklæddum uppreistarmönnum með vélbyssur að vopni, en sagt er að kínverskir kommúnistar leggi uppreistarmönnum til fé til vopna- kaupa. Þessi árás var gerð í mið- hluta Kivu-fylkis en aðalbardaga- svæðið er annars í Ruzizi-dalnum við norðurenda Tanganyikavatns. fsrael biður Banda Levi Eshkol forsætisráðherraO Israels er í opinberri heimsókn í Washington. Heimsóknin er talin afar mikil- væg, þar sem hún á sér stað skömmu eftir heimsókn Krúsévs til Egyptalands, en í henni hét hann Egyptalandi nýjum lánum, her- gögnum o. s. frv. Er nú talið, að um leið og Eshkol lýsi yfir, að ísraelska þjóðin óski eftir að búa í sátt og samlyndi við nágranna sína, vofi hættur yfir henni vegna hótana Araba og Egypta sérstak- lega, og mun Eshkol æskja stuðn- ings Bandaríkjanna. Cleopatra hárþurrkuhjálmar „CIeopatra“ hárþurrkuhjálmar eru með 12 hitastill- ingum og innbyggðri tímaklukku. — Heita loftið fer í gegnum hárið og tekur með sér rakann úr hárinú út úr hjálminum. - Þess vegna verður hið heita loft aldrei til óþæginda. Fallegt form — Hljóðlítill mótor. Kynnið yður kosti „CLEOPATRA“. Hart méti hörðu í Laos Souwana Phouma —, sem Pathet Laos styður ekki lengur, er nú farin að láta hart mæta hörðu i viðureigninni við kommúnista, og mun hafa betri tök á því en áður, eftir að hafa fengið fleiri flugvélar frá Bandaríkjunum. Landvarnaráðuneytið í Vientiane tilkynnir, að ráðizt hafi verið á herflutningalest, sem var að koma frá Norður-Vietnam, en I henni voru tvær brynvarðar bifreiðar og 9 flutningabílar með „fullfermi af hermönnum“. Árás þessi var gerð í nánd við Nonghet, sem er við hinn mikilvæga þjóðveg frá Krukkusléttu til Norður-Vietnam. Laugarvegi 10 Sími 20-301. Vesímannaeyjum: Ráftækjaverzlun Har. Eiríkssonar h.f. , SKIPAFRÉTTIR SKIPAÚTG6RB RIKISINS Ms. Skfaldbreið fer vestur um land til ísafjarðar 8. þ.m. Vörumóttaka á þriðjudag til Ólafsvíkur, Grundarfjarðar, Stykk ishólms, Patreksfjarðar, Sveinseyr- ar, Bíldudals, Þingeyrar, Flateyrar, Suðureyrar og ísafjarðar. — Far- seðlar seldir á föstudag. Ms. BsaBdur fer til Rifshafnar, Búðardals, Hjalla ness, Skarðstöðvar, Króksfjarðar- ness og Flateyrar á miðvikudag. — Vörumóttaka á þriðjudag.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.