Vísir - 02.06.1964, Blaðsíða 7

Vísir - 02.06.1964, Blaðsíða 7
VfSIR . Þriðjudagur 2. júní 1964. Byggingarþjónusta arkitekta Ólafur Jensson fulltrúi, t. v., Ieiðbeinir tveim viðskiptamönnum. Fyrir um það bil 30 árum var rituð grein í Vísi um byggingarmál og þeirri hug mynd komið á framfæri, í fyrsta skipti opinberlega hér á landi, að stofnað yrði í Reykjavík þjónustufyrirtæki fyrir almenning og iðnaðar- menn í byggingariðnaði. I 5 ár hefur slík stofnun verið starfrækt hér í Reykja- vík af Arkitektafélagi ís- lands og heitir Bygginga- þjónusta A.l. Byggingaþjónusta Arki- tektafélags Islands hóf starf semi sína 18. aprfl 1959 að Laugavegi 18a. Hugmynd arkitekta, með stofnun og starfrækslu Bygg ingaþjónustunnar er að stuðla að eðlilegri þróun í byggingarmálum lands- manna með því að hafa á ein um og sama stað stöðuga sýn ingu á sem fjölbreyttustu úrvali byggingarefna og upp lýsinga, og standi fyrir hvers konar kynningu nýrra efna, byggingartækja, tækni og byggingaraðferðum. Kvikmyndasýningar og fyr irlestrar hafa verið á vegum stofnunarinnar í Reykjavík, Akureyri, Akranesi, Hafnar- firði. Isafirði, Keflavík, Sel- fossi og Vestmannaeyjum. Fyrirlestra hafa flutt þeir Gústaf E. Pálsson, borgar verkfræðingur, Haraldur As- geirsson verkfræðingur og Jóhannes Zoega hitaveitu- stjóri Reykjavíkurborgar. Bekkjadeildir úr ýmsum skólum hafa heimsótt Bygg ingaþjónustuna og er t.d. fast ur liður hjá Iðnskólanum í Reykjavík. Um síðustu áramót flutti Byggingaþjónusta A.í. í nýtt og stærra húsnæði að Lauga- vegi 26 III. hæð. í þessum nýju húsakynnum hefur skap azt betri aðstaða til aukinn- ar kynningarstarfsemi í rúm- góðum og björtum fundarsal sem auk þess gefur mögu- leika til að halda hvers konar sérsýningar í stjórn Byggingaþjónust- unnar hafa verið arkitektarn ir Gunnlaugur Halldórsson, sem hefur verið formaður, Gísli Halldórsson og Gunn- laugur Pálsson — Á síð- asta aðalfundi baðst Gísli Halldórsson eindregið uiídan endurkjöri vegna anna og var Jörundur Pálsson arkitekt kjörinn í hans stað. Framkvæmdastjóri hefur verið frá upphafi Guðmund- ur Kr. Kristinsson arkitekt en Ólafur Jensson hefur ver ið fulltrúi Byggingaþjónust- unnar og sá sem annast hef- ur daglegan rekstur hennar og fyrirgreiðslu. ¥ Vísir hóf að birta greinar um byggingarmál á sl ári í samvinnu við Byggingaþjón- ustuna og verður væntanlega haldið áfram á þeirrL braut. Hluti af sýningarsalnum. Fremst má sjá vörur framleiddar aö Reykjalundi. Afli Breta við ís- land sami og fyrir 12 m landhelgina 1 ársskýrslu Félags Lrezkra togaraeigenda kemur fram að á síðasta ári var meir en helming- ur úthafsveiða Breta stundaður á íslandsmiðum. Fiskveiðar skipa félagsins námu í fyrra 169.700 tonnum og er það svip- að aflamagn og brezku togararn ir veiddu á Islandsmiðum 1957, árið áður en landhelgin var færð út í 12 mílur. Sýnir þessi stað- reynd að 12 mílna útfærzlan hef ir ekki valdið Bretum þeim skakkaföllum sem þeir sjálfir bjuggust við. Skýringin er að vísu að nokkru fólgin í því að nú veiða fleiri brezkir togarar hér við land en áður. Eru margir tog- aranna hættir veiðum í Norður- sjónum og við Skotland og farn ir að veiða við Island. Stærstu togararnir veiða nú einnig á ls- landsmiðum. Er það að nokkru leyti vegna minnkandi afla á öðr um miðum, t. d. við Bjarnarey í Hvltahafi. Samanlagður afli allra brezku togaranna var 1963 alls 406 þús. tonn. Er það heldur minna afla magn en árið 'áður. En aflinn varð hins vegar heldur verð- meiri vegna hækkaðs fiskverðs. Ýsumagnið var fjórðungi minna en 1962 en flatfiskmagnið meira. Judy Garland hættu- lega sjúk í Hong Kong Bandaríska söngkonan heims- fræga Judy Garland liggur lífs- hættulega veik í sjúkrahúsi í Hong kong. 1 NTB-frétt i gær var sagt, að hún hefði verið meðvitundar- laus £ 20 klukkustundir. Hún var flutt I sjúkrahúsið af völdum hjartabilunar. Eins og getið var I grein um kvikmyndir, sem birt var í blaðinu í gær, fór Judy nýlega misheppnaða söngför til Ástralíu, og var hrópuð niður, og mun ekki hafa náð sér síðan. Judy er tilfinninganæm kona, sem mjög hefir mætt á, eiturlyf hafa reynst henni hættuleg, og oft hefir hún verið í öldudalnum, en jafn- oft hafið sig upp svo að undravert þykir, en nú mun hafa syrt í ál- inn meir en nokkurn tíma fyrr. WHAPEP.BÆ ss? ss SRR VÖRÐUR HHÍ Skrifstofan i Sjálfstæð- SH ishúsinu opin f dag frá kl. 9-22. Sími 1-71-04. SH Auðveldið uppgjör I hnattferðarhappdrætt- inu með þvi að gera skil f dag eða sem allra fyrst. j SJALFSTŒÐISFLOKKSINS Tfmanum er verðbólgan mjög hugstæð þessa dagana. Á eitt drepur blaðið þó ei, held- ur þegir sem vandlegast um: upphaf verðbólguskriðunnar eftir að viðreisnin tók völdin. Þá hafði verðbólgan verið sett niður, þar til „svikasamning- arnir“ svonefndu voru gerðir á Akureyri vorið 1961. Hver gerði þá kauphækkunarsamn- inga, fram hjá samtökum vinnuveitenda og í fullri vit- und þess að verðbólguskriðan mundi hefjast á nýjan leik? Það voru engir aðrir en SÍS forkólfarnir á Akureyri, sem jafnframt eru framsóknarfor- ingjar staðarins. Til þeirra má rekja orsakir ófarnaðarins sfð ustu misserin. En auðvitað stendur ekki einn stafur um það f Tímanum. Q Húsnæðisleysi að gróðalind. . í síðasta blaði íslendings á Akureyri segir: „1 nýlega liðnum útvarpsum ræðum um almenn stjórnmál, einskonar eldhúsdagsumræður, komu margar fáránlegar kenn ingar og staðhæfingar fram . hjá stjórnarandstöðunni, svo sem flestir er hlýtt hafa á, munu minnast. Einn ræðu- manna, Geir Gunnarss., taldi aukna vinnu sem kjarabót vera blekkingu. Þessi ungi maður hefði átt að vera uppi á Fram- sóknarstjórnarárunum 1934— ’37 og sækja þá vinnumarkað. Það er mjög lftið á því að græða fyrir hlustendur að senda unga menn í útvarpið til að tala um lífskjörin f dag, þvf að þeir eiga engan saman burð aftur f tímann. Oss minnir að sami maður ympraði á þvf, að vissar stéttir f landinu gætu nú gert húsnæð isleysið að gróðalind fyrir sjálfa sig. Mun hann hafa átt við leigu íbúðarhúsnæðis. Nú vita allir landsmenn, að þess eru sárafá dæmi í seinni tfð, að menn ráðist í bygg- ingar íbúða til að leigja úr. Smáíbúðirnar, sem efnt var til að forgöngu Sjálfstæðis- manna fyrir meira en áratug, voru spor í þá átt, að sem flestir ættu sitt húsnæði sjálf- ir. Enn þann dag f dag er svo mikil eftirspurn eftir lóð- um til riíkra bygginga, að eng in leið er að fullnægja þeim, og það jafnt fyrir það, að með hverju ári sem líður er erfið- ara að afla nauðsynlegs láns- fjár til slíkra átaka. í stað þess að verulegur meirihluti alþýðu fólks bjó fyrir fjórðungi aldar f leiguhúsnæði, hefur nú veru- legur hluti þess komið upp sínu eigin húsnæði, byggðu við þess hæfi og að mörgu leyti eftir þess fyrirsögn, en þeir, sem ekki hafa farið þá leið- ina, eiga erfitt með að fá þak yfir höfuðið, vegna þess, hve fáir byggja íbúðir til útleigu. Málflutningur ræðumanns um þetta efni er því firra ein“. rwr*** ae » iri Hcnrw.il-. -a

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.