Vísir - 02.06.1964, Blaðsíða 15

Vísir - 02.06.1964, Blaðsíða 15
VÍSIR . Þriðjudagur 2. júní 1964. 15 Oskar svaraði reiðilega: — Þér haldið þó ekki að ég sé lögreglu-snuðrari? — Ég held ekkert um það eða í annað, þar sem ég veit ekki hver þér eruð, og ef þér eruð í lögreglunni eða vinnið fyrir hana ,er það mál, sem yður kemur við, en ekki mér. Þeir hafa verið einir tveir eða þrír að snuðra hér upp á síðkastið, en mér líkar ekki að menn séu að koma hingað þeirra erinda, — til þess að snuðra um beztu viðskiptavini mína. — Þér getið verið alveg ró- legur, það eru ekki neinir kær- leikar milli mín og lögreglunn- ar, það getið þér bölvað yður upp á, ég hef sannast að segja orðið hart úti vegna heimsku hennar, alsaklaus maðurinn, og þegar ég nú er hingað kominn er það til þess að afhenda dálítið sem maður, sem setti í rúðu, gleymdi - það var hjá systur minni, sem hann setti í rúðu, skal ég segja yður. Oskar tók demants-glerskera upp úr vasa sínum, alveg nýjan. — Maðurinn gleymdi nefni- lega þessum hérna. — Ja, hver skollinn, hann er alltaf 25 franka virði. - Hann fannst ekki fyrr en í morgun. — Og þér búizt við, að hafa upp á honum hér? - Já, er þetta ekki vinsæl- asti samkomustaður þeirra á kvöldin? - Satt er það. Vitið þér hvað hann heitir? - Ég hef ekki hugmynd um það, það var af tilviljun, að hann var beðinn að setja í rúð- una. Hann kom nefnilega að húsihu rétt í þeim svifum er ráð- an brotnaði fyrir slysni, og bauðst sannast að segja til þess að setja í nýja rúðu. — Jæja, þá verðið þér að bíða þar til þeir koma. Þeir neyta fjölmargir kvöldverðar hér. Þá vildi ég gjarnan fá eitt- hvað að borða meðan ég bíð. Látið mig fá eitthvað, sem þér hafið tilbúið - mér er sama hvað það er. - Þér skuluð ekki þurfa að kvarta, 'sagði Pastafrollas og fór og gaf sig á tal við eina frammi- stöðustúlkuna, sem brátt kom með disk, sem spaghetti var á. Um klukkan 9 var orðið þarna margt um manninn. Hinn gild- vaxni knæpustjóri kom þá til Oskars og hvíslaði að honum: — Nú eru þeir næstum allir komnir. — Þá skuluð þér spyrja fyrir mig. Pastafrollas bað um hljóð og spurði hvort nokkur hefði týnt nýjum demants-glerskera. - Hvar fannst hann? spurði einhver. — I Barignolles-hverfi, gall Oskar við. —' Bezt að spyrja Carlo og Peretti. Þeir starfa þar. — En þeir eru ekki komnir, sagði Pastafrollas. En þeir komu skömmu síðar og Pastafrollas sá svo um, að hann komst í kynni við þá, og lét hann setjast hjá þeim, en í þessum svifum kom Luigi inn, og hann veitti strax Oskari at- hygli, enda auðþekktur, þar sem hann var með hendina í fatla. Og Luigi læddist milli borða og fann sæti við borð rétt hjá borði því, þar sem þeir sátu Oskar, Carlo og Peretti. 27 Óskar hafði ekki veitt komu hans athygli. — Leyfist mér að spyrja, hef ir annar ykkar týnt demants- glerskera? spurði hann. Þeir kváðust báðir vera með glerskera sína á sér og sýndu honum þá. - Já, en þessi glerskeri, sem fannst, mun hafa týnzt fyrir nokkrum dögum, og svo sýndi hann þeim glerskerann, sem hann hafði sýnt Pastofrolla. Luigi hlustaði af mikilli at- hygli og ekki án nokkurs beygs. - Vitanlega gæti einhver stéttarbróðir hafa týnt honum, en annars höfum við aðeins ver ið þama seinustu átta daga, eða síðan Donato var lagður í sjúkrahús. Nú varð Luigi alvarlega skelk aður. — Hver er þessi Donato? spurði Óskar. — Samlandi okkar og stétt- arbróðir. Hann fékk allt í einu þá flugu í kollinn að vilja starfa í öðru hverfi, en það varð hon- um ekki til neinnar heppni, því að þegar hann var tekinn til starfa hérna megin fljótsins, varð hann fyrir slysi. Það var ekið á hann og hann meiddist svo, að hann liggur í sjúkrahúsi. Hann getur vel hafa týnt hon- um, verið kenndur, því að hann átti það til að skvetta í sig. — Hvar fannst þessi gler- skeri? spurði hinn, Carlo að nafni. - í íbúð kaupkonu. — Hjá kaupkonu, sagði Per- etti, já, þá getur svo sem meir en verið að hann hafi týnt hon- um. Það var sem gneistar hrykkju úr augum Luigi, er hann heyrði þetta, en Óskar einbeindi sér að því að hugleiða það, sem hann hafði heyrt. — Af hverju haldið þið að það hafi verið hann? stamaði hann loks. — Já, ég minnist nokkurs, sagði Peretti. Hann sagði mér fyrir nokkru — var þá vel híf- aður — að hann hefði sett í rúðu hjá kaupkonu og fengið 500 franka fyrir. Luigi óskaði sér þess, að hann gæti kreist líftóruna úr Peretti fyrir að masa um þetta, en vit- anlega gat hann ekkert aðhafzt, en Óskar virtist nú orðinn alveg rólegur. - Jæja, ég þakka ykkur nú fyrir, sagði hann, segið honum, þegar hann er kominn á fætur, að hann geti vitjað glerskerans í lögreglustöðina í Batignolles. — Það skulum við gera. Óskar reis á fætur og kvaddi þá, og er hann gekk út, tók hann eftir Luigi, sökum þess hve fölur hann var, en hann hafði um nóg annað að hugsa, svo að hann veitti honum ekki frekari athygli. „Jæja“, hugsaði hann, „þá höfum við sama sem gómað manninn með vasabókina, og á morgun fáum við að vita hver borgaði honum 500 frankana". Klukkan var að verða tíu. Hann gat ekkert aðhafzt frek- ara, þar sem Donato lá særður í sjúkrahúsi, en hann gat ekki sloppið, og því óhætt að fresta aðgerðum til morguns. Þegar Óskar Rigault var far- inn, gaf Luigi sig á tal við þá Peretti og Carlo og spurði þá: - Er það satt, sem þið sögð- uð þessum manni - liggur Don ato í sjúkrahúsi? - Já. - í hvaða sjúkrahúsi? - Hotel Dieu sjúkrahúsi, sjúkrastofu númer 9. Ég hef heimsótt hann. Luigi þakkaði þeim upplýs- ingarnar og fór. „Þú ert slunginn, Óskar Rig- ault“, hugsaði hann, „en það mun reynast verst fyrir þig sjálfan". Hann náði í leiguvagn og lét aka til Dauphinegötunnar. „Sé hann kominn heim, hlýt- ur hann að vera háttaður", hugs aði hann. „Sé hann sofnaður, læt ég til skarar skríða, en sé hann ekki kominn, bíð ég hans í einhverju dimmu skoti í íbúð- inni. Eða þá í kytrunni, þar sem óuppbúna rúmið er. Þegar vagninn stöðvaðist, sló klukka í kirkju þarna í hverf- inu ellefu. „Það er of snemmt“, hugsaði Luigi, kveikti sér í vindli og fékk sér göngu næstu klukku- stund um hafnarbakkana, en um miðnæturbil lagði hann leið sína til hússins, sem Óskar bjó í. .v.v.v.v.v.v.v.v.v DÚN- OG FIÐURHREINSUN vatnsstíg 3. Sími 18740 SÆNGUR REST BEZT-koddar. Endumýjum gömlu sængumar, eigum dún- og fiðurheld vei. Seljum æðardúns- og gæsadúnssængur — og kodda af ýmsum stærðum. V. i bílar Höfum nýlega 10 — 17 farþega Merzedes Bens-bila ( styttri og lengri ferðir. HÖPFERÐABÍLAR S/F Staar 17229, 12662, 15637 Ég sýni Gano miskunn vegna Ég skipa þér Gano að hafa þetta spjót þitt var brotið af andstæð- þess að ég vil halda frið víð spjót um hálsinn, þangað til þú ingi þínum. Gano er niðurlútur Batusifólkið og vera vinur þess, hefur séð tvö tungl. Það mun en í augum hans glampar ægileg segir Tarzan. Já, svarar Mambo. vitn*. um þá skömm, að Batusi- heift og hefnigirni og hann sver þess eið, að hann skuli ekki hætt fyrr en 'honum hefur tekizt að myrða Tarzan. V I Ð SELJUM: Zodiac ’60 Renault station R-4 ’63 Consul Capri ’63 NZU-Prins ’62, Record' ’60 Volvo station 445 ’59 Mosckwits ’59 Chevrolet Impala ’59 Chevrolet st. ’56 Chevrolet ’55, Commer ’63 með 12 manna húsi Chevro let ’55 B-3100 sendiferða- bíll. iIÍS ráúðárá" SKÚLAGATA SS — SfTVlX USU TIL SOLU Til sölu í smíðum 2ja og 3ja herb. íbúðir fokheldar og tilbúnar undir tréverk. Tvíbýlishús í Kópavogí. Hvor hæð algerlega sér. Glæsilegar íbúðir. Bílskúrsréttur með báðum. Seljast fokheldar. Einbýlishús í smíðum við Holta- gerði í Kópavogi, um 190 ferm. Stór bílskúr. Selst fokheld. Einbýlishús við Fögrubrekku í Kópavogi á tveim hæðum. » Innbyggður bílskúr. Fokhelt. Iðnaðarhús við Auðbrekku, þrjár hæðir, 140 ferm. hver hæð. Selst fokhelt. Höfum kaupendur að litlum íbúð- um 2ja og 3ja herb. Einnig 6 og 6 herb. íbúðum, einbýlishúsum og bújörðum. JÓN INGIMARSSON, lögmaður, Hafnarstrætj 4 . Sími 20555. Sölum. SIGURGEIR MAGNÚSSON Kvöldsími 34940. i3 Seljum dún og fiðurheld JÉtpj ver. Endurnýjum gömlu sængurnar. NÝJA FIÐURHREINSUNIN. Hverfisgötu 57A. Sími 16738. SENDIBÍLASTÖÐIN H.F. BORGARTÚNI 21 SÍMI 24113 HerrcssokScar crepe-nylon kt 29.00 Míklatorg)

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.