Vísir - 08.06.1964, Blaðsíða 11

Vísir - 08.06.1964, Blaðsíða 11
rrfS-í'R Mánudagur 8. júní 1964. 11 FRÆGT FGLK Það liggja óhemju mikil auð- æfi á hafsbotni. Gull, silfur, sokkin skip, olía og margt fl. En mikið af þessu liggur svo djúpt, að það er ekki nokkur Ieið fyrir mennina að ná til þess með þeim verkfærum sem nú eru til. En nú eru mörg fyrir- tæki byrjuð að gera tilraunir með kafbáta, eða köfunardiska, sem geta farið niður á geysilegt dýpi, og unnið þar, og sem eru svo rúmmóðir að áhöfnin geii lifað góðu lífi neðansjávar í marga mánuði ef þörf krefur. Þessi mynd er frá Lockheed verksmiðjunum, og sýnir teikn- ingu af köfunardisk, sem þar er verið að smíða. Skjaldbakan, en svo heitir diskurinn á að geta unnið á ótrúlegu dýpi, og jafnframt vera mjög þægileg til fbúðar. Englendingar, og reyndar ifka margir Ameríkanar, voru hálf móðgaðir við de Gaulle um daginn. Þeim fannst hann vera reglulega ókurteis. Hann hafði nefnilega neitað að taka þátt f hátfðahöldunum á strönJ Normandí, í tilefni af þvf að 20 ár eru Iiðin s.'ðan banda- menn gerðu þar innrásina. — Sú innrás varð jú til þess að frelsa Frakkland. segja þeir. En Lord Bothby hefur tekið upp hanzkann fyrir De Gauiie. — Við megum ekki gleyma því sagði hann nýlega að Englend- ingar og Bandaríkjam. neituðu de Gaulle um leyfi til að taka þátt í innrásinni þennan mikin dag, og að hann var mjög sár yfir þessari neitun. — Og hans nei, f dag, minnir okkur enn einu sinni á hvílíkt „fflsmlnni“ „Langi Charles“ hefur. 7* Fundarstjóri: Dr. Gunnar G. Schram. Spyrjendur auk hans: Baldur Óskarsson og Sigurður A. Magnússon. 21.20 Útvarp frá íþróttaleikvang ingum f Laugardal: Sig. S. 22.20 Hljómplötusafnið. Gunnar Guðm. kynnir. 23.10 Dagskrárlok. Sjónvarpið Mánudagurinn 8. júni 16.30 Captain Kangaroo 17.30 To tell the truth 18.00 Tombstone Territory 18.30 The Danny Thomas show 19.00 Afrts news 19.15 Social security in action 19.30 The Andy Griffith show 20.00 Sing along with Mitch 21.00 The thin Man 21.30 The Danny Kaye show 22.30 Lock Up 23.00 Afrts final Edition news 23.15 The Steve Allen show Ymislegt STJÖRNUSPA Spáin gildir fyrir þriðjudag- inn 9. júní. Hrúturinn, 21. marz til 20. apríl: Afslöðurnar benda til þcss að talsverðs óstöðugleika muni gæta næstu vikurnar hjá þér. Farðu að með varkárni, ef þú stýrir ökutæki. Nautið, 21. apríl til 21. maí: Nýtt tungl og aðrar mikilvæg- ar afstöður benda til þess, að fjármálin verði talsvert á döf- inni hjá þér á næstunni. Vertu viðbúinn því að endurskoða fjár hagsgrundvöllinn. Tvlburarnir, 22. maí til 21. júní: Nýtt tungl í sólmerki þinu bendir til breytinga eða aðgerða viðkomandi persónulegum hags-. munum þínum næstu vikurnar. Reyndu að hafa stjórn á tilfinn ingunum. Krabbinn, 22. júní til 23. júlí: Þú ættir að taka til athugunar sjálfsrýni og rannsaka, hvort þú getur ekki gert eitthvað til að bæta persónuleika þirm nokkuð. Ljónið, 24. júlí til 23. ágúst: Nýtt tungl mun sennilega valda breytingum í sambandi við von- ir þínar og óskir. Einbeittu þér að því að fá meiri laun út úr sérgrein þinni. Pdeyjan, 24. ágúst til 23. sept.: Nýtt tungl bendir til þess, að þú ættir að beina athyglinni að atvinnunni eða viðskiptunum eða hagsmunum fólks í topp- stöðum. Meiriháttar breyting gæti verið f vændum á þessurn sviðum. Vogin, 24. sept. til 23. okt.: Sakir nýs tungls verða ættingj- ar, tengdafólk og málefni varð- andi útlönd eða fjarlæga staði í sviðsljósinu, hvað þig snertir Leggðu drög að framtíðaráfoi m um þínum. Drekinn, 24. okt. til 22. nóv.: Nýtt tungl bendir til þess, að næstu vikurnar verða sameigin- leg fjármál og tekjur sérstak- lega áberandi í lífi þfr.u, t.d. skattarnir, ástand eigna þinna o.s.frv. Bogmaðurinn, 23. nóv. til 21. des.: Nýtt tungl krefst bess, að þú leggir áherzlu á náið sam- starf og samband við maka þinn eða náinn félaga nú og á kom- andi vikum. Þiggðu góð ráð. Steingeitin, 22. des. til 20. jan.: Nýtt tungl bendir til tíma- bils, sem verður mikilvægt á sviði atvinnunnar eða þjónustu. Nokkurra breytinga gæti verið þörf. Reyndu að auka afköscin. Vatnsberinn, 21. jan. til 19. febr.: Nýtt tungl mun valda nokkrum breytingum á sviði til- finningamála þinna nú og næstu. vikurnar. Sérstaklega varðandi vissa ástvini þína. Fiskarnir, 20. febr. til 20. marz: Nýtt tungl setur heimilis og fjölskyldumálin f sviðsljósið nú og næstu vikurnar og gæti valdið talsverðum aðgerðum inn an þessa ramma. Tveir brezkir togarar sem báð ir höfðu laskazt af völdum íss út af Vestfjörðum, leituðu inn til ísafjarðar s. 1. mánudag og þriðjudag. Það voru togararnir Ross Jaguar, og Northern Sky, sem verið höfðu að veiðum um 30 mílur austur af Horni ásamt einum 30 öðrum togurum. Áreksturinn varð að nóttu til, og sagði skipstjórinn á Northern Sky, að ísinn hefði verið flatís, og þvf ekki orðið vart við hann fyrr en um seinan. Töldu skip- stjórarnir báðir að ísinn væri að þokast nær ströndinni. Skemmd ir á togurunum reyndizt ekki alvarlegar, og er Northern Sky þegar farinn til veiða aftur, eftir viðgerð á Isafirði. Ekki er vitað til að íslenzk skip séu á þessum slóðum. Fundahöld Aðalfundur Félags Bifreiðainn flytjenda var haldinn 22. maf og var það jafnframt 10 ára afmæli félagsins. Stjórn félagsins var endurkjörin, en hana skipa: Gunnar Ásgeirsson, formaður. Geir Þorsteinsson, gjaldkeri. Friðrik Kristjánsson, ritari. Egill Vilhjálmsson í varastjórn. Parísardama fékk nýlega hárgreiðslukonuna sfna dæmda til að greiða sér sem svarar 100.000 ísl, krónum fyr ir að hafa notað eltthvert hár- snyrtimeðal sem varð til þess að hún missti hárið. Og dóm- arinn sýndi sig vera fransk- an herramann. Að vísu er sækjandlnn f þessu máli 70 ára gömul, sagði hann, en það skiptir engu máli. Sérhver kona hefur rétt til þess að halda sér til, og vera snyrti- leg til fara, og hvernig á hún að fara að því án þess að hafa hárið? S * Mikil aukning i Færeyjafíugi Fyrir nokkru fóru 7 islenzkir blaðamenn f boði Flugfélags Is- lands til Færeyja, en sá áttundi I hópnum og jafnframt fararstjóri var Sveinn Sæmundsson blaðafull- trúi félagsins. í þessari blaðamannaboðsferð Flugfélagsins voru 4 Siglfirðingar, 2 Reykvíkingar og 1 Akureyringur. Þeir fóru þriðjudaginn 26. maí með Gljáfaxa til Vogar í Færeyj- um og komu aftur laugardaginn 30; eftir stutta dvöl f Skotlandi. Að því er Sveinn Sæmundsson tjáði Vísi heppnaðist ferðin eins og bezt varð á kosið. Færeyjar eru fagurt land, sagði hann, veðrið gott og fólkið afar gestrisið. Eyjarnar eru 18 talsins og allar byggðar að einni undantekinni, Litla Dfmon. Stærstar eru Straum- ey og þá Austurey og Vogar. Nú hafa Færeyingar uppi ráðagerðir um að koma bílaferju á milli Voga og Straumeyjar, en brú yfir sundið milli Straumeyjar og Austureyjar og við þetta myndu 75—80% allr- ar þjóðarinnar komast f þjóðvega- samband. Flugfélag íslands hefur nú sent þrjár flugvélar til Færeyja í vor, en heldur uppi reglubundnum ferð- um þangað í allt sumar. Hefur pant anir í þessar ferðir drifið ört að, en einkum þó f ferðirnar milli Fær- eyja og Glasgow og mun vera fullbókað í þær flestar i sumar. Er aðsóknin svo mikil að Færeyingar hafa óskað eftir aukaferðum um mesta annatímann. Sagði Sveinn að greinilegt væri að farþegum í Færeyjaferðum myndi fjölga stór- lega frá því í fyrra. Það eru áreiðanlega margir letkarar sem öfunda hlnn digra kollega sinn Orson Welles þessa dagana. Hann má nefni- Iega borða eins og hann vill, og hefur meira að segja feng- ið fyrirmæli um að borða eins og hann getur í sig látið. I næstu mynd sinni á hann nefnilega að Ieika kjötfjallið Fallstaff, sem lfklega er ein af skemmtilegustu og léttustu persónum sem Shakespeare hefur skapað. Og ennþá vant- ar Welles nokkur kfló til þess að hann geti fullkomlega íúlk- að Falstaff með Iíkamsburð- um. Þess vegna hefur verið bætt á matseðilinn hans tveim ur flöskum af rauövfni, og 4 stórum safaríkum buffum. i -x Nú er byrjað að selja ópfum I; pípur f New York, og ð þær *• er skrifað: Handa manninum, ■I sem langar tll að dreyma um að hann eigi allan heiminn.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.