Vísir - 09.06.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 09.06.1964, Blaðsíða 1
•:••'•'• • - ' •'■ >'• • ■' ?* >V -. 60 þúsund króna miskabætur fyrir handtöku og frelsisskerðingu ísfenik andaregg flutt út til dýra- garðu erlendis Um nokkurt skeið hefur átt sér stað talsverður útflutningur á íslenzkum andareggjum. Hafa eggin einkum verið seld til dýra garða og búgarða erlendis tíl útungunar. íslenzku andareggin hafa eink um farið til Bandaríkjanna og Bretlands en einnig til nokk- urra annarra landa. Er verðið mjög breytilegt á eggjunum, en það fer allt eftir því hvernig til tekst með flutning hverju sinni. Þó er hinum íslenzku út- flytjendum ávallt tryggt lág- Óhapp við strætisvagn Lögregla og sjúkralið var i gær kvatt að mótum Miklubrautar og Reykjahliðar vegna óhapps, sem hafði orðið er kona var að fara út úr strætisvagni. Konan klemmdist milli stafs og hurðar, þegar hún var að fara út úr vagninum, en skall um -leið í götuna. Hún marðist á fæti og hlaut skrámur. Gert var að meiðsl- um hennar í slysavarðstofunni, en hún að því búnu flutt heim. marksverð er nægi fyrir öllam kostnaði. Oft hefur fengizt mjög gott verð fyrir eggin. Það er einkum Villiam Frans Pálsson að Halldórsstöðum i Laxárdal er flutt hefur eggin út. Hefur hann flutt út þetta 100-200 kg. yfir varptfmann. Nokkrir aðrir hafa einnig flutt út andaregg. AUtaf fer fuglalífinu í Reykjavík fram. Nú er ekki nóg með að stokkendurnar leiti sér að hreiðurs- stað i reykvískum húsagörðum, heldur hafa jafnvel grágæsir slegið sér hér niður, sem veiðimenn þekkja annars sem styggustu fugla. Þessi grágæsahjón voru einn daginn á morgungöngu á Tjarnar- götunni með unga sína. (Ljósm. Vísis: I. M.) Samkomulag vinnaveitenda ogímm þega um vinnurannsóknir? Forystumenn heildnrsamtakn ó hag- ræðingarróðstefnu að Bifröst í kvöld lýkur í Bifröst ráð- stefnu Stjórnunarfélags Islands um hagræðingarmál. Taka þátt í ráðstefnu þessari allir helztu forystumenn launþega og vinnu veitenda og fulltrúar ýmissa op- inberra stofnana. Hafa mörg merk mál verið rædd á ráðstefn- unni, m.a. var i dag rætt um rammasamning launþega og vinnuveitenda um vinnurann- sóknir, en uppkast að slíkum samruigi hefur þegar verið gert og útlit er fyrir, að samkomu- lag verði milli Alþýðusambands íslands, Vinnuveitendasam- bands íslands og Félags ísl. iðnrekenda um að koma slik- um rannsóknum á. Ráðstefna Stjórnunarfélagsins hófst á sunnudag. Setti formað- ur félagsins, Jakob Gíslason raf- orkumálastjóri, ráðstefnuna. En ávörp fluttu við setninguna Hannibal Valdimarsson forseti Alþýðusambands íslands og Kjartan Thors formaður Vinnu- veitendasambands íslands. Létu Framh á bls. 6 skerðingu, án þess að nægileg á-1 stæða hefði verið til þess. Þetta er í máii bóndans í Önd- verðarnesi í Grímsnesi Halldórs Gunnlaugssonar, en hann var á sínum tíma handtekinn og fang- elsaður á Litla Hrauni og til geð- rannsóknar á Kleppi að ósk Barna vemdarráðs íslands, fyrir, að því er sagt var, misþyrmingu á bömum sínum. Var mál þetta þá mjög á dagskrá í blöðum og vakti athygli. Nú hefur borgardómari dæmt honum 60 þúsund króna miskabæt- ur, en það eru hæstu miskabætur, sem dæmdar hafa verið í slíku máli jafnháar og miskabætur þær, sem Vilhjálmur skáld frá Skáholti fékk tildæmar á sínum tíma. Auk þess fær bóndinn sér dæmdar 27,500 krónur vegna kostnaðar, en hann þurfti m. a. að ráða sér ráðsmann meðan hann var sviptur frelsinu. Aðalatriði málsins eru þau, að 13. des. 1960 fékk Bamavemdarráð 54. árg. - Þriðjudagur 9. júní 1964. - 129. tbl. Sjálfstæðisflokkurinn: VAXANDIÁHRIF ÆSK- UNNAR INNAN HANS Fleiri æskumenn og konur fylgja Sjálfstæðisflokknum að málum en nokkrum öðrum stjórnmálaflokki og hinni ungu sveit á Sjálfstæðisfiokkurinn að miklu leyti gengi sitt að þakka. Nú hefir formaður Sjálfstæðis- flokksins, Bjarni Benediktsson forsætisráðherra, snúið sér til samtaka ungra Sjálfstæðis- manna, S.U.S., og Heimdallar, og borið fram þá ósk að þessir aðilar skipi nefndir til rann- sókna á tilteknum afmörkuðuni Fr- dd á bls. 6 íslands bréf frá mági bóndans, þar I barnaverndarráðinu austur í Gríms sem hann var kærður fyrir illa nes og varð niðurstaðan af athug- meðferð á bömum sfnum. Tveimur un þeirra, að þeir óskuðu eftir því dögum síðar fóru þrír menn úr Framh á bls. 6 Bjarni Benediktsson Nýlega var kveðinn upp athygl-! isverður dómur hjá Borgardómar- anum i Reykjavik, þar sem manni einum voru dæmdar háar miska- bætur fyrir handtöku og frelsis- BL.ADID I DAG BIs. 3 Myndsjá um vormót Hraunbúa i Hafnar- firði. - 7 Samtal við Hjálmar Ólafsson bæjarstjóra i Kópavogi. - 8 Hér finnst ekki sómasamleg Sæ- mundar-Edda. Úr ræðu Laxness. - 9 Vanheilu börnin. Samtal við danskan Iækni.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.