Vísir - 23.06.1964, Blaðsíða 1

Vísir - 23.06.1964, Blaðsíða 1
SíMarútvegsnefnd hefur selt fyrirfram 300 þús. tunnur Þátttakendur á norrænu fiskimálaráðstefnunni byrjuðu daginn með því að heimsækja þrjú frystihús, ísbjörninn, BÚR og frystihús Júpiter og Marz h.f. á Kirkjusandi, en þar var myndin tekin í morgun. Unnið var að pökkun humars og ýsu. Haft var eftir einum Norðmannanna að þarna væri ýmislegt hægt að læra. (Ljósm. I.M.) Sala á saltsíld héfur gengið allvel að undanförnu og má bú- ast við því að söltun verði leyfð á næstunni. Þó hefur enn ekki verið lokið samningum við Rússa. Standa samningar við þá nú yfir í Reykjavík, en nú á síðustu stundu kom ósk frá Rússum um að íslenzk samninga nefnd færi til Moskvu. íslend- ingarnir hafa svarað með því að bera fram óskir um, að samn- ingarnir fengju að haida áfram hér vegna þess hve Iangt þeir væru komnir. Vísir hefur frétt, að síldarút- vegsnefnd sé þegar búin að selja yfir 300 þúsund tunnur, megnið af því, eins og venjulega, til Framh. á bls. 6. VISIR 54. árg. — Þriðjudagur 23. júní 1964. — 140. tbl. /?æðo Sunnanás á fiskimálaráðstefnunni markar timamót Strandríki N-Atiantshafs fái aukna vernd fiskihags Nauðsynlegt er að veiða í N-Atlantshafi. Ef ekki næst um það við- unandi samkomulag get- ur orðið nauðsynlegt fyr ir einstök strandríki að grípa til sérstakra ráð- stafana til að vernda hagsmuni sína. Á þessa leið talaði Klaus Sunnaná, fiskimálastjóri Noregs í ræðu á norrænu fiskimálaráð- stefnunni í Háskóla Islands i gær. Erindi Sunnaná fjailaði um „vandamál og hagsmuní strand ríkis varðandi skipulag fisk- veiða41 Davíð Ólafss., fiskimá'a- stjóri sagði á eftir að ræða Surm aná hefði verið epoehgörande, markað tímamót í þeim umrteö um, sem nú færu í hönd um skipulagningu fiskveiða á N.- Atlantshafi á grundvelli samn- ings frá sl. hausti. í sömu ræðti lagði Davíð Ólafsson áherdu á sérstöðu íslands sem strand- ríkis í fiskveiðum á Athntsr- hafi. Klaus Sunnaná rakti í ipp- hafi ræðu sinnar fyrri tilraunir Framh. á bls 6 Lóðum úthlutuð innun Elliðórvogu I dag verður endan- lega gengið frá úthlutun 602 íbúða í Árbæjar- hverfi, þ. e. innan Elliða- árvoga. I næstu viku mun borgarráð væntan- Iega ganga frá úthlutun 144 einbýlishúsa á sama svæði, en með þessum og öðrum nýlegum út- hlutunum eru þær íbúðir orðnar rúmlega eitt þús- und, sem borgin hefur ráðstafað á þessu ári. Hér er að sjálfsögðu um að ræða einhverja stærstu úthlutun lóða, sem átt hefur sér stað á vegum borgarinnar. Samkvæmt samtali við Helga V. Jónsson, skrifstofustjóra borgarverkfræð- ings, er álitið að úthlutun 600 íbúða á ári eigi að fullnægja íbúaaukningunni í borginni. — 1000 ibúðir eru þar vel umfram, enda telur Helgi, að velflestum fullnægjandi umsóknum hafi ver BLAOÍD í DAG Bls. 3 Kurt Zier ritar um , myndlist 5 síðustu ára. — 7 Staða íslenzkra fiskveiða í Evrópu. — 8 Fréttir. — 9 Fjármálasíða. Ungur enskur stúdent var í gær niorgun „veiddur“ upp úr Seyðis- firði, er hann var að reyna að vinna veðmál um það' hvort hann gæti synt alla leið yfir. Stúdent þessi heitir John Reid og hefur dvalizt nokkra daga á Seyðisfirði ásamt þremur félögum sínum, og búa þeir í tjaldi, meðan þeir leita sér að atvinnu. Ekki virðist fjárskortur hrjá þá tilfinnanlega, þrátt fyrir atvinnuleysið, a. m. k. treystu þeir sér til þess að veðja 5000 krónum um það hvort einn félagi þeirra gæti synt yfir þveran fjörðinn. Lagði sá af stað og svam mikinn. Heldur fór samt að draga af pilti þegar hann var kominn út á miðj- an fjörð, og dapráðist honum sund Framhald á bls, 6. Enski stúdentinn, sem bjargað var úr Seyðisfirði. ið og sé nú sinnt. Þó hafa bygg- ingarfélög og önnur samtök fólks, sem sýnilega hyggjast byggja í eigin þarfir, segir skrif- stofustjórinn, verið látin ganga fyrir við úthlutun. Eins og fyrr segir gengur borg arráð frá úthlutun 602 íbúða í fjölbýlishúsum í Árbæjarhverfi í dag. Eru það samtals 101 stiga hús. í næstu viku verður lóðum Framh. á bls. 6 Þremenningamir sem björguðu enska stúdentinum: Einar Björnsson Viðar Valdimarsson og Ottó Magnússon.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.