Vísir - 07.07.1964, Blaðsíða 2

Vísir - 07.07.1964, Blaðsíða 2
VÍSIR . Mðjudagur 7, jilí ir/. SG tn w «**..♦«« utt|j!}JUWn HLt thtU UiíMi51tl . i'l ili i 4i VSL 'láíP iBsœ»Wss»a«i«itóS®'iaHEaB“‘ ‘ •1 * ’!í ‘A MM1 1% P ii ip m 1. DEILD MZ 2 STK Valur og KR háðu í gær- kvöldi bardaga í 87 mfnút- ur áður en eina mark leiks ins var skorað, — mark sem mörgum verður minn- isstætt, ekki sízt framverði Vals, Matthíasi Hjartar- syni, sem skoraði. Mark hans var stórkostlegt og bætti hinum f jölmörgu á- horfendum heldur dapra skemmtun, sem leikurinn bauð upp á. Það vakti furðu í upphafi h\-e breytt framllna KR-Iiðsins var frá því hún hefur verið, enda er KR heldur íhaldssamt I uppstillingu 'liða sinna og breytir ógjarnan mik- ið til í einu. Fimm, mjög ungir en efnilegir menn voru I liðinu, þeir Theódór Guðmundsson og Hörður Markan í framlínu, en framvarðar- llnan sömuleiðis mjög ung, þeir Kristinn Jónsson og hinn ágæti leikmaður Þórður Jónsson, sem ég tel bezta mann KR I gær, og að lokum Þorgeir Guðmundsson nið- vörður. allt ungir menn sem ný- lega hófu leik með meistaraflokki fyrir alvöru. Mjög mikil rigning hefur setzt I völlinn að undanförnu og var hann þungur og sleipur og allur hinn erf iðasti. Leikmenn beggja liða reyndu sem mest þeir máttu að byggja upp spil, en gátu sjaldan að neinu ráði reist rönd við þeim skilyrð- um, sem völlurinn hafði búið þeim. Varð leikurinn daufur og leiðinlegur á að horfa og tækifæri sárafá. Hreiðar Ársælsson, sem leiddi lið sitt I þessum leik, sem var 200. leikur hans með meistaraflokki, bjargaði fallega marki á 12. mín., en KR átti allgóða tilraun með skoti Ellerts á 15. mín. af löngu færi en rétt framhjá. í fyrri hálfleik náðu Valsmenn góðu upphlaupi, sem endaði með skoti frá Bergi Guðnasyni. Hreiðar Ár- sælsson var þó fyrir á markllnu og fékk bjargað. Myndin er frá því atviki. í seinni hálfleik voru Valsmenn talsvert heppnir á 4. mín, þegar Ellert sótti harkalega að markinu og Theódór fékk allgott skottæki- færi, sem honum tókst þó ekki að nýta. Ellert reyndi talsvert Iang- skot og á 13. og 32. mín, átti hann góð skot. Ingvar Elísson reyndi einnig langskot á KR-markið og á 20. mín. rnunaði ekki miklu að Gísli Þorkelsson fengi ljótt mark á sig, því hann missti boltann frá sér og Herm. Gunnarssyni, sem fylgdi á eftir tókst að skjóta, en Gísli kom á elleftu stundu skríðandi á hnján- um og lokaði markinu fyrir honum, en þarna skail hurð sannarlega nærri hælum. KR átti meira af tækifærum I leiknum, en Valsmenn fullt eins mikið I spilinu á miðbikinu. Sveinn Jónsson átti þannig sannarlega færi á að skora fyrir KR á 40. mín., þeg ar allar gáttir opnuðust skyndilega og hann var staddur einn með bolt- ann á vítateig miðjum. En skotlist- in brást Sveini herfilega og þvl varð ekkert mark f þetta skiptið. En ógnvekjandi sókn KR var snúið upp I Valssókn, sem I fljótu bragði virtist ekki hættuleg. Laus bolti hrökk frá KR-vörninni út til Matthíasar Hjartarsonar, v. fram- varðar Vals. Um skotfæri var vart hægt að tala, — en skotið reið af og Matthías horfði spenntur I nokkur sekúndubrot á eftir skoti slnu sigla efst undir „vinkilinn" I bláhorn marksins og félagar hans dönsuðu strfðsdans af kæti yfir 1:0 og tveim stigum, sem virtust bók- uð þeim ,sem raunin varð líka. Skot Matthíasar var stórglæsilegt og Iangt slðan annað eins hefur sézt á vellinum, — líklega ekki síðan I fyrsta leik Alberts hér eftir að ,hann fluttist heim. Skotið var af 30 m færi og algjörlega óverjandi. KR-ingar sóttu mjög eftir þetta, en lítið var eftir af leik, Valsmenn vörðust af vígamóði og Björgvin rparkvörður, sem kom inn I seinni hálfleik fyrir Gylfa Hjálmarsson, greip vel inn I. Tvær hornspyrnur ógnuðu Valsmarkinu og settu spennu I leikinn og Theódór hinum unga innherja tókst að ná sæmi- legu skoti að marki, en ekkert gekk og KR tapaði þar með enn 2 stigum I 1. deild, stigum, sem geta komið til með að kosta meistara- tign. Jafntefli hefði að öllu athuguðu verið bezta lausnin I þessum Ieik, því ekki er hægt að segja að KR hafi átt mikil tækifæri, en hinsveg- ar reyndu þeir meira en Valsmenn og þá einkum með langskotum. Beztu menn Valsliðsins voru Björn Júlíusson og bakverðirnir Árni Njálsson og Þorsteinn Friðþjófsson, sterk vörn sem ekki er gott að ryðj ast 1 gegnum, Matthías Hjartarson ágætur sóknarframvörður, sem mætti reyna meira að skjóta, enda er hann einn af sárafáum knatt- spyrnumönnum, sem virkilega kann að skjóta. I framlínunni átti enginn leikmaður góðan leik, en Ingvar reyndi mest og virtist hafa mestan áhuga. KR-Iiðið var I algjörum molum I gærkvöldi og náði aldrei saman. Ungu mennirnir I liðinu eru góð efni, en eiga eftir að skólast til. Þórður Jónsson h. framvörður var bezti maður liðsins I þessum leik og leikur hans og Þorgeirs Guð- mundssonar var oft með ágætum. Dómari I leiknum var Hannes Þ. Sigurðsson. Gaman að sjá loks dóm ara sem getur hlaupið I 90 mínútur og staðsett sig á bezta stað hverju sinni til að virða brot. Þetta gerði Hannes, enda æfir hann hlaup 2 — 3 I viku hverri. Vonandi eru aðrir dómarar þegar byrjaðir á þessu sama, og ’sé ekki svo, þá mættu dómarar taka Hannes sér til fyrir- myndar. — jbp. Á hægri væng KR-liðsins Iék í fyrsta sinn ungur piltur, Hörður Markan. Hörður er smár vexti en knár mjög. Vakti hann verðskuld- aða athygli fyrir góðan Ieik sinn í gærkvöldi. aS æfa me$ í körfuknattleik Eins og fyrr hefir ver- ið tilkynnt, hefir People to People Sports Comm ittee í Bandaríkjunum, boðið landsliði íslands í körfuknattleik, til 3ja vikna keppnisferðar um Bandaríkin um n.k. ára- mót. Ferð þessi er KKÍ að kostn- aðarlausu og er tilboð þetta eitthvert'hið glæsilegasta, sem íslenzkum Iþróttaflokki hefir nokkru sinni boðizt. Samning- ar standa nú yfir við ýmsa skóla þar vestra og hefir þeg- ar verið samið um leiki við 5 aðila. St. Michaels College, Win- ooski, Vermont. Plymouth State College, Plymouth, Vermont. Lið þessa skóla sigraði I New England State College Confer- ence árið 1960. St. Anselms Collegé, Manch- ester, New Hampshire. Lið þessa skóla sigraði I 313 leikj- um, en tapaði 154 leikjum á ár- unum 1934 — 62. Central Conn St. og Spring- f:eld College, Springfield, Mass. Það var I Springfeld, árið 1892, sem Dr. James Naismith, kenn- ari við íþróttaskóla KFUM þar I borg, fann upp nýjan leik, sem ,hann nefndi körfuknatt- leik. Fyrsta keppnin fór fram kl. 5.15 eh., 11 rparz 1892. — Körfuknattleikslið Springfield College hefir jafnan Verið I fremstu röð háskólaliða I Bandaríkjunum. Liðið sigraði í 62% af öllum sínum leikjum, frá árinu 1906 til ársins 1962. Þó eru það engir smáskólar, sem Springfield þarf að keppa við. Má nefna t.d. Yale, Cornell, Brandeis og Coast Guard Aca- demy. íþróttasalur Springfield Coll- ege, þar sem landsliðið mun keppa, tekur 3200 áhorfendur I sæti. Á meðan á þessari keppnisför stendur munu piltarnir búa á heimavistum þeirra skóla, er keppt verður við. Gefst þeim þannig einstakt tækifæri til að kynnast amerlsku háskólalífi. Gert er ráð fyrir 12 — 14 leikj- um I för þessari. Landsliðsnefnd hefir valið 29 pilta til æfinga, en æft er á föstudögur. I íþróttahúsi Vals að Hlíðarenda. Þjálfarar eru Einar Ólafsson og Helgi Jóhannsson. Nöfn piltanna fylgja hér á eftir: Agnar Friðriksson, IR, Anton Bjarnason, ÍR, Birgir Örn Birgis, Ármann, Davíð Helgason, Árm, Einar Bollason. KR, Einar Matt- hfasson, KFR, Finnur Finnsson, Á., Friðþjófur Óskarsson, IKF, Guðmundur Ólafsson, Á, Gunn- ar Gunnarsson, KR, Guttormur Ólafsson, KR, Grímur Valde- marsson, Á, Hjörtur Hansson, KR, Hörður Bergsteinsson, Skarphéðinn, Hólmsteinn Sig- urðsson, ÍR, Hörður Kristinsson, Á, Jón Jónassön, IR, Ingvar Sig- urbjörnsson, Á, Kristinn Stefáns son, KR, Kristján Ragnarsson, KR, Kolbeinn Pálsson, KR, Magnús Sigurðsson, Skarphéð- inn, Marinó Sveinsson, KFR, Ól- afur Thorlacius, KFR, Sigurður Ingólfsson, Á, Tómas Zoéga, ÍR, Viðar Ólafsson, IR, Vésteinn Ei- riksson, Menntaskólinn á Laug- arvatni, Þorsteinn Hallgrimsson, ÍR.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.