Vísir - 05.08.1965, Blaðsíða 5

Vísir - 05.08.1965, Blaðsíða 5
VlSIR . Fimtntudagur 5. ágúst 1965. 5 1 ut1önd í morgun . útlönd: í œorg nn' u’u 1 önd i morffun- utlönd í morgun Vietconglfö sprengdi í nótt / ioft upp elíugeyma á Da Nang-flugvelli Vietcongliðar gerðu árás í nótt á olíubirgðastöð banda- rísku flugstöðvarinnar I Da Nang, en hún er um 15-16 km. frá flugstöðinni sjálfri og úti á itröndinni. lokkuð óljósar fréttir bárust ■ : þessa árás þegar í morgun. Virðist svo, sem Vietcongliðið hafi hafið árásina í skjóli myrk urs, vamarliðið hafi ekki verið óviðbúið, og þegar hafið skot hríð, en árás þessi hafl verið nægilega öflug til þess að ryðj ast inn í birgðastöðina og kveikja þar í olíugeymum. Munu þannig hafa eyðilagzt 2 milljónir gallóna éða yfir 10 milljónir lítra af benzíni og olí- um. Árásarliðið hörfaði því næst brott og er árás þessi talin nýtt áfall fyrir Bandarikjamenn í Vietnam. Fréttin um hana kom í kjölfar annarra frétta, sem all ar sýna hve geipilega örðug- leika bandaríska herliðið og stjómarherinn eiga við áð stríða og f kjölfar frétta um að John- son forseti haft farið fram á 1700 milljón dollara aukafjár- veitingu tii hernaðarþarfa I Vietnam, og að boðuð hefur verið aukning Bandaríkjahers um 340.000, og er það lið hefur verið kvatt til vopna muni Bandaríkin hafa alls 3 milljónir manna undir vopnum. Forsetinn ræddi í gær við Maxwell Taylor, sem flutti hon um lokaskýrslu sina um ástand og horfur í Vietnam, og hefur forsetinn kvatt helztu ráðu- nauta á sinn fund í dag til þess að ræða hana. Pappandreu — leitar nú Kon- stantin til hans eða rýfur þing? Norskt skíp sektað fyrir veið- ar innan 12 míina við Hfaltland í NTB-frétt f morgun er sagt frá því að norskur fiski- skipstjóri hafi í gær verið dæmdur í rétti í Leirvík á Hjaltlandseyjum til að greiða sem nemur 24 þúsund fsl. krónum fyrir landhelgisbrot. Hafði hann verið að veiðum á fiskiskipi sínu „Kvalsund Senior“ innan tólf mílna landhelgi við Hjaltland. Brezkt eftirlitsskip tók Norð- manninn fastan á mánudaginn og virðist sem takan hafi komið á óvart, þar sem Norðmenn hafa veittt talsvert innan tólf mflna landhelginnar og talið sér það heim ilt. Vegna þess að hér er verið að herða á reglunum ákvað dómarinn í Leirvík, að sleppa skipstjóranum að þessu sinni við upptöku veiðar færa, en veiðafæri skipsins voru metin á um y2 millj. ísl. króna. En dómarinn lét þess getið, að f framtíðinni yrði ákvæðum um upptöku beitt til fulls og skyldu norskir fiskimenn við Hjaltland hafa þetta til viðvörunar. Þessi frétt er ell athyglisverð Minnast menn þess að þegar fs- lenzku síldveiðiskipin fóru út til Hjaltlandseyja fóru þau ekki irm fyrir tólf mílur, meðan Norðmenn þóttust eiga rétt til þess. Svo virð ist sem sá réttur hafi eigi verið öruggur. Stjórn Novasar, sem var við völd í 3 vikur, er fallin. Hún beið ósigur með rúmlega 30 atkvæða mun f nótt, að lokinni umræðu, sem hófst í fyrri viku, og hefur verið allsöguleg. Novas baðst þeg ar lausnar fyrir sig og stjórn sína. Umræður voru tiltölulega frið- samlegar í gær og fyrradag þótt talsvert væri um óp og köll, en úti fyrir var stöðugt allstór hópur stuðningsmanna Pappandreu, og er fréttin um fall Novasar barst, lagði hann af stað f fylkingu um nær auðar götur borgarinnar, til ! þess að boða fall hans, með ópum og köllum, svo sem „alþýðan sigr aði“, „Pappandreu sigraði“ o. s. frv. Meðan atkvæðagreiðslan átti sér stað gekk Pappandreu inn í þingsalinn (hann hafði setið í kaffi stofu lengstum skammt frá þing- húsinu) og kallaði: Ég segi nei. Novas hafði farið fram á, að þingið samþykkti traust á sig og stjórn sfna. Ekki var búizt við, áð hann myndi fá traustið sam- þykkt. Konstantin konungi er nú mikill vandi á höndum. Brezka útvarpið hefur það eftir fréttariturum, að konungur eigi vart annan kost en að fela Pappandreu stjórnarmynd- un. Á miðnætti síðastliðnu var útrunninn frestur, sem stjómin í Sudan hafði veitt uppreisnar mönnum í suðurhluta landsins. ► Heath hefur skipað „skugga stjóm“ sína, þ. e. tilnefnt sem taismenn í málstofunni þá menn sem mundu verða aðálráðherr- ár, ef ihaldsflokkurinn myndar stjóm. Þeirra meðal em Maud- ling og Powell, keppinautar hans um flokksforustuna, Sir Alec Douglas-Home, Selwyn Lloyd og Holmes. MINNING: Sumarliði Halldórsson fyrrum skógarvörður í dag verður jarðsunginn hér í Reykjavík Sumarliði Halldórsson I fyrrum skógarvörður, en síðar um langt skeið starfsmaður við Kirkjugarða Reykjavíkur. Hann lézt að heimili sonar síns, ísleifs ; skógarvarðar að Vöglum í Fnjóska dal, hinn 29. júlí sl. Með honum ! er genginn grandvar sómamaður, j sem í engu mátti vamm sití vita. j Hann mun vera hverjum þeim er | honum kynntist minnisstæður, sak : ir ljúfmennsku og góðvildar. Sumarliði var fæddur 13. júní 1881, að Litlu-Fellsöxl í Skil- mannahreppi í Borgarfjarðarsýslu. Hann var við nám í Flensborgar- skóla 1904-1906, en fór að því loknu til Danmerkur og lagði stund á verklegt skógræktarnám í 3 y2 ár. Var hann einn fjögurra fyrstu íslenzku skógarvarðanna, er hófu starf sitt hjá Skógrækt ríkisins um þetta leyti. Með Sumarliða er þessi hópur allur horfinn sjónum. Gutt ormur Pálsson lézt fyrir rúmu ári nær áttræður að aldri og nú Sum- arliði 84 ára. Þeir Guttormur, Sumarliði og faðir minn voru námsfélagar í Danmörku og er mér í fersku minni er þeir hittust og rifjuðu upp minningar æskuáranna. Þótt j þeir væru um inargt ólíkir, var j auðheyrt á þéim, hversu mikils j þeir mátu hver annan og hve ein- j læg vinátta var 1 milli þeirra. Þeir i varðveittu til h’inztu stundar i fölskvalausa gleði æskunnar og j um leið trúna á það starf er þeir • ungir að árum völdu sér. Þeir j störfuðu um skeið á þessum náms- \ árum á heiðunurn úti á Jótlandi,: þar sem þá var verið að hef ja; skógrækt. Sumarliða var það jafn-; an fagnaðarefni að frétta um ár-; angurinn af starfi þeirra þarna ; Að liðinni hálfri öld frá dvöl; þeirra þar, fór Guttormur um þess j ar slóðir og sá rísa hávaxna skóga j þar sem þeir félagar gróðursettu i fyrstu smáplöntumar og þéttriðið i n ' skjólbelta veitti víðlendum ökrum skjól þar sem áður voru ó- frjó heiðalönd. Ég varð þess oft var nú á seinni árum hversu vel Sumarliði fylgdist með allri þróun á þessum slóðum. Þegar Sumarliði kom heim frá skógræktamámi hóf hann störf hjá Skógrækt ríkisins og varð skógar- vörður á Vesturlandi árið 1910. Hann hvarf úr þjónustu skógrækt- arinnar 1914 og mun þar hafa ráð ið mestu að starfsgrundvöllur hans varð allur annar í reyndinni, en upphaflega var ætlað, enda var þá þegar orðinn vemlegur samdráttur í framkvæmdum skógræktarinnar, vegna lækkandi fjárveitinga. Vor- hugur sá er fylgdi Hannesi Haf- stein og skógræktarlögum hans frá 1906 var tekinn að dvína. Norð- urland og Austurland nutu hins úpphaflega stórhugar, en Vestur- land og Suðurland urðu að mestu útundan. Það mun hafa verið Sum arliða ærin raun að verða að hætta störfum við skógræktina en alla ævi héldu þau bönd er tengdu hann við ræktun og fegrun lands- ins. Hann var heill og sannur í því sem öðra. Sumarliði settist að á Akranesi og vann þar við ræktunarstörf, kennslu og verzlun fram til ársins 1940, er hann fluttist til Reykjavík ur og tók að sér umsjón með trjá- rækt kirkjugarða borgarinnar. Rækti hann það starf með stakri prýði og alúð um 15 ára skeið. Síðustu árin naut hann þess að vera með í starfi sonarins, ís- leifs skógarvarðar á Vöglum. Þar rættist draumur Sumarliða frá æskuárapum, og hann gladdist inni lega við hvem áfanga, er yngri kynslóðin náði og þar eins og hvar vetna annarsstaðar, sem leið hans lá um, var hann hollráður og ljúfur leiðbeinandi, þeim sem voru að hefja störfin. Sumarliði var víðlesinn og fróður. Hann var ljóðelskur, enda vel hag mæltur. Birtust oft eftir hann ljóð og stökur í blöðum og tímaritum og eftir hann liggur ein ljóðabók, er kom út árið 1934. Sumarliði kvæntist 1919, Sigríði Guðmundsdóttur frá Belgsholti í Melasveit. Einsog áður greinir bjuggu þau hjón á Akranes'i til 1940, en fluttu þá til Reykjavíkur. Sigríður átti um langt skeið við vanheilsu að stríða og lézt árið 1945. Þeim varð tveggja barna auð ið, en þau eru: Sigríður er starf ar á skrifstofu forstjóra í Reykja- vík, en hún hélt lengst af heimili með föður sínum og ísleifur skóg- arvörður á Vöglum, kvæntur Sig urlaugu Jónsdóttur frá Skarði í Dalsmynni. Hin síðari ár dvaldist Sumarliði löngum að Vöglum hjá syni sín um og tengdadóttur. Sonarbörnin vora að vaxa þar úr grasi og nutu í ríkum mæli umhyggju hans og ástar. Honum féll aldrei verk úr hendi og nú nutu þeirra jöfnum- höndum nýgræðingurinn í Vagla- skógi og bömin sem hann fræddi og leiddi sér við hönd. Sumarliði var heilsuveill um skeið á yngri árum og gekk hann þá undir holskurð. Þótti undrun sæta að hann skyldi fá bata. Fyrir nokkram éram kenndi hann að nýju meins og gekk undir upp- skurð og enn á þessu vori hér í Reykjavík. Honum var þá ljóst sjálfum að hverju stefndi. En hann þráði að komast norður { Vagli og sjá glókollana sína og bíða þess þar sem að fór. Hann var ein- lægur trúmaður alla ævi og á þess um þáttaskilum var hann búinn að átta sig fyrir löngu. Honum varð að ósk sinni og hann komst norður þótt að fársjúkur væri. Fjöl skyldan öll, dóttir, sonur og tengda dóttir vöktu yfir honum til hinztu stundar og veittu honum alla þá líkn sem í mannlegu valdi stóð. Aldinn heiðursmaður er horf inn sjónum og það ríkti harmur hjá þeim sem honum stóðu næst, en mild'i og heiðríkja hvílir yfir minningu þessa grandvara og góða drengs. Einar G. E. Sæmundsen.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.