Vísir - 25.08.1965, Blaðsíða 7

Vísir - 25.08.1965, Blaðsíða 7
VISIR . Miðvikudaginn 25. ágúst 1965. 7 III. HNIFSDALUR VIÐ ÍSAFJARÐARDJÚP Ef haldið er út með ströndinni frá ísafjarðar kaupstað, er fljótlega komið að litlu kauptúni, sem liggur aðkreppt í mjóum dal fyrir utan Eyrarhlíð. Þar er smá vík inn úr ísafjarðar- djúpi, sem heitir eftir þorpinu, — Hnífsdals- vík. Há fjöll kreppa að þorpinu á báða vegu, þar sem það liggur í lægð við sjóinn og í brekkunni sunnan við lægðina. Snjóflóð salerni og fundarsalur. Þetta á að klárast í næsta mánuði. Hús- ið er teiknað af Gísla Halldórs syni. Óvenjulegir þurikar og vatnsleysi. — Það hafa verið alveg ó- venju miklir þurrkar hér í sum ar og talsvert borið á vatns- leysi. Við verjum 1 ár 300.000 krónum til vatnsveitu. Raur.ar var byrjað á vatnsveitufram- kvæmdum árið 1960. Þá var byggð stór þró nokkuð fyrir vestan þorpið við uppsprettu- vatn framan úr Fremri-Hnífs- dal, sem er eyðibýli hér inni í dalnum. Vatnið er tekið úr Bæj- ará og Ieitt rúma tvo kílómetra Þorpið farið að rétta við hafa verið tíð í Hnífsdal og er mönnum enn minnisstæður hinn hörmulegi atburður, er snjó flóð úr Búðarhyrnu sópaði vet- urinn 1910 húsum og mönnum á Hnífsdal á sjó út og 18 manns fórust. Nú er byggt úr traustari efnum ,en gert var í þá daga. Sjófang er aðalatvinnuvegur þorpsbúa. Landbúnaður er ekk: stundaður að neinu ráði, enda er ekkert undirlendi til slíks í kauptúninu eða við það. Oddviti á Hnífsdal er athafna- Imaðurinn Einar Steindórsson og átti blaðið fyrir stuttu tal við hann um kauptúnið og aðstöðu þess. Sagði Einar m. a.: Nýr brunabíll — Nýtt félagsheimili. — Hreppurinn fær tæpar tvær milljónir króna í kassann. Þar af eru 1.451 þúsund krónur í tekju útsvör, 47 þúsund í eignaútsvör og 428 þúsund í aðstöðugjald. Þetta fer mest í föstu liðina, og lítið eftir til nýrra framkvæmda. — 160.000 krónur fara í nýjan brunabíl, sem við erum að fá hingað. Það er Land Róver bíll með öllum nauð^ynlegum tækj- um, svo og vatnsgeymi. Hann er kominn til ísafjarðar og kem ur hingað einhvem næstu daga. Hingað til höfum við notazt við brunavagn, sem hefur verið hægt að tengja aftan í bíla. Nýi bíllinn kostar alls 240.00 krónur, en við vorum búnir að veita fé til hans að nokkru leyti áður. — Félagsheimilið hér er i byggingu og er nú syo langt komið, að það verður hægt að byrja að nota hluta þess í haust. Við höfum varið 300.000 krón- um til byggingar þess ( ár. Það liggur mikið á að koma því i notkun, því gamla samkomuhús ið brann í sumar, skemmdist mikið og er ónothæft. Við byrj uðum á nýja húsinu árið 1959 og á það að verða gríðarmikið hús. í haúst verður tekinn í notkun kaffisalurinn, sem tekur um 120 manns við borð en aðalsalurinn verður að bíða. í haust verður líka tekið í notkun eldh., búrið, til kauptúnsins. Það er byrjað á stíflunni og búið að panta rör in. En það er ekki víst, hvenær þessu verki lýkur. — Svo er verið að byggja skólastjórabústað héma. Hann var kominn undir þak á síðast- liðnu ári og verður haldið áfram að vinna við hann í haust fyrir 150.000 krónur. Hann á að vera tilbúinn haustið 1966, því ríkisframlagið -á móti okkar framlagi kemur ekki fyrr en það ár. —Við höfum ekki höfn hér, bara bryggju, sem er dálítið fyr ir innan þorpið á leiðinni til ísafjarðar. Við emm alveg rétt frá ísafjarðarkaupstað, 10 — 15 mínútna akstur og því fáum við aldrei höfn hér. Bryggjan var lengd síðast árið 1950 og þá um 20 metra og er nú um 80 metrar. Vestfjarðaáætlunin gerir ekki ráð fyrir neinni fjárveitingu f höfn hér. Talað við Einar Sfeindórs- son oddvita Sækja þjónustu til ísafjarðar. — Nú er Vegamélastjóri að láta byggja hér nýja brú á ána. Hnífsdælingar byggðu gömlu brúna árið 1921 og er hún nú hætt að þola álagið af umferð- inni. Nýja brúin á að verða til- búin í haust. Hún hefur raunar aðallega gildi fyrir Bolvíkinga, því hún er á þjóðveginum þang að. Sjálfir höfum við ágætar samgöngur til ísafjarðar, þenn an kortérs-spotta, og er hann alltaf mokaður ef hann verður ófær á vetuma vegna fannkomu, sem kemur stöku sinnum fyrir. Vegurinn verður alltaf að vera fær, þv' við höfum hér hvorki lækni né yfirsetukonu. Svo er nú orðið allur fiskur frá Bolung- arv. fluttur hér í gegn til ísafj., sem er útflutningshöfn fyrir þessa staði. — Héðan ganga þrír stórir bátar, tveir 200 tonna og 264 tonna báturinn Guðrún Guðleifs dóttir. Svo eru hér tveir 100 tonna bátar. Allir eru þessir bátar á síld nú. Þeir koma hing- að í haust þegar þeir taka lín- una, og verða hér áfram þegar þeir taka net í febr. Þeir landa hér á vertíð. Hér er mesta erfiði með allar framkvæmdir, því menn era á síld og úti um hvippinn og hvappinn, en ekki nema börn og gamalmenni heima fyrir. Frystihúsið er að fá sér tæki eins og flökunarvél til að spara vinnuaflið. 21 hús byggt í skorpu — Það er búið að byggja hér mikið á undanförnum árum. Síðan 1950 er búið að byggja hér 21 hús, en þá hófst mikil * byggingaalda hér. Þetta eru allt stórar hallir. Nú eru hér tvö i- búðarhús í byggingu. — Árið 1925 voru hér 437 íbúar, en síðan setti staðinn nið ur á löngu tín\abili. Fólk flutt ist í fjölmennið á Isafirði. En nú er sú þróun jafnvel að snúast við, — ísfirðingar eru famir að flytja hingað. íbúatalan er byrjuð að vaxa aftur, þótt hægt fari. Nú eru hér 308 íbúar, en á tímabili var íbúatalan komin töluvert niður fyrir 300 íbúa. — J. Kr. Á 13 FETA SKIPI YFIR ATLANTSHAF • • i, á Tinkerbelle er ekki minnsti seglbátur, sem siglt hefur ver- ið yfir Atlantshaf og er þó að- eins þrettán ensk fet á lengd, en hið minnsta sem siglt hefur verið yfir Atiantshaf frá Bandaríkjunum til Bret- lands, eins og frá var sagt hér í blaðinu fyrir stuttu. Og svo er hér mynd af Manry sjálf- um, er hann var kominn til Fal- mouth að aflokinnj 5000 km. siglingu, sem tók 79 daga — og er að „drekka fyrsta tesop- ann“ hjá Bretanum.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.