Vísir - 01.10.1965, Blaðsíða 7
v i s IR . Föstudagur 1. oktöber 1365,
*
Cvo virðist sem samtök Sam-
k~7 einuðu þjóðanna séu nú tals
vert að rétta við, en eins og
menn minnast voru þau í mikl-
um öldudal sl. ár og mátti þá
heita að S.Þ. væru óstarfshæfar
vegna þeirrar skuldabyrði sem
lá á þeim og þar sem Banda-
ríkjamenn þá héldu fram til
streitu kröfu sinni um að þau
ríki sem skulduðu samtökunum
sinn hluta af kostnaðinum ættu
ekki að hafa atkvæðisrétt, en
sú krafa var í samræmi við stofn
reglur samtakanna.
Margt fleira stuðlaði að nið-
urlægingu Sameinuðu þjóðanna
á s. 1. ári og ber þar einna helzt
um fannst að væri að teygja að-
gerðir S. Þ. inn á svið sem sam-
tökunum kom ekkert við. Varð
Kongó-mál'ið um leið eitt af al-
varlegustu misklíðarefnum de
Gaulles og Bandaríkjamanna,
því að hinn franski forustumað
ur áleit að bak við allan le'ik
Hammarskj. stæði áþrenging
Bandaríkjamanna, sem vildu
auka áhrif sín í Kongó á kostn-
að Evrópu.
■jV"ú virðist sem sagt vera all-
^ ’ mikið að rætast úr þessum
erfiðl Sameinuðu þjóðanna.
Nú gerist það í fyrsta skipti að
Couve de Murville utanríkisráð
herra Frakka mætir á Allsherjar
þinginu og flytur þar sína ræðu
og er . svo að sjá, að Frakkar
telji sér nú hagkvæmt að vinna
heitega föður.
Tjessa má og sjá dæmi í því
að framkvæmdastjóri S. Þ.
U Thant mun nú breyta algerl.
út af protokollinum og sýna
þessum heilaga gesti miklu meiri
virðingarvott en nokkrum öðr-
um sem þangað koma hefur ver
ið sýndur. Er það eitt í þessu,
að U Thant mun sjálfur fara út
á Kennedy-flugvöll til þess að
taka á móti gestinum. Það hefur
framkvæmdastjóri S. Þ. aldrei
gert, heldur látið sér nægja að
standa við inngöngudvr bygg-
inga S. Þ. og heilsa þar hinum
komandi gesti.
U Thant er þó fjarri því að
vera kaþólskur. Hann er ættað-
ur austan úr Burma, alinn upp
í austrænn; Búddhatrú og vafa-
Hammarskj. fór með þetta em-
bætti og gera nokkum saman-
burð á starfsaðferðum þessara
tveggja anna. U Thant kom í
þetta embætti eftir hið snögg-
lega fráfall Harpmarskjölds og
hann átti örðugt í því £ fyrstu.
Mönnum virtist hann standa
mjög £ skugga fyrirrennara sins
Nú er álitið að hann sé til fulls
búinn að yfirvinna þessa fyrstu
örðpgleika og hann er nú miklu
öruggari og ákveðnari en fyrst
i stað. Og að mörgu leyti ifkar
mönnum betur við hann persónu
lega en Hammarskjöld.
T samanburði á þessum tveim
ur mönnum mætti segja
að Hammarskj. hafi verið glæsi
legri persónuleiki. heimsmaður,
feikilega fær maður og greind-
ur, með næstum því óskiljan-
lega skipulagningargáfu. Hið
mikla skipulag skrifstofu Sam-
einuðu þjóðanna var hans verk.
Hann var alvanur að stjóma og
skipuleggja alþjóðasamtökum,
hann kunni vel að láta þá vél
starfa og snúast snurðulaust.
Að þessu leyti hefur starfsemin
haldið áfram óbreytt, nema hvað
S.Þ. OG
að nefna hinn mikla urmul
nýrra rikja er fengið hafa aðild
að samtökunum. Flest þessara
nýju ríkja voru frumtæð lönd
svertingja í Afríku og fulltrúar
þeirra er óvanir eru alþjóðl. ráð
stefnum höfðu sig mjög í
frammi. Var ekki laust við að
fulltrúum hinna eldri og grón-
ari menningarþjóða þætti belg
ingur Afriku-fulltrúanna of mik
ill, þar sem þeir héldu uppi stöð
ugum ræðuhöldum og þóttust
að sjálfsögðu allt vita og eiga
auðvelt með að leysa margs-
konar fjarlæg vandamál. Er
víst að margir evrópskir full-
trúar voru orðnir æði þreyttir
á langlokum svertingja í ræðu-
stól og fengu brátt það álit á
þessum svörtu fulltrúum að þeir
væru fremur i ræðustólinn komn
ir til að sýna sig og láta á sér
bera, fremur en að málflutning
ur þeirra kæmi að nokkru gagni.
Víst er um það að hvítu þjóðirn
ar eru orðnar alluggandi yfir
hinum mikla meirihluta sem
frumstæðar þjóðir eiga nú á
þingi S. Þ. án þess að því fylgi
nokkur raunveruleg alþjóðaáhrif
þeirra og sé rödd þeirra því ekki
í neinu hlutfalli vi8 hverjir aðil
ar helzt geta haft áhrif á alþjóða
málin.
| ^eiddi þetta til þess. að hörð
gagnrýni kom fram á starf
semi Sameinuðu þjóðanna úr
ýmsum áttum. Meðal annars
gagnrýndi Douglas Home sam-
tökin mjög harkalega i einni
ræðu sinni er hann hélt meðan
hann var enn við völd og vildi
láta þá endurskipuleggja Sam
einuðu þjóðirnar frá grunni,
þannig að miðað væri við hið
raunverulega ástand í heimin-
um og að stórþjóðimar fengju
þar meira að segja.
Einnig hefur það verið al-
mennt vitað, að de Gaulle Frakk
landsforseti hefur haft hom í
sfðu sameinuðu þjóðanna vegna
Kongó-málsins. Hann leit svo á,
að Kongó-vandamálið hefði ver
ið viðfangsefni, sem Evrópuþjóð
imar áttu að leysa og mislíkaði
honum miög aðgerðir Hammar
skjölds á sínum tíma, sem hon
að áhugamálum sínum þarna,
má jafnvel vera, að þeir hyggist
reyna að notfæra sér umræðu
og samningagrundvöll á Alls-
herjarþinginu til að koma upp
sinni fylkingu, er sé auðvitað á
öðm máli en Bandaríkjamenn.
Er spuming hvort að þannig
gæti risið upp frönsk blökk á
Allsherjarþinginu er gæt’i þá e.t.
v. að einhverju leyti komið í
staðinn fyrir gömiu Hlutleys-
ingjablökkina, sem nú er öll
klofin og sundruð orðin vegna
ýmiskonar erfiðleika og þá sér
staklega upp á síðkastið vegna
þeirra vandræða sem forustu-
ríki hlutleysingjanna, Indland er
nú komið í. Virðist sem hin
furðulega afstaða Frakka til
Kína geti orðið undanfari þess.
Er svo að sjá sem de Gaulle
hugsi sér að Frakkland eigi að
byggja einhvers konar brú miili
austurs og vesturs. Fellur það
saman við hans tungutömu orð
að Evrópa nái frá Úralfjöllum
til Atlantshafs.
Núna £ byrjun mánaðarins ger
ist síðan stórviðburður í bæki-
stöð Sameinuðu þjóðanna. Sjálf
ur hinn mikli og heilagi páfi Páll
VI kemur fljúgandi til New York
til þess að heimsækja bækistöðv
ar Sameinuðu þjóðanna og flytja
þaðan ávarp til alheimsins. Nú
er það svo að þrátt fyrir það,
að vér hinir lútersku villutrúar
menn norður á íslandi séum ekk
ert hrifnir af páfanum eða starfs
aðferðum kaþólsku kirkjunnar.
þá verðum við að viðurkenna,
að þessi ferð Páls er hin sögu-
legasta. Áður en Páll páfi, áður
Montini kardináli settist á gyllta
hásætið i Vatikaninu höfðu páf
arnir haft kvrrt um sig og yfir
leitt aldrei farið út fyrir Róma-
borg, hvað þá út fyrir Ítalíu.
En Páll er páfi þotualdarinnar.
Hann hefur þegar „þotið“ bæði
til Gyðingal. og Indl. og nú á
að „þjóta“ næst yfir Atlantshaf-
ið. Þessi koma hans gefur núver
andi þingi S. Þ. vitanlega allt
annan svip en fyrri þingum.
Þetta þykir svo sögulegur við-
burður að stórmenni heims ým-
ist þyrpast til N-York til þess
að láta sjá sig þar með hinum
laust mun Páll páfi líta á hann
sem heiðingja. En páfinn og ka
þólska kirkjan eru nú orðin
svo frjálslynd á trúarsviðinu.
Hefur kirkjan meíra að segja
lýst því nýlega yfir, að menn
megi vera heiðingjar og virða
béri trúarskoðánir alira.
A ugu heimsins hafa að undan
förnu beinzt mjög að U
Thant. Hann hefur verið mjög
önnum kafinn að undanförnu og
farið með þotum víða um heim,
austur til Moskvu og svo til
Karachi og Nýju Delhi. Og það
verður að álíta að hann hafi
unnið allmikinn og merkilegan
sigur nýlejp, þegar hann fékk
Öryggisráð S. Þ. til að gefa Ind
verjum og Pakistönum fyrirmæli
um að hætta bardögum — og
þessari fyrirskipun hlýddu bæði
ríkin. Þama kom það fram, að
Sameinuðu þjóðimar búa yfir
miklu afli, ef því er réttilega
beitt. 1 forsvari fyrir þeim er þá
nauðsynlegt að sé maður, sem
veit hvað hann vill.
í þessu sambandi hafa menn
farið að rifja upp ýmsar minning
ar sínar frá þeim tíma er Dag
og hvað er rangt. Og hann er
miklu einlægari í öllum viðræð
um, hleður engan múr í kring-
um sig eins og Hammarskjöld
Jndlandsmálið núna er sá sigur
sem mest ber á, en þó má
segja að hann hafi þolað miklu
meiri þrautir og þraukað þær af
þar sem voru greoiðsluerfið-
leikar samtakanna { fyrra.
Þá ■'-'irtist oft á tíðum, að sam
tök Sameinuðu þjóðanna væru
í þess orðs réttu merkingu gjald
THANT
fjárhagsörðugleikar hafa valdið
nokkrum truflunum, einkum í
ýmsum sérstökum stofnunum
Sameinuðu þjóðanna.
Hins vegar verkaði Hammar
skjöld sem mjög kaldur og til-
finningalaus maður. Hann tók
oft þátt í erfiðum samningaum
leitunum, starf hans var að
reyna að sætta ólíkar skoðanir,
tala milli tveggja fjandsveita. I
öllu slíku starfi var hann kaldur
og virtist oft skoðanalaus.
Hann vann sem hinn fullkomni
sáttasemjari, sem aldrei lét í
Ijósi sína eigin skoðun á því
hvað væri rétt eða rangt.
A þessu sviði er U Thant tals
vert öðruvísi. Hann hefur
ekki yfir sér sama glæsibrag
og Hammarskjöld. Hann er að
vísu alltaf mjög snyrtilega til
fara vel greiddur og fínn, en
hann skortir mælskuna, hann tal
ar lágt og með hálflokuðum
munni svo að þeir er hann ræðir
við heyra stundum vart hvað
segir. En hann segir næstum allt
af meiningu sína. Þegar hann
talar milli deiluaðila lætur hann
i ljós álit sitt á þvi hvað er rétt
U Thant
þrota fyrirtæki. En þrátt fyrir
alla erfiðleikana virtist sem böl
sýnin næði aldrei tökum á U
Thant. Hann fór í sínar ferðir til
ýmissa þátttökuríkja til þess að
reyna að rukka inn eitthvað af
skuldunum. Sýndi hann þá jafn
an hið stakasta jafnaðargeð,
jafnvel þótt þetta rukkarastarf
væri ekkert skemmtilegt fyrir
hann. Þó einhverjir skelltu á
hann hurðinni og segðust ekkert
borga, hélt hann rólegur áfram
sinn’i ferð og sagðist koma aft
ur síðar.
Það er e. t. v. meginverk U
Thants fram að þessu, að hon-
um tókst þetta erfiðleikaár að
halda skútunni fljótandi.
Sigur hans £ IndlandsmáKnu
er að vísu merkilegur. en þar
eiga Sameinuðu þjóðimar eftir
að bíta úr nálinni. Fá samtökin
þar sams konar hlutverk og í
Kongó. Þarf enn að fara að
moka millj. dollara í kostn-
að við gæzlulið. Það er ekki vfst
að samtökin hafi efni á nýrri
herferð.
I»orsteinn Tliorarensen.
iRM
Berklavarnadagurinn 1965
Næsta sunnudag verður fjársöfn-
unardagur Sambands íslenzkra
berklasjúklinga, Berklavamadag-
urinn og sá 27. í röðinni.
Merkjasala fyrsta sunnudag í
október er orðin fastur liður £
fjáröflunarstarfsemi SÍBS og hafa
landsmenn allt frá byrjun tekið
þessari söfnun mjög vel. Nú eru 20
ár liðin siðan Reykjalundur hóf
starfsemi sína og það sem áunnizt
hefur á þessum 20 árum er margt,
en þó fyrst og fremst, að tekizt hef
ur að fullu að vinna bug á berkla
veikinni. Fyrir 11 árum vom allir
þeir vistmenn sem komu að
Reykjalundi haldnir berklaveiki, en
síðan hefur sú breyting orðið á,
að eftir því sem berklasjúklingum
fækkað’i, hefur í æ rikara mæli
verið tekið á mót; öðrum öryrkja
hópum til dvalar þar.
Vegna hins breytta ástands í
þessum málum hefur ekki verið
hjá því komizt að gera nýja reglu-
gerð um vinnuheim’ilið að
Reykjalundi og er hún all frábmgð
in h'inn; fyrri, frá 1945. Er þar
fyrst og fremst gert ráð fyrir
að heimilið starfi sem öryrkjaheim
ili og stuðlað að endurhæfingu
öryrkja að svo miklu leyti sem
unnt er, og reynt að gera þeim
kleift að komast á ný út í atvinnu
lifið Þá hafa einnig verið settar
nýjar reglur um kaup og kjör v'ist.
manna. Er þá vistmönniHn, eftír
starfsgetu, greitt kaup frá 50-100%
af kauptaxta viðkomandi KSngrein
ar.
Nýlega hafa verið byggð þrjú
ný smáhús til viðbótar þeim tfu
sem fyrir vom, og eftir þá vfiSbót
eru 112-115 rúm á Reykjalundi.
Öryrkjar á öllu landinu eru í
dag um 3000, og enn er grettistaki
eftir að lyfta eigi að vera hægt
að veita hverjum einstaklingi þá
hjálp sem hann þarfnast. Merkja-
salan er einn liður í baráttunni
fyrir endurhæfingu öryrkja og
vona forstöðumenn SlBS að ís-
lendingar sýni þessu máli sama
skilning og undanfarin ár.