Vísir - 06.10.1965, Blaðsíða 1

Vísir - 06.10.1965, Blaðsíða 1
VISIR 55. árg. — Miðvikudagur 6. október 1965. - 227. tbl. Slysabifreiðinni af Lang- holtsveginum stillt upp almenningi til viðvörunar Það vakti tnlkla athygli veg- farenda sem fóru um Aðalstræti f morgun, að á bifreiðastæðinu á Hótel íslands-lóðinni var búið að stilla upp á áberandi stað mönnum til sýnis og viðvörun- ar bifreið þeirri sem olli slys- inu á Langholtsvegi um s.l. helgi. Er hún með sömu um- merkjum og eftir áreksturinn, mjög beygluð og illa farin. Mátti glöggt sjá þetta þótt segl væri enn bundið yfir bifreiðina og þekktu vegfarendur, hvaða bíll þetta var. Blaðið fregnaði að það væri Umferðarnefnd Reykjavíkur- borgar og Samstarfsnefnd bif- reiðatryggingafélaganna, sem stæðu fyrir sýningum á þessari bifreið og er þetta kostað af tryggingarfélögunum. Auk bílsins á Hótel íslands- Framh. á 6. síðu. jr A morgun hefst þotuflug héðan til Hafnar Ónýti bfliinn vakti mikla athygll á Hótel íslandslóðinnl i morgun. Á morgun hefjast fastar áætlun- arferðir Pan American héðan til Kaupmannahafnar og Glasgow. Verða þotur féiagsins í fluginu en þær eru af gerðinni DC8 og Boeing 707 og taka 140 farþega. Eru ferðir áætlaðar einu sinni í viku á fimmtudagsmorgnum og verður lagt af stað héðan kl. 7 til — / viðskiptum v/ð Austur-Evrópu. Viðskiptamálaráðherra segir frá breytingum á greiðsluháttum i viðskiptum við Tékkóslóvakiu Gylfi Þ. Gíslason viðskiptamála- ráðherra sagði í fréttaauka í út- varpinu í gærkvöldi, að í ráði vseri að breyta greiðsluháttum að ein- hverju leyti i viðskiptum íslands og Tékkóslóvakíu, þannig að við- skiptin verði frjálsari. Þá hefur blaðið frétt, að einnig Sovétríkin , og önnur austantjaldsiönd hafi nú , ekkert á móti því að minnka vöru j viðskiptaformið á verzlun við | Vesturlönd og taka í þess stað upp i viðskipti í hörðum gjaldeyri og I miða við heimsmarkaðsverð. i Viðskiptamálaráðherra er nýkom I inn úr ferð til Tékkóslóvakíu, þar sem hann ræddi við ráðamenn, m. a. við Frantisek Homuouz við- skiptamálaráðherra, en Tékkósló- vakía er eitt af helztu viðskipta- löndum fslands. f frásögn viðskiptamálaráðherra segir m. a.: „Fram til þessa hafa viðskiptin milli landanna verið á BMreiðaviBgerðir hækka Nokkur verðhækkun hefur verkstæðum, en Jón Ármann orðið á bifreiðaviðgerðum, og kvað óhætt að fullyrða, að sögu er ástæðan sú, að kauphækkan^^ ir hafa orðið all nokkrar hjá bifvéiavirkjum, eða í stórum dráttum allt að 19.5%. Vísir átti tal við Jón Ármann, verkstæðisformann hjá Heklu, og kvað hann verðlagningu bif reiðaverkstæða algjörlega frjálsa, en þótt verkstæðin hefðu engin samtök sín í milli væri alltaf nokkurt samband meðal þeirra og reyndin væri sú, að útsöluverð á viðgerðum hafi að mestu staðið í hlutfalli við laun bifvélavirkja. Samkvæmt samningum frá 1. september urðu miklar breyting ar á launastiga bifvélavirkja, er virkar sem óbein 19,5% kaup- hækkun. Hefur sú hækkun leitt af sér hækkun á útsöluverði við gerða um allt að 15—20%. Eðlilega kunna hækkanir að vera mismunandi miklar eftir sagnir um 30% hækkun hefðu við engin rök að styðjast. vöruskiptagrundvelli. f viðræðum, sem fram fóru við viðskiptamála- ráðherrann og helztu embættis- menn hans og undirbúnar höfðu verið að nokkru leyti hér heima í sambandi við síðasta eins árs samn inginn, sem gerður var nokkru áð ur en ég fór til Tékkóslóvakíu, var um það rætt, að gera í næsta heildarsamningi, sem venjan hefur verið að gera til þriggja ára í senn ýmsar breytingar á greiðslu- háttum i viðskiptum landanna. Vona ég að þær breytingar hafi í för með sér, að viðskiptin verði frjálsari og vöruframboð fjölbreytt ara, og verði breytingarnar þann- ig neytendum í báðum löndunum til hagsbóta." Glasgow og Kaupmannahafnar. Samdægurs fara þotumar frá Kaupmannahöfn til Keflavíkur um Glasgow og síðan héðan kl. 19.00 til New York. Framh. á bls. 6. Rússnesku rek- netuskipin furin uð sjúst á miðunum Frá Steingrími Sigurðssyni, blaðamanni Vísis, sem var staddur á Norðfirði í morgun. „Litlu svörtu skipin“, eins og þau er kölluð hér á Sjómanna- stofunni, eru farin að sjást á síldarmiðunum. Þetta er rúss- neskí reknetaflotinn, sem hefur veitt á hverju hausti á Rauða torginu, innan um íslenzku veiðiskipin. íslenzku sjómönn- unum hefur jafnan þótt hálf- gerð vá í komu Rússanna enda fara veiðiaðferðirnar illa sam- an og spillir hvor fyrir hinum. Rússnesku skipin virðast vera færri en oft áður á þessum tíma, og vona menn, að ásókn þeirra verði minnj { þetta sinn J en venja hefur verið. WW\AAA/VA/WWWVW\ Allar þrær fullar suntian Langaness Ekkert lót á mokveiðinni Frá Steingrími Sigurðssyni, blaðamanni Vísis, sem var staddur á Norðfirði í morgun. Hér hafa ríkt stiilur og mikl- ar þokur í hálfan mánuð og ríkja enn. Þessu fylgir góður veiðiskapur eins og hefur sýnt sig undanfarið. Ekkert lát virð- ist á mokaflanum og er hann frekar vaxandi en hitt. í nótt fengust 55.950 mál og tunnur á Rauða torginu, 50—70 mílur austsuðaustur af Gerpi. Aflinn hefur að undanförnu verið að jafnaði 50—60 þús. mál og tunn ur á sólarhring. Mesta veiðin er á timanum frá kl. 19 á kvöld- in tii kl. 7 á morgnana. Allar þrær eru fullar fyrir sunnan Langanes og fylltist síð ast á Bakkafirði. Fá skip eru inni og eru flest skipin annað hvort á leið út á miðin eða á leið með afla til Raufarhafnar. Þangað er löng sigling, 13 tfmar frá Norðfirði, en héðan á miðin er ekki nema 4 — 5 tíma sigling. í gær voru saltaðar hér 1800 tunnur úr Bjarti, 1200 tn. úr Barða og 200 tunnur voru af- greiddar úr Þorbirni II. Alls eru hér sex löndunarstöðvar. Ekki er búizt við frekari löndun hér á Norðfirði fyrr en á föstudag vegna löndunarerfiðleika. í gær höfðu verið brædd hér 275.000 mál á vetrarveríðinni, 45.000 tunnur saltaðar og 7.000 frystar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.