Vísir - 06.10.1965, Blaðsíða 9

Vísir - 06.10.1965, Blaðsíða 9
VlSIR . Miðvikudagur 6. október 1965, 9 " Aöal sjónvarpssendirinn að koma til landsins. Senn allt sjónvarpsstarfsliðið fullráðið — Vel séö fyrir tekjuhliöinni VÍSIR ræðir við Vilhjálm Þ. Gíslason útvarpsstjóra um framkvæmdir Islenzka sjónvarpsins Vilhjálmur Þ. Gíslason útvarpsstjóri. - ÖIl senditæki hins nýja íslenzka sjónvarps verSa af þannig gerð, að þau henta einnig fyrir litsjónvarp, sagði Vilhjálmur Þ. Gíslason sjón- varps- og útvarpsstjóri, er ég átti tal við hann á skrifstofu hans í Ríkisútvarpinu í gær um hið fyrirhugaða sjónvarp. Sjónvarps og útvarpsstjóri er nýkominn heim frá Vestur- Þýzkalandi. Þangað hélt hann í boði utanríkisráðuneytisins f Bonn og erindið var vitanlega að líta á þýzka sjónvarpið og útvarpið. En áður en við hófum að spjalla um för hans og erindi í Þýzkalandi barst talið að því hvemig gengi uppbygging hins íslenzka sjónvarps og allur tækniundirbúningur. sviga má skjóta því inn að þeg ar að því kemur þurfa menn að afla sér nýrra viðtökutækja; þá hafa tækniframfarimar gert nú- verandi tæki úrelt. Fjárfestingin í sjónvarpstækjum hér á landi mun vera um 200 millj. króna í dag.) — Og þið haflð verið að ráða starfslið? — Já, dagskrárstjórar verk- fræðingur og nokkrir fleiri em þegar ráðnir, og nú er unnið að því að fullráða þá 30 starfsmenn sem verða í fyrstu för íslenzka sjónvarpsins. Það veitir sannar lega ekki af að fá þá strax til starfa, þar sem ekki er ár þar til fullkomið sjónvarp á að geta hafizt. Við þurfum að láta þiálfa starfsfólkið erlendis. 1 Dan- Nordvision, sem eru samtök- sjónvarpanna á Norðurlöndum og á döfinni er aðild okkar að Eurovision. Þessi samtök ann- ast mjög mikla og ágæta miðlun sjónvarpsefnis og er það okkur mikils virði að vera þar í fylk- ingu. — Og er nokkuð tómahljóð í kassanum hjá íslenzka sjónvarp- inu? — Ekki aldeilis. Þing og stjórn menn geti innan fimm ára stillt sjónvörp sin inn á stöðv ar um allan heim. Aðrir sjón- varpsmenn telja þetta of mikla bjartsýni. En Sarnoff hefur fyrr sýnt að hann er framsýnn og raunsýnn og hver veit nema hann hafi hér einnig á réttu að standa. — Þú ert nýkominn frá skoð- unarferð um vestur-þýzku sjón- varpsverin? hljómsveitarinnar, ef tækifæri gæfist. Þá hitti ég útvarpsstjór- ann í Hamborg að máli, von Hammerstein, og ræddi m.a. við hann um litsjónvarpið, sem Þjóðverjar búast við að muni að fullu upp tekið eftir 3-5 ár. Kom ég einnig í Lokstedt-studi óin fyrir utan Hamborg og sá þar gerð sjónvarpsmynda. í Berlín stóð svo vel á að þar var tónlistar- bg leiklistarhátið í fullum gangi' er ég kom þang að. Þar heyrði ég Karajan stjóma og var þið mikil stund Einnig sá ég þar Sir Laurence Olivier leika með flokk frá brezka þjóðleikhúsinu, Othello og gamlan farsa, Love for Love. Var það einnig mjög eftirminni- legt. I þerlín hitti ég Herr Steigner, útvarpsstjóra Sender Freies Berlin, og ræddi við hann um starfsemi stöðvar hans. í Miinchen átti ég fund með aðaldagskrárstjóra Bayeris ches Rundfunk Walter von Cube. Þýzka útvarpið og sjónvarpið standa á mjög háu stigi. Dag- skrámar eru góðar og menning arlegar og þessar stofnanir em auðugar og leggja mjög af mörkum til menningarmála, styðja hljómsveitir og leikhús. Er það allt mjög til fyrirmynd ar og eftirbreytnisvert. Otvarp ið er heldur í skugga eins og sakir standa, en flest.ir er ég ræddi við töldu að það myndi ná meiri vinsældum er nýja- bram sjónvarpsins færi af. Þá kynnti ég mér eirmig nokkuð hvaða aðferðum er beitt við skoðanakannanir um vinsældir útvarps- og sjónvarpsefnis, en slíkar byrjunarkannanir höfum við gert hér heima. Er hin mesta nauðsyn að koma full- komnu könnunarkerfi á, svo unnt sé að ætla hvernig dag- v — Já, ég fór þangað í tiu daga ferð, ágæta, fróðlega og skemmtilega. Kom ég til Ham borgar, Berlinar og Miinchen og sá þar margt merkilegt og hitti útvaxps- og sjónvarpsstjóra. í Hamborg hitti ég prófessor Schmidt-Isserstedt þar sem hann var að stjórna Sinfóníu- hljómsveit borgarinnar á tónleik um fyrir sjónvarpið. Ég rabbaði við hann og tók hann m.a. vel í það að koma hingað til lands og stjóma tónleikum Sinfóníu- skrámar falla í smekk fólks, sjáenda og hlustenda. Er það ómetanlegur styrkur við gerð dagskránna. 1 Þýzkalandi ann ast slíkar kannanir sjálfstæðar stofnanir og heimsótti ég eina slíka, Hans Bredow Institut í Hamborg. Þessi för mín var því á allan hátt fróðleg og skemmtileg en mörg verkefnin eru, sem enn bíða óleyst hér á landi í sjón- varps- og útvarpsmálum okkar. G. Námsstyrkir Evrópu- ráðs á sviði félags- mála — Og hvenær mun íslenzka sjónvarpið taka til starfa? — Nú í nóvember vonumst við til þéss að reynslusendingar á kyrrstæðum sjónvarpsmynd- um geti þegar hafizt. Þær mynd ir era sendar út til þess að mæla styrkleika stcðvarinnar og mót tökuskilyrði. Sjálft sjónvarpið getur síðan vonandi hafið göngu sína með kvölddagskrá á miðju næsta ári. Nú er á leiðinni til landsins stóri sjónvarpssendirinn og verð ur honum komið fyrir uppi á Vatnsendahæð. Mörg önnur nauðsynleg tæki era ýmist kom- in eða rétt ókomin, og eins og þú veizt hefur framvarðarlið sjón- varpsins þegar flutzt inn í sjón- varpshúsið að Laugavegi 176. Þar er nú unnið af fullu kappi að breytingum á húsinu eftir teikningum starfsmanna Húsa- meistara, en þær eru gerðar i samráði við aðalarkitekt sænska sjónvarpsins. 1 þessu húsi verð ur eitt mjög stórt stúdió og önnur smærri og herbergi fyrir starfslið og starfsemi hins ís- lenzka sjónvarps. — Og þið gerið ráð fyrir lit- sjónvarpi hér á landi? — Já, litsjónvarpið er þegar hafið í Bandaríkjunum og nú fara fram athuganir á því hvert þriggja Iitkerfa Evrópulöndin skuli- velja sér. Það er þannig fullvíst að eftir fá ár verð- ur litsjónvarpið komið til skjal- anna. Þess vegna era öll tæki- okkar keypt þannig að þau gilda einnig fyrir litsjónvarp. (Innan mörku höfum við fengið aðstæð- ur fyrir tæknimennina og Svíar hafa boðið tveimur dagskrár- mönnum að koma og fylgjast með gerð dagskráa í sænska sjónvarpinu. — Svo sjónvarpið verður eins konar norrænt samvinnufyrir- tæki? — Við höfum haft mikla og góða samvinnu við Norðurlanda menn um uppbyggingu þess, bæði hvað snertir þjálfun starfs fólksins og eins um lán á vél- um og tækjum. Þau tæki sem við erum að fá núna koma sem lánstæki fyrst frá Norðurlönd- um. Þegar við höfum prófað þau um hríð getum við á grundvelli þeirrar reynslu ákveðið hvað af þeim við kaupum. Það er mikill kostur og auk þess einnig mjög hagstætt að fá þannig raun- veralega allt að eins árs láns- frest, sem þetta raunverulega þýðir. — En hafið þið ekki einnig samvinnu við brezka sjónvarp- ið í þessum efnum. — Ég hef sett mig í samband við það einnig og þar stendur okkur ýmiss konar aðstoð og hjálp til boða, ef við þurfúm á að halda. Þá má einnig nefna það að ég hef ritað um 50 sjónvarpsstöðvum víðs vegar um veröld og spurzt fyrir um sölu á sjónvarpsefni og ýmsa fyrirgreiðslu varðandi dag- skrár, og hvarvetna fengið hin- ar beztu undirtektir. Þá má einn ig geta þess að við íslendingar höfum nú þegar gerzt aðilar að arvöld hafa verið svo einstak- lega vinsamleg að útvega sjón- varpinu allar tolltekjur af inn- fluttum sjónvarpstækjum. Sú upphæð nemur nú um 20 millj. kr. Fyrir það fé er allur undir- búningur tmninn og tæki keypt. Þessar tolltekjur era vitanlega okkar eini tekjustofn í bili, en hann fer ugglaust mjög vaxandi þegar sjónvarpið hefur göngu sína. En þá bætast við afnota- gjöldin og tekjumar af sjón- varpsauglýsingunum. Er það vel að tekjumöguleikamir eru mikBr því enginn gerir gott sjónvarp auralaus. — En hvenær rætist sá óska- draumur að menn geti setzt nið ur við sjónvarpstæki sín og stillt inn á stöðvar f New York Moskvu og hvar sem er um heiminn. — Það er erfitt að gefa fulln aðarsvar við þessari spumingu. En vitanlega er að þessu unnið af miklu kappi af sjónvarps- mönnum víða um heim. Eins og sakir standa er ísland utan geisla-fjarskiptagervihnattarins Early Bird, sem notaður er til sjónvarpssendinga heimsálf- anna á millum. En jafnvel þótt við væram innan geislans era móttökustöðvarnar ægi- dýrar, kosta hálfan milljarð danskra króna, svo það mundi ekkj vera viðráðanlegt að byggja slíka stöð fyrir okkur. Hins vegar eru framfarirnar mjög hraðar á þessum vett- vangi. Sá mikli fjarskipta- og sjónvarpsmaður David Sarnoff forstjóri RCA, spáir því að Á árinu 1966 mun Evrópuráðið veita fólki, sem vinnur að félags málum, styrki til dvalar í aðild , arríkjum ráðsins. Eru styrkirnir ætlaðir til þess að þeir, sem þeirra njóta, afli sér aukinnar þekkingar og reynslu, er komi þeim að notum í störfum þeirra. Styrkir þessir eru veittir þeim, sem vinna að hinum ýmsu grein um félagsmála svo sem almanna tryggingum, velferðarmálum fjölskyldna og bama, endur- þjálfun fatlaðra, vinnumiðlun, starfsþjálfun og starfsvali, félagslegu öryggi, vinnulöggjöf, vinnueftirliti, öryggi og heil- brigði á vinnustöðum o. fl. Þeir sem styrks njóta fá greiddan ferðakostnað og 850, eða 1000,— franska franka á mánuði, eftir því í hvaða landi dvalizt er. Algengast er að styrkur sé veittur til 4 — 6 mán- aða dvalar. Umsóknareyðublöð ásamt upplýsingum fást í félagsmála- ráðuneytinu. Umsóknir skulu sendar félagsmálarSðuneytinu fyrir 15. október n. k.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.