Vísir - 06.10.1965, Blaðsíða 16
VISIR
Miðvikudagur 6. október 1965.
.
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur
hefst 8. okt, kl. 20 í Þingholtsstræti
27. Sigurvegaranum verður líklega
boðin þátttaka í alþjóðlegu skák-
Tmóti í Reykjavík í vetur.
70 drengir skrdðu sig á
glímundmskeið á 1. degi
„Við eriun bæði undrandi og á-
nægðir yfir árangrinum“, sagði
Hörður Gunnarsson í glfmudeild
Ármanns, þegar blaðið talaði við
hann í morgun um þátttöku í glímu
námskeiðum drengja. Hvorki meira
né minna en 70 drengir létu skrá
si'g á fyrsta degi.
— Þetta verður til þess, að við
verðum að endurskipuleggja alla
Haakon Kyllingmark, hinn vænt-
anlegi samgöngumálaráðherra Nor-
egs,
tíma fyrir drengi, því okkur kom
þessi mikla aðsókn alveg á óvænt,
sagði Hörður. Verður tfmunum nú
tvískipt og verða í öðrum flokkn-
um þeir drengir, sem fæddir eru
1954 eða síðar, en hinir eldri í
hinum flokknum. Upplýsingar um
breytingarnar er hægt að fá í
síma 13356 í íþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar.
Árds á konu
Kona nokkur hefur kært likams-
árás á sig, er framin var í húsi
hennar við Vífilsgötu árla s.I. laug-
ardagsmorguns.
Konan segir að árásarmaðurinn
hafi verið drukkinn. Hafi hann
komið inn í húsið gegnum glugga
og síðan ráðizt á sig.
í átökunum við manninn hlaut
hún höfuðhögg og glóðarauga og
einhverjar rispur eða áverka á
handlegg.
Konan kannaðist við árásar-
manninn, vissi nafn hans og heim-
ilisfang. Var maðurinn handtekinn
og færður til rannsóknarlögregl-
unnar.
<$>-----------------------------
■
Hér á myndinni sjást kennar-
amir á sjónvarpsnámskeiðinu,
sem hófst í gærkvöldi. Þeir eru
Jón Sen fiðluleikari (t.v.), Sig-
urður Einarsson, útvarpsvirki
Ríkisútvarpsins, og Jón Þor-
steinsson, yfirverkfræðingur
sjónvarpsins, (tJi.)
Það er Sjónvarpsdeild Ríkis-
útvarpsins og Iðnskólinn f
Reykjavík, sem standa að nám-
skeiðinu, en það fer fram f
húsnæði Jóns Sen að Suðurlands
braut 32. Sækja þetta námskeið
18 útlærðir útvarpsvirkjar, sem
vilja fá sérþjálfun f viðgerðum
sjónvarpstækja, og komust
færri að en vildu.
Islenzkur maður" ráðherra
jr ■ A
i nyju
Verkbann í trésmíða-
vinnu kemur til fram-
kvæmda á morgun
Blaðið hefur fregnað
að einn af ráðherraefn-
unum í hinni væntan-
legu borgaralegu ríkis-
stjóm Noregs sé af ís-
lenzkum ættum. Móðir
hans var íslenzk en gift-
ist norskum manni og
fluttist þangað út og bjó
þar síðan alla ævi.
Ráðherra þessi heitir Haakon
Kyllingmark og á að fara með
samgöngumál, sem er þýðingar-
mikið ráðherraembætti í Noregi
þar sem vegagerð þar í landi
er bæði mikilvæg fyrir byggðar
lögin og erfið í hinu klettótta
landslagi. Kyllingmark er með-
al efnilegustu stjórnmálamanna
í Hægri flokknum.
Móðir hans var sem fyrr seg
ir íslenzk. Hún hét Stgríður
Sæmundsdóttir frá Hörgshlíð í
Mjóafirði við ísafjarðardjúp.
Foreldrar hennar voru Sæmund
ur Gíslason bóndi þar og María
Jónsdóttir. Áttu þau fjölmörg
börn, en af þeim eru tvær syst
ur enn lifandi, Kristfn Sæmunds
dóttir hér í Reykjavík og Hall-
dóra Sæmundsdóttir á Isafirði.
Móðir hins norska ráðherra
Sigríður Sæmundsdóttir kynnt-
ist norskum sjómanni Kylíing-
mark að nafni austur á SeySas-
firði á árunum næst á undan
fyrri heimsstyrjöldinni og eign
uðust þau tvö börn hér á iandi.
Árið 1914 fluttu þau til Noregs
og settust að í Honningvaag
fyrir norðan Lofoten og þar er
Haakon Kyllingmark fæddur.
1915 og því rétt fimmtugur nú.
Skömmu síðar missti Sigríður
eiginmann sinn. Fluttist hún þá
til Svolvær, aðal útgerðarbæjar
ins í Lofoten og keypti þar
gistihús og rak hún síðan alla
Framh. á bls. 6.
| Á morgun gengur í gildi verk-
bann Meistarafélags trésmiða í
Reykjavík. Er það í fyrsta skipti
i um langt skeið sem slíkt allsherjar
iverkbann frá hendi vinnuveitenda
er sett á, en meistaramir telja sig
nauðbeygða til að gera þetta, þar
; sem trésmiðir settu á fyrir nokkru
verkfall á takmörkuðu svæði við
Árbæ og er það ætlun meistaranna
i með aðgerðum sínum ,að láta verk
;fallið þannig breytast í allsherjar
vinnudeilu milli stéttanna.
I dag kl. 5 á að halda sáttafund
f deilunni ,en óvíst hvort nokkuð
gerist þar. Síðar í kvöld kl. 9 halda
trésmiðir svo fund með sér.
Þegar verkbann þetta gengur í
gildi mun öll trésmíðavinna hjá
meisturum stöðvast og má nefna
t.d. vinnu í nýja hverfinu inn við
Klepp og svo í húsum víðsvegar
um bæinn. Undir félagssvæðið fell
ur einnig Seltjarnarnes, Kópavogur
og Garðahreppur, hinsvegar mun
Mosfellssveit ekki vera meðtalin,
þó Trésmíðafélagið nái yfir hana.
í samtali við formann Trésmíða-
félagsins lét hann í það skína að
þótt vinna hjá meisturum stöðvað-
ist mvndu trésmiðir hafa nóga
vinnu. Nýbyggingar myndu að vísu
að mestu falla niður, en nóg annað
væri að gera, sem ekki hefði verið
hægt að sinna vegna þess hve vinna
hefði verið mikil að undanförnu.
Súkamó
Súkornó er sogður veiknr og þrotinn nð mætti og óhrifum
Örlög Cúkamo Indonesiufor-
seta kunna að verða ráðin í dag.
Hann reynir að mlðla málum,
en allt bendir til siharnandi á-
taka við kommúnlsta. Jakarta,
höfuðborg Indonesiu, er alger-
lega á valdi stjómarhersins, og
em bomar þar fram æ háværari
kröfur um að banna Kommún-
istaflokk Indonesiu (PKI), en
útkoma aðalmálgagna flokksins
Hartan Rakjat og Warta Bhakti,
hafa verið bönnuð síðan á laug-
ardag, og hin opinbera frétta-
stofa ANTARA hefir verið lok-
uð frá sama tíma, til þess að
kippa burt þaðan kommúnist-
iskum samstarfsmönnum, sem
flokkurlnn er sagður hafa laum-
að þar inn. í Kuula Lumpur
hefir heyrzt, að útvarpað var í
Indonesíu hvatningum til verk-
manna úr flokki Muhameðs-
trúarmanna, lang fjölmennasta
flokki landslns. að styðja stjóm
arherinn eftir megni. Mikið er
undir því komið sem gerist f dag
á stjórnarfundinum, en Súkarno
gerir þar megintilraun til að
miðla málum og afstýra, að
borgarastyrjöld verði háð um
alla Indonesiu.
Fréttir hafa bórizt um nýtt
herforingjamorð. Yfirmaður 72.
herdeildarinnar var myrtur í
Jogjakarta (nú á ný á valdi
kommúnista) að fjölskvldu sinni
ásjáandi, og einnig var myrt
fólk úr fjölskyldu hans. Ekki er
sagt hvenær þetta átti sér stað.
Fréttaritari Daily Mail ný-
kominn frá Jakarta segir Sú-
kamo veikan og bugaðan, hann
sé nú svipur hjá sjón — eða
lítið meira, en niðurbrotið sam-
göngukerfi og tómar búðir segi
sína sögu um afleiðingar þess.
að aðstoð vestrænna rikja hefir
farið minnkandi, þar sem Sú-
karno hefir hallað sér æ meira
að kommúnistum og byggt upp
herafla, en af því leitt að tug-
milljónahalli (sterlingspnda) er
orðinn á ríkisbúskapnum.
Ýmsir sérfróðir menn um
Indonesiu ræddu um Súkarno í
gær og viðurkenndu allir hann
sem mikinn mælskumann og
leiðtoga, sem hefði orðið mikið
ágengt í að sameina Indonesa,
en mjög hefði þyngt í lofti á
undangengnum tíma, og hann
raunar haldið öllu saman með
þeim kyngimætti, sem hann
hefði haft á fólkið, en sá máttur
kynni nú að vera þorrinn og
engu hægt að spá eins og stæði
hvað gerðist.