Vísir - 07.10.1965, Blaðsíða 3
V í SIR . Fimmti’dagur 7. október 1965.
Þráinn rennir upp að bryggju á Norðfirði í gær, með góðan afla.
SÍLDARGENGD
3
Á söltunarstöðinni Ás var unnið Iangt fram eftir nóttu. Síldar-
daman virtist hafa vakað langtímum saman, en kappið var óskert
Freyfaxi frá Keflavík er nýbyrjaður á síldveiðum. Um morguninn hafði verið saltað úr honum, og
voru þeir á !eið út aftur. Frá vinstri: Trausti Guðmundsson, Oddgeir Þorsteinsson, Hörður Karlsson,
skipverjar á Freyfaxa. „Taktu mynd af kokknum hann er ógurlega harður í Ólsen“, sagði Hörður.
Þokan grúfði yfir fjarðarbotn-
inum, þegar horft var ofan af
Oddskarði. Þegar niður kom,
blandaðist hún reyknum úr
verksmiðjunni. Fyrstu húsin
komu £ ljós eins og vörður við
veginn. Byggðin fór að þéttast
og síldaranganin magnaðist —
og nú var blaðamaður Vísis
kominn velferðarríkið Nes-
kaupstað sem í kyrrð sinni bar
keim af mokafla af sild og
sleitulausri vinnu dag og nótt
vikum saman undanfarið. Sfldin
er uppi f landssteinum aðelns
4 — 5 tíma á miðin S-SA af
Gerpi. Þarna er allur flotinn
að veiðum sennilega um 200
sklp — fá ekkert smáræði í
einu kasti — 3000 mál — jafn-
vel barst orðrómur um, að eitt
þeirra hefði fengið 4000 mál.
Um morguninn hafði verið
saltað, en nú var lát á vegna
þess að verið var að landa sfld
f flutningaskipið „Stavnes“. Um
kvöldið hófst löndun úr tveim
skipum við planið Ás, Barða
Á planinu Nípu hf. sátu tveir ungir menn, sem höfðu verið að „tappa á“.
með 1200 og Bjarti með
1800 sem hvort tveggja eru
aflaskip (með um og yfir 30
þúsund mál). Ekki var vinnu-
aflið mikið á þessu plani, en
alvarlegur hörgull á fólki til sfld
arvinnu er þama fyrir austan á
aflatíðinni. Fólkið á plönunum
var orðið þreytt af vökum og
strlti — komið hefur fyrir, að
það hefur unnið 40 stundir f
striklotu, án þess að festa bund.
Tunnurnar hlaðast upp jafnt
og þétt, og síldin berst að landi
á Norðfirði eins og á færibandi,
demantssfld, millisfld, blönduð
sfld — sfld, sem breytist f pen-
inga, ósvikinn gjaldeyri.
Sárafá skip voru inni í gær
og í fyrradag á Norðfirði þrátt
fyrir uppgripsveiðina. Þrærnar
voru fullar, þar sem annars stað
ar á austfirzku síldarstöðvun-
um.
Á Rauða torginu, en svo kall-
ast miðin, kennd við rússneska
„vininn“ er alltaf krökt af skip
um, sem- bíða eftir kvöldinu, en
þá taka bau síldina á um 20—
25 faðma dýpi, og það gengur
ævintýri næst, hvað aflast mik-
ið í hvert sinn. Glögglr menn
fyrir austan eru farnir að spá
því, að þessi aflahrota haldist
lengi, jafnvel fram yfir nýjár.
—stgr.
Blaðamaður Vísis var í
Neskaupsstað I gær og
sendi þessa myndsjá
úr síldinni