Vísir - 12.10.1965, Blaðsíða 1

Vísir - 12.10.1965, Blaðsíða 1
VISIR 55. árg. - Þrifijudagur 12. október 1965. 232 tbl. FJÁRLÖG FYRIR NÆSTA ÁR LÖGÐ FRAM í GÆR Hallalaus afkoma ríkissjóðs 1966 Engar almennar skatta- eða tollahækkanir í gær var lagt fram á Alþingi frumvarp til fjárlaga fyrir árið 1966. Er gert ráð fyrir því í frumvarpinu, að afkoma ríkissjóðs verði hallalaus á næsta ári, Verður því marki náð samkvæmt frumvarpinu án nokkurra almennra skattahækk- ana, þ. e. hvorki hækkana á tekjuskatti, söluskatt- inum eða aðflutningsgjöldum. Samkvæmt frum- varpinu hækka útgjöld ríkissjóðs um aðeins 217 millj. króna frá því í fyrra. Hins vegar eru fram- lög til skólamála, télagsmála og dómsmála veru- lega aukin og fjárfestingarframlög úr ríkissjóði verða svipuð og í fyrra, en hækka þó á sumum sviðum. Útgjöldum létt af ríkissjóði Til þess að kleift verði að afgreiða hallalaus f járlög hef- ur verið létt nokkrum út- gjöldum af ríkissjóði. Fellt verður niður að fullu beint framlag ríkissjóðs til vega- gerðar, 38 millj. króna. Verð- ur fjárins'til vegagerðar þess f stað aflað með hækkun benzínskattsius. Þá verður nú létt af ríkissjóði að greiða rekstrarhalla Rafmagnsveitn- anna, en sú upphæð nemur 39 millj. kr. Verður þvi raf- orkuverðið hækkað sem þvf nemur. Takmarkaðar tekjuöflunarleiðir Jafnframt verður leitað nýrra takmarkaðra tekjuöfl- unarleiða, svo ekki þurfi að koma til almennra skatta og tollahækkana. Þær leiðir eru þessar: ★ Sérstakt gjald verður lagt á farseðla til útlanda. Greiða það allir nema náms- menn og sjúklingar. Gjald þetta mun gefa ríkissjóði 25 millj. kr. f tekjur á ári og mun verða 1500 kr. á far- seðil. ★ Hækkun áfengis og tó- baks, sem þegar hefur verið framkvæmd, mun gefa ríkissjóði um 80 millj. í aukn- ar tekjur. ★ Þá munu aukatekjur rík- issjóðs hækkaðar um 20 millj. kr., en þar er um að ræða vmiss konar dómsmála- gjöld og leyfisbréf. ★ Eignarskatturinn verður nú þrefaldaður frá því í fyrra, þar sem 20 millj. krón- ur skortir upp á að sú hækk- un sem þá var framkvæird hafi gefið fyrirhugaðan tekju- auka. Er þessi hækkun gerð til þess að standa straum af fjárframlögum til húsnæðis- mála, svo sem samþykkt var á síðasta þingl. (Alls 40 millj. kr.). ★ Á þennan hátt mun tak- ast að afgreiða hallalaus fjárlög fyrlr næsta ár, án al- mennra skattahækkana. Hins vegar verður greiðsluafgang- urinn sáralítill aðeins um 25 milli. króna. ★ Nánar er skýrt frá fjár- Iagafrumvarpinu á bls. 9 f Vísl í dag. Krónu-þjóf- urinn fundinn ^Mynd þessi var tekin f morgun, þar sem umræður voru að hefjast vlð fulltrúa Sviss Aluminium. Vinstra megin sitja islenzku fulltrúamir, m. a. Brynjólfur Ingólfsson, Jóhannes Nordal og Jóhann Hafstein ráö- herra. Móti þeim sitja fulltrúar Sviss Aluminium ogBaldur Möller lengst til hægrl. ALUMINIUM VIÐRÆDUR Lögreglan handtók í gærkvöldi ávísanaþjófinn, sem stal peninga- kassanum f verzluninni Krónan f Mávahlíð 25 á dögunum. En f pen ingakassanum var rúmlega hálf- milljón króna auk annarra verð- mætra plagga. Samkvæmt upplýsingum frá Sveini Sæmundssyni yfirmanni rannsóknarlögreglunnar voru á- vísanirnar í peningakassanum að fjárhæð kr. 564.899.00 auk 1 'þús. kr. í peningum. Hafði þjófurinn ekki gert neina tilraun til að selja ávísanimar enda óhægt um vik þar sem þær voru flestar allverð miklar, um eða yfir 100 þús. kr. Hins vegar voru í peningakass- anum tvö ónotuð ávísanahefti og eitthvað hafði þjófumnn skrifað út af þeim. Þó hefur, enn sem komið er, ekkj sannazt að hann hafi selt nemí tvær þeirra, samtals að fjár- hæð rösklega 2 þús. kr. Sveinn sagði að hugsanlegt væri að meira hafi þó komizt í umferð af þess- um ávísunum hans, þótt ekki sé það ennþá uppvíst. Þjófurinn hefur áður komið við sögu hjá lögreglunni. 1 gærkvöldi kom hlngað tli lands samninganefnd frá Svlss Aluminium til viðræðna við fulltrúa rfkisstjómarinnar um byggingu alúmínvérksmiðju hér á landi. Sem kunnugt er hafa undan- farið ár átt sér stað nokkrir vlðræðufundir milli forsvars manna þessa svissnesku stár- fyrirtækis og Stóriðjunefndar og annarra fulltrúa islenzkra stjórnvalda. Hefur Alþjóðabank inn einnig teklð þátt f þe.sum viðræðum, þar sem f ráði er að bankinn veiti stórlán til Búrfells vlrkjunar ef af samningum um byggingu alúmínverksmiðju verður. Hafa viðræðurnar fjall- að um samningsuppkast milll fs- lenzkra stjómvalda og hins svlssneska alúmfnfélags, m. a. um skattlagningu verksm'ðjunn ar hér á landf og ýmis réttar- atriði i sambandi við rekstur hennar og útflutning hráefnis Nú em viðræðurnar að kom- ast á Iokastig og má búast við þvf að þær viðræður sem næstu þrjá daga munu eiga sér stað hér í Reykjavfk geri það ljóst hvort samningar takast um byggingu verksmiðjunnar eða ekki. Fundimir munu standa fram á fimmtudag og hófst sá fyrsti þelrra kl. 10 f morgun og fór fram . fundarsal Lands- banka Islands. Fjórdróttur Þegar ríkisendurskoðandi var \ að störfum víð endurskoðun á. bókhaldi Landssmiðjunnar kom < f Ijós ólag á reikningum, i benti til þess að um fjárdrátt • gpeti verið að ræða. Var starfsmönnum við endur-J skoðun á rekstri fyrirtækisins < f jölgað, en þar sem endurskoðun j er enn ekkj lokið, hefur ekki | komið í ljós til fullnustu hversu < alvarlegt fjársvikamál þetta \ f kann að vera, en sýnt þykir að > tveir starfsmenn séu valdir að [ því ólagi á reikningum, sem um I er að ræða. Gunnlaugur Briem, ráðuneyt- | isstjóri atvinnumálaráðuneytis- 1 ins, en Landssmiðjan heyrir [ undir það ráðuneyti, kvað á l þessu stigi málsins lítið hægt að > segja. en vildi þó draga í efa að |hér gæti verið um milljónir að > ræða. Ekki yrði tekin nein á- > kvörðun um framhaldsaðgerðir [fyrr en að endurskoðun lokinni. STÓRBRUNI / SÖL TUNARSTÖD Stórbruni varð á Seyðisfirði í nótt, bryggjuhús sfldarsöttun- arstöðvarinnar Sunnuver brann. Þetta er steinhús en er mjög illa farið eftir brunann, innvið- ir og innréttingar ónýtt. Þar skemmdist og talsvert af vöru- birgðum, einkum salti. Eigendur, stöðvarinnar eru Ingvar Vilhjálmsson. útgerðar- maður i ísbirninum á Seltjarn- arnesi og synir hans. Var stöð þessari komið upp fyrir þrem- ur árum og þá byggt þetta hús. Er það allmikið um sig, hluti þess tveggja hæða, þar sem verbúðir eru, en annars er þama vinnslusalur og margs konar geymslur. Eldurinn kom upp upp úr kl. 2 um nóttina í þeim hluta sem mannahíbýlin eru, en ekki var enn búið að fá nákvæma skýrslu um það í morgun hvað hefði komið brunanum af stað. En eldurinn breiddist óðfluga út um húsið, þvf að þama eru milligerðir og innréttingar all- ar úr viði. Svo virðist sem fólk allt hafi verið vakandi þama, en það vom átta manneskjur Frh. á bls. 6.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.